Samtíðin - 01.07.1970, Blaðsíða 15

Samtíðin - 01.07.1970, Blaðsíða 15
SAMTÍÐIN 11 SAGA EFTIR G. CROUDACE Niðurl. HANN ók henni heim að einbýlishúsinu, strauk báðum varðhundunum og bauð henni góða nótt með kossi. Hann afþakkaði boð hennar um að koma inn og fá eitt glas. — Ef til vill þægi hann það síðar. Marion hafði sömu störfum að sinna á hverjum morgni, en átti frí eftir hádegi. Ró- bert sótti hana í hvíta Mercedesbílnum sín- um, og þau óku milli fjallanna upp til Grasse. Þar brögðuðu þau á sykruðum fjólum, rósa- blöðum og mímósum, meðan hann sagði henni frá Fragonard, sem var fæddur hér, og frá Því, að Fragonard eldri hefði viljað, að son- ur hans yrði sútari og hanzkagerðarmaður eins og hann sjálfur, en sonurinn fór frá öllu saman til Parísar til að verða málari. ,,Þú ert svo fróður um list og listamenn, Róbert“, sagði hún. ,,Já, ég hef alltaf haft áhuga á þeim, Mari- °n. Það má ekki vanmeta gildi þeirra. Þeir hafa starfað meðal okkar og haft áhrif á okk- ur allar götur frá Forn-Grikkjum, meira að segja miklu lengur. Það eru þeir, sem skapa. Þeir eru forkólfar siðmenningarinnar-----“ Hann rétti henni höndina og dró hana upp úr stólnum. „Komdu, við skulum labba spölkom", sagði hann. Þau kysstust nokkrum sinnum í laumi í for- sælunni frá gömlu steingörðunum, sem höfðu ef til vill staðið þarna allar götur frá því er Grasse var örlítið lýðveldi, þar sem menn settu blómailm í grófa sápuna, sem þeir hjuggu til. Og þau kysstust milli ólífutrjánna, afkomenda þeirra trjáa, sem Grikkir höfðu komið með til Provence fyrir 2500 árum. - - - °g enn fleiri urðu kossarnir heima í dagstof- unni hennar í einbýlishúsinu með varðhund- unum, þjófabjöllukerfinu og stálhurðunum. ÞEGAR Marion var aftur komin til svefn- herbergis síns, eftir að þjófnaðurinn hafði verið framinn, staðnæmdist hún við glugg- ann og leit yfir garðinn, sem var bjartur af skæru tunglsljósinu. En því lengur sem hún starði á dökkar útlínurnar í silfurlitri birt- unni, því ógreinilegri og þokukenndari urðu þær. Skyndilega snéri hún sér frá þessu, los- aði mittisbandið og lét ullarsloppinn falla á gólfið. „Róbert, Róbert“, hvíslaði hún, „hvemig gaztu fengið af þér að gera mér þetta?“ Síðla dags daginn eftir ók hún með Pétri bílstjóranum út á flugvöll að sækja hr. van Golen. Henni var óglatt og kalt. Birtan, hit- inn og litimir voru horfnir, og veröldin var aftur orðin grá og köld. „Látið mig þá heyra, Marion“, sagði millj- ónarinn og snéri sér að stúlkunni, þegar þau voru setzt ein aftur í svarta Rolls Royceinn. Harkan og reiðin blikuðu í ljósbláum augum hans. „Ég skammast mín svo mikið, herra van Golen. - - - Mér finnst ég hljóti að hafa glatað trausti yðar og - - - “ „Ekki orð um það, Marion. Byrjið á byrj- uninni!“ Hún sagði honum frá hárgreiðslunni, frá Citroenbílnum, sem hún hafði lagt á götunni, frá hjólinu, sem sprakk á, og unga mannin- um, sem hjálpaði henni. „Og þér skilduð ekki, að þetta var einung- is hrekkjabragð? Þér skilduð ekki, að hann hafði skipulagt allt þetta til þess að komast í kynni við yður og komast þannig inn í hús mitt?“ „Nei, ekki þá, herra van Golen, en nú er mér það því miður ljóst“. Hann andvarpaði vonlaus. „Þið eruð allar eins, þessar konur. Ef karlmaður slær ykkur gullhamra, glatið þið allri dómgreind. Vitið þér, hvað mér þykir verst af öllu? Ekki endi- lega það, að ég hef misst myndina, en ég hef líka misst nokkuð annað“, sagði hann, og gömul og hrjúf rödd hans varð há og við- kvæm. „Ég treysti yður, Marion. Ég hélt, að þér væruð skynsöm stúlka, sem léti ekki blindast af hverjum sem væri - - - “ „Mér þykir þetta mjög leitt, herra van Golen“, sagði hún stillilega. Daginn eftir fleygði hann böggli á skrif- borðið. „Hérna er safn af ljósmyndum, sem mér hafa verið sendar frá skrifstofu minni í París.

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.