Samtíðin - 01.05.1971, Blaðsíða 7

Samtíðin - 01.05.1971, Blaðsíða 7
4. blaft 38. árg. I\lr. 372 lUaí 1971 SAMTfÐIIM HEIIUILISBLAÐ TIL SKEMMTUIMAR OG FRÓÐLEIKS SAMTíÐIN kemur út mánaðarlega nema í januar og ágúst. Ritstjóri og útgefandi: Sigurður Skúlason, Reykjavík, simi 12526, pósthólf 472. Afgreiðslusími 18985. Árgjaldið 250 kr. (erlendis 300 kr.), greiðist fyrirfram. Áskriftir miðast við áramót. Áskriftum og áskriftargjölduin veitt móttaka í Rókaverzlun ísafoldar, Austurstræti 8. — Félagsprentsmiðjan hf. Nákvæmni tækninnar virðist takmarkalaus BÖRN 20. aldarinnar búa við eindæma ná- kvæmni. Svo er tæknikunnáttunni fyrir að hakka. Þetta kemur glöggt fram í úrsmið- inni. Þar er fylgzt með tímanum af ótrúlegri nákvæmni. Úrsmiðirnir hafa tekið sjálfvirkni elektróník í þjónustu sína, og eftirspurnin eftir hvers konar úrimi og klukkum er gífur- leg. Margt nútimafólk vill helzt hafa klukkur sem víðast: í sérliverju íbúðarherbergi, við hakarofna, i bilum og ferðatöskum, en auk bess eru vekjarakhikkur í litlum handtöskum kvenþjóðarinnar. Hraði aldarinnar og þörfin á gernýtingu tímans krefst alls þessa. Gerðar er« mikiar fegurðarkröfur til armbandsúra sr>yrtilegs tizkufólks. Arið 1968 voru smíðaðar rösklega 150 millj- ónir úra í veröldinni. Af ölium þeim aragrúa voru 67 milljónir smíðaðar hjá einni smáþjóð, Svisslendingum. Sú þjóð er löngu heimsfræg °rðin fyrir dugnað, iðjusemi og hvers konar nákvæmni. 1 Sviss starfa sem stendur meir en 90 þúsundir manna að úrsmíði. Þar eru dag hvern fullgerð að meðaltali 9 úr á sekúndu. ^visslendingar eru að kalla má allsráðandi í hinum hárnákvæma úraiðnaði heimsins og eru óþreytandi í leit sinni að nýjungum og endur- bótum á því sviði. Nýjasta nýtt í svissneskri nt'smíði eru elektrónisk kvarz-úrverk, er ganga ,neð nákvæmni, sem miðast við 1/100 úr sek- llndu á dag, og kjarnorku-úrverk, sem ganga nreð nákvæmni, er nemur 1/1.000.000 xir sek- úndu. Sá, sem eignast elektróniskt kvarzúr, þarf ekki að stilla það næstu tíu árin, því að það breytir sér ekki nema í mesta lagi um mínútu á þvi tímabili. Svo langt eru Sviss- lendingar komnir í úraiðnaðinum, að kjarn- orkuúr þeirra seinka sér aðeins um eina sek- lindu á 3000 árum! Gallinn er aðeins sá, að þessi frábæra úrategund er enn of dýr til þess, að allur þorri fólks hafi efni á að eignast hana. Úr því hefur verið bætt með framleiðslu elek- trónisku kvarzúranna, sem áður var getið. Svisslendingum hefur fjTÍr löngu tekizt að smíða armbandsúr, sem eru að því leyti sjálf- virk, að aldrei þarf að draga þau upp. Hand- hreyfingarnar orka þannig á þau, að þau draga sig upp sjálf. Þessi þægindi hafa ekki enn náð til annarra sigurverka en armbandsúra. En nýjustu fregnir að sunnan lierma, að nú hafi svissneskri úraverksmiðju tekizt að búa til klukku, sem aldrei þurfi að draga upp. Loftið í stofunni, þar sem hún er höfð, sér fyrir því með tilstyrk gashylkis, sem nemur mismun stofuliitans á degi og nóttu og orsakar hreyf- ingu, er dregur klukkuna upp, án þess að mannshöndin þurfi að koma þar til. Vonandi verður þessi mikla tæknimenning Svisslendinga til þess að örva fólk til aukinnar nákvæmni og auka virðingru þess fyrir gildi líðandi stundar, sem oft er sóað í hangs og svall. En óstundvísi og léleg nýting vinnutím- ans hafa löngum þótt bagalegar meinsemdir í vanþróuðum þjóðfélögum og þar, sem flest virðist vera & liálfgerðu gelgjuskeiði.

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.