Fréttablaðið - 19.05.2010, Síða 38
22 19. maí 2010 MIÐVIKUDAGUR
folk@frettabladid.is
Leikarinn
Robert Pattin-
son, sem þekkt-
astur er fyrir
að leika vamp-
íruna Edward
Cullen, hefur
sýnt áhuga á að
leika í vænt-
anlegri kvik-
mynd sem
gerð verður eftir metsölubók-
inni Kill Your Friends. Persónan
sem Pattinson hyggst leika er
ekki ósvipuð þeirri sem Christi-
an Bale lék í kvikmyndinni
American Pshyco.
„Robert er mikill aðdáandi
bókarinnar og vill endilega taka
þátt í verkefninu. Þetta er mjög
myrk persóna sem hann vill
leika og mun eflaust ekki höfða
til ungra aðdáenda hans,“ var
haft eftir heimildarmanni.
Ekki meiri
Edward
ROBERT PATTINSON
> GLÆSILEGT BRÚÐKAUP
Gamanleikarinn David Walliams úr þáttun-
um Little Britain kvæntist hollensku fyrirsæt-
unni Lara Stone í London á sunnudag. Svara-
maður við athöfnina, sem þótti hin
glæsilegasta, var Matt Lucas, hinn
helmingur Little Britain. Walliams,
sem er 38 ára, og hin 26 ára Stone
trúlofuðu sig í janúar síðastliðnum.
Leikarinn hafði áður verið orðað-
ur við sjónvarpskonuna Lisu Snow-
den og kryddpíuna Geri Halliwell.
Eyjafjallajökull heldur
áfram að hrella stórstjörn-
ur enda hefur askan frá eld-
gosinu sett flugsamgöngur
úr skorðum undanfarna
daga. Lindsay Lohan gæti
verið í vondum málum.
Svo gæti farið að askan frá Eyja-
fjallajökli ætti eftir að senda
bandaríska vandræðagemling-
inn Lindsay Lohan í fangelsi. Frá
þessu er greint á vefsíðunni tmz.
com. Lindsay er nú stödd á kvik-
myndahátíðinni í Cannes þar sem
hún er að kynna ævisögulega
kvikmynd klámmyndaleik-
konunnar Lindu Lovelace en
hún varð heimsfræg fyrir leik
sinn í Deep Throat.
Leikkonan á hins vegar að
mæta í réttarsal á fimmtudag-
inn en ekki er víst með flug frá
Cannes til Kalíforníu
og því hugsanlegt
að Lohan komist
alls ekki heim.
Samkvæmt TMZ.
com gæti þetta
þýtt að Lindsay
yrði sett bak við
lás og slá í stuttan
tíma enda virðist
þolinmæði dóm-
stóla á þrotum
gagnvart gömlu
barnastjörnunni
sem, samkvæmt TMZ.com, hefur
ekki haft fyrir því að mæta á fundi
AA-samtakanna eins og hún var
dæmd til að gera fyrir ekki margt
löngu. Lögfræðingar Lohan hafa
hins vegar vísað þeim ásökunum
á bug og segja hana hafa mætt á
tíu af þrettán fundum, nú síðast á
föstudaginn.
Lindsay er hins vegar himin-
lifandi yfir að hafa landað hlut-
verki Lindu og vonast til að mynd-
in blási nýju lífi í leikferilinn sem
hefur vægast sagt legið niður á
við með tilheyrandi áfengis-og
eiturlyfjaneyslu eins og heim-
spressan hefur fjallað ítarlega
um. Orðrómur hefur verið á
kreiki um Bill Pullman leiki
sjálfan Hugh Hefner í áður-
nefndri mynd.
Lindsay er ekki eina
glamúrdrottningin sem
varð fyrir barðinu á ösk-
unni því brjóstabomban
Kim Kardashian varð að
láta sér nægja að
horfa á Formúlu
eitt-kappakstur-
inn í sjónvarpi
því hún komst
ekki flugleiðina
til furstarík-
isins. Verra
þótt henni
hins vegar,
ef marka má
twitter-síðuna,
að fegrunarliðið
hennar, sem sam-
anstendur af hár-
greiðslumanni,
stílista og förðun-
armeistara, skyldi
komast þangað en
þau komast hins
vegar ekki aftur
heim.
freyrgigja@frettabladid.is
Askan sendir
Lindsay í steininn
FÓRNARLAMB
ÖSKUNNAR Askan
frá Eyjafjallajökli
gæti reynst Lindsay
Lohan dýr því hún
á það á hættu að
lenda í fangelsi
ef henni tekst
ekki að komast til
Bandaríkjanna frá
Cannes í tæka tíð.
