Samtíðin - 01.07.1970, Side 18

Samtíðin - 01.07.1970, Side 18
14 SAMTÍÐIN það bil 12 íslenzkum krónum, — segir blaða- konan í vorkunarblöndnum tón vegna þess ófarnaðar, sem hin dugmikla íslenzka þjóð á við að búa í gengismálum sínum, en sakir háttvísi fjölyrðir hún ekki um þá sorgarsögu. Auðvelt er að benda á misskilning í um- mælum þessarar blaðakonu. Nægir í því sam- bandi að benda á börnin og fomsögurnar, sem er ekki annað en erlendur reyfari endurbor- inn. En verulegur hluti þessa íslendinga- spjalls byggist á samtölum við íslendinga, og virðist þar rétt skýrt frá staðreyndum. CUN ARD - skipaf élagið dekrar við farþegana á skipum sínum. Á hinu kunna skipi félagsins „Maríu drottningu” („Queen Mary”) var m. a. garðyrkjustöð, þar sem ræktuð voru skrautblóm til að láta í vasa í káetunum, skreyta með borðin í mat- sölunum o. s. frv. í hinu nýja farþegaskipi Cunárdfélagsins, „Elísabet drottningu II” („Queen Elizabeth II”), er kostaði sem svarar 6 milljörðum ísl. kr. (gengi í maí 1970), er sýningarsalur, þar sem seld eru málverk og myndastyttur. Er auðvelt að færa veggi salarins til, og lýsingin er eins og bezt verður á kosið. Listaverkasal- an þarna er rekin með samstarfi við hina heimsfrægu listverzlun Marlborough Fine Art, og hefur verð dýrustu myndanna kom- izt upp í sem svarar um 8.400.000 ísl. kr. Eftir að hafa kynnt sér verðskrá listavei'k- anna hafa sumir farþeganna þurft að fá sér hjartastyrkingu. Fyrir henni er séð af C. N. Younghusband, framkvæmdastjóra James Buchanan vikíhússinss, sem bruggar rúml. 60 viskítegundir handa farþegum skipsins. — „Elísabet drottning II” er knúin 110.000 öx- ulhestafla vélum. Gullsmiðir STEINÞÓR og JÓHANNES Laugavegi 30. Sími 19209. Austurstræti 17. Sími 19170. Demantar, perlur, silfur og gull. UNDUR <"• AFREK ^ Fámennasti ríkisher í heiminum er í ítalska smáríkinu San Marino. f honum eru aðeins 11 menn. Þrjú smáríki: Costa Rica, ísland og Liechteinstein hafa engan her. ^ Lífseigasta baktería, sem menn þekkja, nefnist á latínu Micrococcus radiodurans. Hún þolir 10.000 sinnum sterkari geisla- virkni en þá, sem reynist mönnum banvæn (ca 650 röntgen). $ Stærstu óshólma (deltu) heimsins mynda stórárnar Ganges og Brahmaputra í sameiningu. Þeir eru í Austur-Pakistan og Vestur-Bengalíu (í Indlandi). Óshólmar þessir eru 80.000 ferkílómetrar að flatarmáli. ♦ Stærsta bankabygging heimsins er Chase Manhattan Building í New Ycxrk. Hús- ið er 248 m á hæð og var fullgert árið 1961. Það er 64 hæðir, og í því er stærsta banka- hólf veraldarinnar 107x30x2,4 m að stærð. Það vegur 894 lestir. Hurðirnar á hólfinu eru 6 að tölu, og vegur hver þeirra 41 lest. Dyr- um hólfsins er hægt að loka með þrýstingi vísifingurs. 4 Gateway Arch (Hliðsboginn) í St. Louis í Missouri í Bandaríkjunum er stærsta minnismerki heimsins. Smíði bogans var lokið 28. okt. 1965. Hann var reistur til minningar um landaukninguna vestur á bóg- inn við kaupin á Lousiana árið 1803. Þessi risabogi er úr ryðfríu stáli. Hann er 192 m breiður og jafnhár. Boginn var smíðaður eftir teikningu finnsk-amerísku arkitektsins Eeros Saarinens (d. 1961). Hann kostaði 29 milljónir dollara. ^ Stærsta stálbogabrú heimsins er yfir höfnina í Sydney í Ástralíu og nefnist Sydney Harbour Bridge. Aðalbogi hennar nær yfir 502,94 m, og ber hann uppi tvær brautir raf- knúinna járnbrautarlesta, átta akreinar og tvær gangbrautir í 52,4 m hæð yfir vatns- fleti Sydneyhafnar. Smíði brúarinnar tók sjö ár og kostaði sem svarar um 1080 millj. ísl. kr. miðað við gengi í marz 1970. Brúin er 1,149 m á lengd. Hún var opnuð til um- ferðar 19. marz 1932. 4 MUNIÐ að tilkynna SAMTÍÐINNI undir eins bústaðaskipti til að forðast vanskil.

x

Samtíðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.