Fréttablaðið - 16.06.2010, Qupperneq 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI16. júní 2010 — 139. tölublað — 10. árgangur
MIÐVIKUDAGUR
skoðun 16
veðrið í dag
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
MATUR OG MENNING er hátíð sem haldin verður í Vestur-
byggð dagana 17. til 20. júní. Áhersla verður lögð á það besta í
menningu og mat á sunnanverðum Vestfjörðum. Sumarmarkaður
Vestfjarða verður opinn og boðið verður til sjávarfangssælkeraveislu.
„Uppáhaldsstaðurinn minn er bærinn Vashisht í Manali-dal á Norður-Indlandi. Hann er í tveggja kílómetra hæð yfir sjávarmáli í Himalaja-fjallgarðinum, nálægt landamærum Kína,“ segir Valdi-mar Ólafsson stjórnmálafræðing-ur.
Valdimar segir engan hægðar-leik að komast að bænum Vashisht, en það tekur tuttugu klukkustund-ir í rútu frá Delhi. Hann mælir frekar með að taka þetta ferðalag í áföngum og taka lest til Shimla,gista eina nótt og taka þ ðtil M
adís á jörðu yfir sumartímann en þar er víst frekar lítið um að vera á veturna,“ segir Valdimar og bætir við að heppilegasti tím-inn til að heimsækja bæinn sé í september, því þá sé eplauppsker-an. „Ég og konan mín, Kristbjörg Kristjánsdóttir, fórum þangað til að flýja fimmtíu stiga sumarhit-ann í Delhi þegar við vorum að læra þar kvikmyndagerð árið 2004 til 2005. Ætlunin var einungis að komast í mannsæmandi loftslkæla okk
fundum skartgripasmið á staðnum og hann smíðaði fyrir okkur hringi sem gerðir voru úr silfri úr Him-al ajafjöllum. Eftir að hafa sett upp hringana fórum við síðan í heitt bað, skelltum okkur á burrito, bjór og myndina Fear and Loathing in Las Vegas á bíóhúsi/kaffihúsi bæj-arins. Létt og nokkuð þétt skottuð-umst við síðan niður fjallveginn og inn á hótelherbergi okkar sem varmeð fjallasýn
Trúlofuðu sig á Indlandi
Valdimar Ólafsson stjórnmálafræðingur og Kristbjörg kona hans lærðu kvikmyndagerð á Indlandi fyrir
nokkrum árum. Í norðurhluta landsins fundu þau bæ sem hreif þau svo mikið að þau ílengdust í mánuð.
Valdimar og Kristbjörg heimsóttu auðvitað Taj Mahal eins og ferðalanga er siður.
Auglýsingasími
Bonito ehf. Friendtex,
Faxafen 10, 108 Reykjavík, sími: 568 2870 - www.friendtex.is
Útsala Á vor og sumarvörum Friendtex 2010
Opið mánud.–föstud. frá kl. 11–18Laugard. frá kl. 11–16
Komið og gerið frábær kaup
Lín Design, gamla sjónvarpshúsið Laugavegi 176 Sími 533 2220 www.lindesign.is
SÉRBLAÐ
í Fréttablaðinu
Allt
Fjölskylduhátíð
10. – 16. júní
»Frábær tilboð!
»Hoppukastalar
»Andlitsmálun
»Blöðrur
ÓDÝRT FYRIR ALLA!
Nýr tilboðsbæklingur í dag
létt&laggott
er komið í
nýjan búning
Sannur ættjarðarvinur
Bók með ljóðum Þorsteins
Jóhannssonar frá Svínafelli
í Öræfum kemur út.
tímamót 24
VIÐSKIPTI Bandaríska fyrirtækið
Ticketmaster hefur tekið í notkun
farsímaviðmót frá íslenska sprota-
fyrirtækinu Mobilitusi. Viðmótið
var tekið í notkun í Bandaríkjun-
um í gær, en síðan verður bætt við
nýju landi hálfsmánaðarlega fram
á haust.
„Þeir ætla að stórauka umferð
inn á farsímavefinn,“ segir Þórar-
inn Stefánsson, annar stofnenda
Mobilitus, en Ticketmaster skipt-
ir út eldra viðmóti fyrir viðmót
íslenska upplýsingatæknifyrir-
tækisins. Fyrirtækið sérhæfir sig
í að búa til viðmót fyrir vefsíður
sem birtast í farsímum og öðrum
handtækjum. Meðal viðskiptavina
er skemmtivefurinn Collegehumor.
com, sem nýtur allnokkurra vin-
sælda á heimsvísu og nú Ticket-
master.com, stærsti miðasöluvef-
ur heims. Fyrirtækið er í öðru sæti
á eftir Amazon.com í umfangi raf-
rænna viðskipta í heiminum.
„Það er satt að segja lygilegt að
pínulítið sprotafyrirtæki uppi á
Íslandi hafi landað þessum samn-
ingi,“ segir Þórarinn, en aðdrag-
andi að viðmótsskiptum Ticket-
master hófst fyrir tæpum tveimur
árum. Mobilitus fékk að taka þátt
í og vann útboð verkefnisins hjá
Ticketmaster. „Við unnum það
bara á tækninni. Síðan náðist að
semja um verð og undanfarna þrjá
mánuði hefur þetta verið í virkri
framleiðslu.“
Nýi samningurinn markar
tímamót fyrir Mobilitus og segir
Þórarinn að með þessu sé búinn
til grunnur fyrir enn frekari vöxt
fyrirtækisins. Tekjur komi til með
að aukast þannig að fyrirtækið fari
frá því að vera rekið á núllinu, yfir
í að á rekstrinum verði allgóður
hagnaður. Hann gæti numið tugum
milljóna á þessu ári og enn meiru
þegar fram í sækir, ef vel gengur.
