Samtíðin - 01.05.1971, Page 35

Samtíðin - 01.05.1971, Page 35
SAMTÍÐIN 31 ÞEIR VITRU SÖGÐU I____f____________ ÞÓRARINN BJÖRNSSON: „Idealism- inn er að hverfa. Æskufeimnina vantar. Sjarmi feimninnar er, að menn gangi með hiki á vit lífsins, og í því felst lotning- fyrir lífinu, sem hverfur hjá þeim frökku“. F. CRANE: „Framkvæmdasemin er til orðin úr þrem eiginleikum: tilgangi, verk- hæfni og þolinmæði. Hún er sá mæli- kvarði á manninn, sem segir til um, hve stór sál hans er. Hún er hæfileiki hans til að notfæra sér ástríður sínar, samúð, andúð, venjur, reynslu, uppeldi, sál, lík- ama og tilfinningar, en láta ekki allt þetta drottna yfir sér“. V AUVENARGUES: „Stöðuglyndi er óvinur ástarinnar“. BALZAC: „Ástin er konunni það, sem sólin er blóminu“. SÓKRATES: „Talaðu, svo ég geti séð þig“. HILAIRE BELLOC: „Maður, sem talar mikið, segir margt fánýtt, og maður, sem talar lítið, segir fátt nýtilegt“. X: „Þrotlaust strit skapar lúna eigin- menn — og auðugar ekkjur“. ROBERT LYND: „Eitt vitum við ör- ugglega um vel klædda konu: að hún hef- ur vandað sig, og að vanda sig styrkir skaphöfnina“. FERÐAMAÐUR sagði: „Nýlega var ég í New York, og þar sá ég framtíðina. Síð- an var ég í Indlandi, og þar sá ég fortíð- ina. Nú finnst mér þetta orðið ákaflega kostulegt ferðalag“. NIETZSCHE: „Spurðu sjálfan þig, áð- ur en þú kvænist, hvort gaman muni verða að tala við þá útvöldu alla ævi. Allt annað í hjónabandinu er minna virði. Mestallur tíminn fer í samtal“. * A RÓKAMARKAÐINUM Jakob Jónasson: Þar sem elfan ómar. Skáld- saga. 240 bls., íb. kr. 445.00. Jack London: Þrjú hjörtu. Skáldsaga. 338 bls., íb. kr. 360.00. Ritsafn Guðmundar Daníelssonar, 13 bindi, íb. kr. 4060.00. Sveinn Víkingur: Vísnagátur III (50 gátur í ljóðum). 60 bls., ób. kr. 110.00. Páll Steingrímsson: Vestmannaeyjar. Saga Eyj- anna í myndum og máli. (Litmyndir). Bókin er á íslenzku, ensku og þýzku. 59 bls., ób. kr. 500.00. Gunnar G. Scliram: Læknar segja frá. Úr lifi og starfi átta þjóðkunnra lækna. Með mynd- um. 216 bls.', íb. kr. 620.00. Cosmo Hamilton: Hneyksli. Skáldsaga. 276 bls., íb. kr. 345.00. Mennirnir í brúnni, II. bindi. Þættir af starf- andi skipstjórum. Með myndum. Skráð hafa: Ásgeir Jakobsson, Guðmundur Jakobsson og Jón Kr. Gunnarsson. 154 bls., íb. kr. 625.00. - Þorsteinn Matthíasson: Hrafnistumenn, I. bindi. Minningar vistmanna á Hrafnistu. Með myndum. 174 bls., íb. kr. 535.00. Þorvarður Helgason: Eftirleit. Skáldsaga. 282 bls., íb. kr. 530.00. Jón Óskar: Hernámsáraskáld. Minnisatriði um líf skálda og listamanna í Reykjavík, 248 bls., ób. kr. 440.00, íb. kr. 590.00. Bergsveinn Skúlason: Áratog. Þættir úr at- vinnusögu Breiðfirðinga. Með myndum. 302 bls., íb. kr. 625.00. Oscar Clausen: Aftur í aldir, II. bindi. Sögur og sagnir úr ýmsum áttum. 222 bls., íb. kr. 600.00. Rósa Þorsteinsdóttir: Hulinn harmur. Ástar- saga. 192 bls., íb. kr. 445.00. Útvegum allar fáanlegar bækur. Kaupið bækurnar og ritföngin þar, sem úrvalið er mest. Sendum gegn póstkröfu um Iand allt. Bóhaverslun ÍSAF'OhÐAH Austurstræti 8 — Reykjavík — Sími 1-45-27

x

Samtíðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.