Leikstjórinn Oliver Stone segir það sér að
þakka að leikkonan Carey Mulligan og leik-
arinn Shia LaBeouf hafi byrjað saman,
en þau kynntust við tökur á kvik-
myndinni Wall Street: Money
Never Sleeps.
„Maður sá neistann á milli
þeirra strax. Þau voru mjög fag-
mannleg á tökustað, en það var
ekki um að villast að þau voru
afskaplega hrifin af hvort öðru.
Ég var mjög ánægður þegar
ég áttaði mig á því að þau voru
orðin par, það gerði ástarsenurn-
ar á milli þeirra aðeins enn betri.
Það var augljóst að þau þurftu ekki
að kafa djúpt til að finna neistann,“
sagði leikstjórinn um hið unga par.
Neistarnir flugu
KOMINN MEÐ KÆRUSTU Transformers-leikarinn
Shia LaBeouf er farinn að hitta mótleikkonu sína,
Carey Mulligan. NORDICPHOTOS/GETTY
Skoski leikarinn Ewan McGregor
hefur ákveðið að fara með aðal-
hlutverkið í nýrri mynd um Don
Kíkóta. Leikstjóri verður Terry
Gilliam. Johnny Depp ætlaði
upphaflega að leika í myndinni
en hætti við fyrr á þessu ári og
ætlar þess í stað að leika í fjórðu
Pirates of the Caribbean-mynd-
inni. „Ewan hefur bætt sig mikið
á undanförnum árum. Hann
hefur gott skopskyn og er yndis-
legur leikari. Hann er skemmti-
lega strákslegur og getur verið
mjög heillandi,“ sagði Gilliam
um McGregor.
McGregor í
Don Kíkóta
KOMUM VINNUFÚSUM HÖNDUM TIL STARFA.
KJÓSUM SAMFYLKINGUNA!
Vekjum
Reykjavík!
Atvinnulausir Reykvíkingar hafa aldrei verið fl eiri. Samfylking-
in sættir sig ekki við það. Borgin þarf að vakna, taka forystu og
beita öllu afl i til að minnka atvinnuleysið og fl ýta endurreisninni.
Samfylkingin vill markvissar aðgerðir atvinnumálum.
1. Átak í nýsköpun og nýtingu á tómu húsnæði
2. Endurnýjun í eldri hverfum og efl ing innviða
3. Samstillt vaxtarátak á öllu höfuðborgarsvæðinu
4. Tvöföldun viðhalds og auknar verklegar framkvæmdir
5. Vaxtarátak í græna geiranum
Við verðum líka að hlúa að atvinnuleitendum
og veita þeim öryggi. Annars getur
atvinnuleysið valdið miklu
andlegu tjóni!
KJÓSUM MEIRI KRAFT OG ÖRUGGA ATVINNU
Kynntu þér
aðgerðaráætlun
okkar á
xsreykjavik.is
Íbúafundur um málefni
miðborgarinnar
Fimmtudaginn 20. maí nk. verður haldinn íbúafundur
klukkan 17.00 í Tjarnarsal Ráðhúsi Reykjavíkur. Stýrihópur
vegna reglna um staðsetningu og afgreiðslutíma vínveitinga-
staða boðar til fundarins með íbúum miðborgarinnar.
Dagskrá
• Júlíus Vífi ll Ingvarsson, formaður skipulagsráðs, fl ytur stutt ávarp.
• Stefán Eiríksson, lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu,
fl ytur stutt ávarp.
• Magnús Skúlason, formaður Íbúasamtaka miðborgarinnar,
fl ytur stutt ávarp.
• Að loknum ávörpum munu fundarmenn ræða leiðir til að bæta
ástandið í miðbænum. Notað verður svokallað „Air Opera“
fundarform.
SÉRHÆFING Í VIÐHALDI GÓLFA
Við sérhæfum okkur í slípun og olíuburði á
sólpöllum, gerum gamla pallinn flottari en nýjan.
Fjalirnar verða rennisléttar og timbrið nær aftur
sínum náttúrulega lit.
GERUM SÓLPALLINN
EINS OG NÝJAN
info@golfthjonustan.is | golfthjonustan.is
S: 897 2225