Samtíðin - 01.05.1971, Qupperneq 15

Samtíðin - 01.05.1971, Qupperneq 15
SAMTÍÐIN 11 SVEITASTÚLKA í LUNDÚNUM Saga eftir C. BROWIM JENNÝ var hvorki feit né þrekvaxin, en ef til vill í góðum holdum, eins og hún amma hennar mundi hafa komizt að orði. Hún var rjóð í kinnum og með spékoppa. Það var auð- séð, að hún stundaði mikið útivist í hreinu og hollu lofti. Hún var fallega útitekin eftir blessað sólskinið, og holla mataræðið, sem hún amma hennar sá henni alltaf fyrir — eggin, smjörið og grænmetið — hafði einnig sín áhrif. Foreldrar Jennýjar voru dánir, en amma hennar hafði tekið hana að sér og reynzt henni frábærlega vel. Amma var ekki einungis skynsöm kona, sem kunni skil á öllu í sveitinni; hún fvlgdist líka með tímanum. Velferð Jennýjar lá henni Þungt á hjarta. „Jenný,“ sagði hún stundum, ,tímarnir breytast og unga fólkið líka. Við, eldra fólkið, eigum örðugt með að sætta okkur við það, en við vitum, að svona verður það að vera. Eiginlega áttu enga framíð hér í sveitinni.“ „En hér finnst mér nú svo indælt að vera,“ anzaði Jenný. „Rétt er það, en þú átt nú samt ekki að vera hér,“ sagði amma hennar. Og hún kom Því til leiðar, að Jenný fór í iðnskóla í næstu borg. Þangað ók Jenný tvisvar í viku að læra hraðritun, bókfærslu og vélritun. Þegar hún var átján ára, sótti hún um starf, sem auglýst hafði verið - ekki skemmra að heiman frá henni en í Lundúnum. Þar átti hún að verða skrifstofustúlka á vélritunar- skrifstofu blaðs. AMMA hennar sagði, að þetta væri vel til fundið. „Farðu bara ósmeyk til borgarinnar,“ sagði hún, „en mundu að gæta heilsunnar vel. j>ú ert stálhraust stúlka, það er mér kunnugt um. Glataðu ekki heilsunni í stór- borginni. Það væri bágt, ef roðinn hyrfi af blessuðum kinnunum þínum.“ skrifstofunni í Lundúnum kynntist Jenný hárri, grannri og ljóshærðri stúlku, sem hét Móna Fletcher. Hún var tveim árum eldri en Jenný og miklu veraldarvanari. Jenný var sett við hliðina á Mónu, og hún dáðist að Mónu, leit upp til hennar og var upp með sér af að vingast við hana. Henni fannst Móna hafa svo vel vit á að klæða sig og hana lang- aði yfirleitt til að líkjast henni. Móna lét sér annt um þetta blessað sveitabam og tók Jennýju þegar í stað undir vemdarvæng sinn. „Elsku Jenný min“, sagði Móna, „þú getur nú alls ekki verið þekkt fyrir að vera í þess- um kjól hér í borginni. Uppi í sveit getur hann sjálfsagt gengið, en hérna — í Lundún- um — verður maður nú að fylgjast með tízk- unni.“ Og um leið og hún sagði þetta, strauk hún nærskorinn og gljáandi nælonkjólinn sinn. Að tveim mánuðum liðnum tókst svo til, að þær Jenný og Móna urðu sambýlisstúlkur í lítilli íbúð. Það var mjög vel til fundið, og allt lék í lyndi, þar til einn góðan veðurdag, að Brett Hunt kom til sögunnar. Brett Hunt var ungur blaðamaður, sem vann hjá „Dagpóstinum". Hann var laglegur, beinvaxinn og dökkhærður og hvort tveggja í senn: fremur unglingslegur og þróttmikill á að líta. Augun voru dökk og skær og augna- ráðið vökult. Hann var langstígur og göngu- lagið markvisst, og þegar honum var mikið í hug. æddi hann um skrifstofuna eins og hvirfilbylur. Oftast var hann önnum kafinn. Jennýju, sem dáði hann í kyrrþey, virtist hann alls ekki sjá en Mónu gaf hann hýrt auga. Þegar hann átti leið um stóru skrifstofuna, þar sem stúlkumar sátu, gaf hann sér oftast tíma til að staðnæmast við skrifborð Mónu og klanpa á axlirnar á henni eða strjúka ljóst hár henn- ar. Jenný horfði á þetta og öfundaðist yfir því. Hún óskaði þess þá með sjálfri sér, að hún væri orðin éíns dömuleg og vinkona hennar og að glæsimennið Hunt klannaði stöku sinnum á axlirnar á henni sjálfri, brosti til hennar eða bvði henni sígarettu. Kvöld eitt sagði Jenný við Mónu: „Það er annars bráðhuggulegur maður hann Brett Hunt...“ „Jæja, finnst þér það?“ svaraði Móna. —

x

Samtíðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.