Samtíðin - 01.07.1970, Síða 21
SAMTÍÐIN
17
Eiga böm á sextugsaldri
SÆNSK kona, Lena að nafni, 52ja ára
gömdl, vaknaði nýlega í sjúkrahúsi eftir að-
gerð og spurði kvíðafull: Var æxlið illkynj-
að?”
Læknirinn hristi höfuðið og anzaði hálf-
vandræðalegur á svipinn: „Þér eruð vanfær-
ar”.
Lena þessi, sem lögð hafði verið á spítal-
ann til móðurlífsuppskurðar, var áður bæði
orðin móðir og amma. Við aðgerðina upp-
götvuðu læknarnir sér til mikillar undrunar,
að hún var vanfær.
Frú Lena varð bæði glöð og óttaslegin, er
hún heyrði úrskurð læknisins, sem að fram-
an greinir, og sagði: „Af hverju voruð þið
ekki búnir að rannsaka áður, hvort ég væri
ófrísk? Og hvers vegna tókuð þi^ barnið
ekki, þegar þið skáruð mig upp? Það endar
með því, að ég verð aftur amma!”
Dr. Vagn Sele ríkislæknir sagði: „Fæðing
þessa barns í sumar táknar norrænt met“
— Evrópumet er það hins vegar ekki, því að
elzta kona, sem eignazt hefur barn í Hollandi,
var þá 56 ára gömul.
Hollenzkur kynsjúkdómafræðingur segir:
„Fáfróðir eiginmenn stagast á því við konur
sínar, að þær geti ekki átt börn, þegar þær
séu orðnar fimmtugar, þótt þær hafi enn á
klæðum”. — Sænskir læknar segja hins veg-
ar, að það stafi einungis af „þreytu eigin-
mannanna”, hve fáar konur eignist börn á
sextugsaldri. Sannleikurinn er sá, að fæðing-
araldur kvenna hefur hækkað að mun sam-
fara nútíma lifnaðarháttum.
Nú spyrja menn: Rjúka löggjafar landanna
ekki upp til handa og fóta og setja lagabann
við því, að konur eignist böm eftir fimmtug-
asta afmælisdag sinn? Það væri í fullu sam-
ræmi við hina úreltu löggjöf um aldurstak-
mark opinberra embættismanna, sem gerist
fáránlegri með ári hverju vegna síhækkandi
starfsgetualdurs þeirra með bættum lífsskil-
yrðum og stóraukinni heilsugæzlu.
Fágætur félagsskapur
í ÁRSBYRJUN 1969 var haldið nýstárlegt
þing í litlum og fögrum ferðamannabæ, Mart-
in Brod, í Júgóslavíu. Driffjöðrin í þinghald-
inu var skólastjóri einn í bænum Nedeljko
Sobot. Hann er formaður piparsveinafélags
bæjarins, en það nefnist á júgóslavnesku
Bulc na Uni. Félag þetta hafði boðað allt
ógift fólk í landinu eldra en 25 ára, sem
koma vildi, til þingsins, en til þess að öðlast
pipar-nafngift í Júgóslavíu verður fólk að
hafa náð þeim aldri.
Margir hristu höfuðið yfir þessu þinghaldi,
en urðu þó jafnframt æði forvitnir, þegar
þeir heyrðu, að þangað hefðu komið fulltrú-
ar frá 120 piparsveinafélögum í landinu. Þing-
fulltrúarnir, sem bæði voru konur og karl-
ar, virtust eiga margs konar erindi á sam-
kunduna, því að þar voru rædd skattamál,
húsnæðismál, réttindamál einhleypinga auk
ýmiss konar viðkvæmra einkamála, eins og
gefur að skilja.
Þingfulltrúarnir reyndust frjálslyndir og við-
ræðugóðir, jafnvel aldursforsetinn, Melenko
Sekulic, sem orðinn var 77 ára. Á þinginu
var fólk einhuga um að neyta allra tiltækra
ráða til að fá þingfulltrúana til að giftast.
Félagsgjöld meðlima klúbbanna ýta undir þá
viðleitni. Þau hækka nefnilega með aldri
meðlimanna. Þeim er ekki varið til skógar-
ferða, heldur giftingarstyrkja. Þegar félags-
maður gengur í hjónaband, fær hann (eða
hún) sem svarar um 6000 ísl. kr. (gengi í
apríl 1969). Oft ber það við, að félagar gift-
ast, enda er fólk óspart eggjað á það.
Meðan þingið í Martin Brod fór fram, var
haldinn þar svellandi dansleikur á hverju
kvöldi, og skemmti fólk sér þá svo vel, að
árangurinn varð: 10 giftingar. Geta menn af
framan skráðu auðveldlega reiknað út. hvað
það muni hafa kostað hinn ágæta félags-
skap Buk na Uni.
^ SEGIÐ vinum yðar frá SAMTÍÐINNI.
VlÐ greiðum án nokkurs viðbótariðgjalds aukabætur til þeirra, sem slasast alvarlega þrátt
fyrir notkun öryggisbelta. Fram yfir aðrar tryggingar greiðum við 50.000 kr. við dauðsfali
og allt að 150.000 kr. við örorku. Kynnið yður þessa mikilsverðu nýjung í ísl. tryggingum.
ÁBYRGÐ H.F.
— TRYGGINGAFÉLAG FYRIR BINDINDISMENN —
Skúlagötu 63 — Reykjavík — Símar: 17455 og 17947.