Samtíðin - 01.05.1971, Blaðsíða 13
SAMTÍÐIN ■
9
VETRARÆVINTÝRIÐ
er orðii að veruleika
~S>amtaí viÉ ~S)teut <jCc
amíóon
^orótfóra
1 SAMTALI, sem við áttum við Örn Ó.
Johnson, forstjóra Flugfélags Islands hf.,
í ársbyrjun 1963, spurðum við m. a., hvort
hann teldi ekki tilvalið að skipuleggja
vetrarleyfisferðir með flugvélum félags-
ins til Suðurlanda til að auka vetrarstarf-
semi þess og veita íslenzku fólki jafn-
framt eins konar sumarauka. Við álitum
nefnilega, að miklu viturlegra væri, að Is-
lendingar leituðu sér livíldar og hressing-
ar erlendis á vetrum en á sumrum, þegar
tíðarfai’ið er langbezt hér á landi.
örn ó. Johnson sagði: „Islendingar eru
farnir að ferðast miklu meira að sumar-
lagi cn áður. Það er skoðun mín, að ráð-
legast væri að færa sumarleyfin yfir á
veturinn, þegar því yrði við komið, og fá
sér kærkominn sumarauka með því að
fljúga í ódýrum hópferðum til Suður-
landa vetrarmánuðina. Þetta gera hinar
Norðurlandaþjóðirnar í stórum stíl. Norð-
urlandabúar halda t. d. jólin hópum sam-
an suður á Mallorcu. Ég er sannfærður
um, að þess verður skammt að bíða, að
Islendingar fari að dæmi þeirra. Hvað
flugið snertir, yrði langhagkvæmast og
ódýrast, að liver hópurinn tæki við af öðr-
um eftir hæfilega langa dvöl í góðviðrinu
þarna suður frá.“
Nú er þessi hugmynd orðin að veru-
leika, og ferðaskrifstofan CRVAL, sem Hf.
Eimskipafélag Islands og Flugfélag Is-
lands hf. stofnuðu í febrúar 1970, skipu-
fagði sl. vetur flugferðir með íslenzka
farþega til Kanaríeyja. Við hittum for-
stjóra Orvals, Stein Lárusson, nýlega og
áttum við hann eftirfarandi samtal.
VIÐ: „Orval hefur skipulagt ferðir til
Kanaríeyja í vetur og séð fólki fyrir dvöl
þar.“
STEINN: „Skömmu eftir að Úrval tók
til starfa, hafði Flugfélag Islands áliuga
á, að skipulagðar yrðu ferðir til Suður-
landa til að veita fólki kost á vetrarorlofi
i blíðviðrinu suður þar. Þessar ferðir hóf-
ust skömmu fyrir síðustu áramót, og voru
síðan farnar samtals 9 ierðir til Kanarí-
eyja. Flugfélagið hafði allan fjárhagsleg-
an vanda af þessum ferðum, en öllum
ferðaskrifstofum hér var gefinn kostur á
að selja farmiða til að örva söluna á þess-
um árstíma, sem verið hefur fremur dauf-
ur ferðatími. Segja má, að þetta framtak
hafi tekizt vel, og framhald er áformað á
þessum vetrarferðum.“
VIÐ: „Ymsir hafa látið mjög vel af
þessum ferðum í okkar eyru. Eru Kanarí-
eyjar ekki að verða paradís ferðafólks?“
STEINN: „Vissulega. Veður er gott þar
allt árið, meðalhitinn frá mánuði til mán-
aðar 18-27° og hafgolan hressandi. Auk
einkar þægilegrar dvalar á Gran Canaria,
eyjunni, sem ferðafólkið dvelst á, er auð-
velt að skreppa til nálægra eyja og til
Spænsku Sahara.“
VIÐ; „Hvað er fleira að frétta af starf-
semi Úrvals?“
STEINN: „Úrval hefur nú starfað eitt
ár og hefur reynt að auka þjónustu sína
jafnt og þétt. Síðastliðið haust fórum við