Á skrifstofunni í Reykjavík eru
nú fjórir starfsmenn í fullu starfi
hjá Mobilitusi, en að auki eru þrír
aðrir. „Ein er í fæðingarorlofi og
einn týndur í Belgíu,“ gantast Þór-
arinn. Helsta vanda fyrirtækisins
segir hann nú vera að finna rétta
starfsfólkið í vöxtinn. Tæknivinn-
an sé að baki og nú hægt að byggja
á þeirri lausn sem búin hafi verið
til.
Þórarinn segir að hingað til hafi
ríflega 30 þúsund manns komið
daglega á farsímavef Ticketmast-
er. „Við sjáum fram á að það tvö- til
þrefaldist á næstu 18 mánuðum,“
segir hann og kveður fyrirtækið
ekki síst horfa til þess að auglýsa
farsímasöluna á auglýsingaspjöld-
um sínum. Þannig megi fá þá til
að kaupa miða strax sem annars
hefðu hætt við á leiðinni heim.
- óká
Milljónasamningur í höfn
Íslenska sprotafyrirtækið Mobilitus annast farsímasöluviðmót fyrir Ticketmaster, eitt stærsta miðasölufyrir-
tæki í heimi. Samningurinn skilar verulegum tekjum. Ticketmaster selur inn á stórviðburði um allan heim.
LÉTTIR TIL Í dag verða víðast
vestan 3-8 m/s. Léttir til upp úr
hádegi en dálítil væta austan til
fyrri partinn. Hiti 10-18 stig.
VEÐUR 4
12
10
14
18
15
UTANRÍKISMÁL Hægt verður að hefja
aðildarviðræður Íslands við Evr-
ópusambandið þrátt fyrir að ekki
hafi náðst samkomulag við bresk
og hollensk stjórnvöld um Icesave-
málið. Sá kafli í viðræðunum sem
fjallar um fjármálakerfið verður
þó að bíða þess að deilan leysist,
samkvæmt heimildum Fréttablaðs-
ins. Leiðtogaráð ESB, sem funda
mun í Brussel á morgun, mun sam-
þykkja að hefja aðildarviðræður
við Ísland, samkvæmt drögum að
lokaályktun fundarins, sem Frétta-
blaðið hefur undir höndum.
Ekki er fjallað beint um Icesave-
málið í drögunum, en augljóst út
frá samhenginu að vísað er til
málsins. „Leiðtogaráðið staðfest-
ir að viðræðurnar fari fram á for-
sendum Íslands og hraðinn muni
velta á því hversu hratt Ísland
getur uppfyllt þær kröfur sem
útlistaðar eru í ramma viðræðn-
anna,“ segir þar enn fremur.
- bj / sjá síðu 8
Aðildarviðræður hefjast:
Kafli um fjár-
málakerfi bíður
REYKJAVÍK Nýr meirihluti Besta flokksins og Sam-
fylkingar tók við völdum í gær og Jón Gnarr varð
borgarstjóri. Borinn var fram sameiginlegur listi
allra flokka í ráð og nefndir og er það nýbreytni.
Sóley Tómasdóttir, fulltrúi VG, segir að með
þessu hafi hefðbundin „bandalaganálgun“ verið
brotin upp og er það henni léttir. Ella hefði hún
þurft að skipa sér í sveit með annaðhvort meiri-
eða minnihluta:
Hanna Birna Kristjánsdóttir, forseti borgar-
stjórnar, segir að hún hafi lagt á það áherslu í við-
ræðum nú að fulltrúum allra flokka væri gefið
tækifæri. Þessi nálgun sé í fullu samræmi við
hennar áherslur sem borgarstjóri.
Dagur B. Eggertsson, nýr formaður borgar-
ráðs, segir að það taki tíma fyrir fólk að fóta sig í
nýju umhverfi sem þessu. „Það eru allir að læra,“
segir hann. Maður dagsins, Jón Gnarr, óttast ekki
að nýja kerfið hafi í för með sér flækjur: fólk eigi
ekki að hafa óþarfa áhyggjur. - kóþ, óká /sjá síðu 6
Besti flokkurinn og Samfylking hafa tekið við völdum í Reykjavíkurborg:
Bandalagsnálgun brotin upp
MÚMÍNPABBI FÆR LYKLAVÖLD Létt var yfir mönnum þegar Jón Gnarr tók við sem borgarstjóri af Hönnu Birnu Kristjánsdóttur
í gær. Nýi borgarstjórinn segist vilja leysa málin með jákvæðni að leiðarljósi og er víst ekkert að grínast með það. Hann líkir
flokk sínum við Múmínpabba: stundum ringlaður, en aldrei vondur. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Logi Geirs einkaþjálfari
Logi Geirsson og Ingibjörg
kærastan hans útskrifast í
dag sem einkaþjálfarar.
fólk 38
Hvað gera Spánverjar?
Evrópumeistarar Spánar
hefja keppni á HM í dag.
íþróttir 34