Fréttablaðið - 09.07.2010, Qupperneq 6
6 9. júlí 2010 FÖSTUDAGUR
Magnus Ranstorp, sérfræðingur í hryðju-
verkastarfsemi við Försvarshögskolan í
Stokkhólmi, segir ekki koma sér á óvart
að hryðjuverkamenn hafi hreiðrað um
sig í Noregi.
„Ég held að hryðjuverkamennirnir
hafi hugsað sem svo að Noregur væri
álitlegur staður til að starfa á. Engin
hryðjuverkastarfsemi hefur verið þar
áður, þetta er stórt land og það er
fámennt. Ég held hins vegar að þeir hafi
misreiknað sig þar sem það er ekki bara
norska leyniþjónustan sem þeir þurfa að glíma
við, heldur á hún í nánu samstarfi við þá banda-
rísku, bresku, þýsku og fleiri leyniþjónustur. Því er
eftirlit þar gott,“ sagði Ranstorp en bætti því við
að fleiri hryðjuverkamenn gætu kosið að starfa á
Norðurlöndunum.
Spurður hvort hryðjuverkamenn kynnu
að líta til Íslands sagði Ranstorp: „Ég held
að Íslendingum stafi meiri hætta af skipu-
lagðri glæpastarfsemi en það er vissulega
hætta á því að Ísland verði viðkomustað-
ur fyrir hryðjuverkamenn á leið til annarra
landa.“
Ranstorp telur ekki endilega nauðsyn-
legt fyrir Íslendinga að auka eftirlit með
mögulegri hryðjuverkastarfsemi. Þar sem
hefðbundin löggæsla virðist skila árangri
hér, þá sé það óþarft. Hann leggur enn
fremur áherslu á að Íslandi sé sennilega minni
hætta búin en hinum Norðurlöndunum þar sem
landið er eyja og nokkuð fjarri öðrum löndum.
Ísland þurfi hins vegar þrátt fyrir það að huga vel
að öryggi á flugvöllum landsins og við þau sendi-
ráð sem hér eru, helst það bandaríska. - mþl
Völdu Noreg vegna fámennis
STJÓRNSÝSLA Tryggvi Gunnarsson,
umboðsmaður Alþingis og einn
þriggja manna í rannsóknarnefnd
Alþingis, beinir hvössum spurn-
ingum til Seðlabanka og Fjár-
málaeftirlitsins í bréfi sem hann
sendi þeim nýlega. Tilefnið er til-
mælin sem stofnanirnar sendu til
fjármálafyrirtækja í framhaldi af
dómi Hæstaréttar um gengistryggð
bílalán.
Umboðsmaður Alþingis telur að
Fjármálaeftirlitið og Seðlabankinn
þurfi að skýra á hvaða lagagrund-
velli þau tilmæli byggjast. Hann
óskar að stofnanirnar tilgreini á
hverju staðhæfingar þeirra séu
byggðar um „að „óvissa“ ríki um
lánakjör þeirra lánasamninga sem
tilmælin lúta að með tilliti til dóma
Hæstaréttar, sérstaklega um vaxta-
viðmið.
Einnig dregur hann í efa þau
lagarök sem komið hafa frá stofn-
ununum vegna málsins en bendir
þeim jafnframt á að þær þurfi ekki
að svara spurningum hans verði til-
mælin dregin til baka fyrir 16. júlí
næstkomandi, en það er sá frestur
sem umboðsmaður Alþingis veitir
Seðlabanka og Fjármálaeftirlitinu.
- pg
Umboðsmaður Alþingis spyr Seðlabanka og FME um tilmæli vegna gengislána:
Dregur lagagrundvöll í efa
UMBOÐSMAÐUR Tryggvi Gunnarsson
er snúinn aftur til starfa sem Umboðs-
maður Alþingis eftir að hafa setið í
Rannsóknarnefnd Alþingis.
MAGNUS
RANSTORP
ATVINNA Skapa á ný störf fyrir
100 ungmenni í Garðabæ í sumar.
Samningur um atvinnuátakið
var undirritaður af hálfu bæjar-
stjórnar Garðabæjar og Skóg-
ræktarfélags Garðabæjar á
þriðjudag. Samningurinn felur
í sér að koma á fót ýmiss konar
ræktunar- og umhirðuverkefnum
næstu tvo mánuði fyrir atvinnu-
laust ungt fólk í bænum.
Samningurinn er hluti af sam-
eiginlegu verkefni sem Skóg-
ræktarfélag Íslands í samvinnu
við samgönguráðuneytið hóf á
síðasta ári og var hugsað sem
verkefni til þriggja ára. - sv
Skógrækt í Garðabæ:
Samstarf um
100 ný störf
ÁNÆGÐ Barbara Stanzeit, Gunnar
Einarsson og Magnús Gunnarsson við
undirritun samningsins.
MYND/BRYNJÓLFUR JÓNSSON
NOREGUR Þrír menn voru handteknir í Noregi
og Þýskalandi í gær grunaðir um að hafa lagt
á ráðin um stóra hryðjuverkaárás. Mennirnir
eru taldir tengjast Al Kaída hryðjuverkasam-
tökunum.
Yfirvöld og lögregla í Noregi og Bandaríkj-
unum hafa unnið náið saman að málinu. Fylgst
hafði verið með mönnunum þremur í meira en
ár. Talið er að mennirnir hafi verið að skipu-
leggja hryðjuverkaárásir með sprengjum líkt
og þeim sem voru notaðar í misheppnuðum
árásum í New York og í Manchester á Eng-
landi. Talið er að málin tengist með einhverj-
um hætti. Ekki hefur verið gefið upp hvar
mennirnir ætluðu sér að fremja hryðjuverkin.
Tveir mannanna voru handteknir í Noregi
og einn í Þýskalandi en nákvæmari staðsetn-
ingar hafa ekki verið gefnar upp. Allir menn-
irnir búa í Ósló. Einn þeirra er 39 ára norskur
ríkisborgari sem er af Uighur-ættum í Kína og
hefur búið í Noregi frá árinu 1999. Annar er
37 ára gamall Íraki sem fékk landvistarleyfi
í Noregi af mannúðarástæðum og sá þriðji er
31 árs Úsbeki sem fékk landvistarleyfi af fjöl-
skylduástæðum. Fregnir herma að árásin hafi
verið skipulögð af Salah al-Somali, fyrrum
yfirmanni hjá Al Kaída, sem var drepinn í loft-
árás CIA í fyrra. Hann er einnig talinn vera
höfuðpaur í árásinni á neðanjarðarlestir í New
York í fyrra.
Ákveðið var að handtaka mennina nú þar
sem alþjóðlegir fjölmiðlar hefðu komist á snoð-
ir um málið. Það hefði getað eyðilagt fyrir
rannsókninni og var því ákveðið að handtaka
mennina nú.
Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs,
hvatti Norðmenn til þess að dæma ekki stóra
hópa fólks vegna handatakanna. „Það eru ein-
staklingar sem eru ábyrgir fyrir þessum glæp-
um. Það er alltaf slæmt að dæma heilan hóp af
fólki vegna gjörða einstaklinga.“
Í yfirlýsingu frá skrifstofu ráðherrans sem
gefin var út seinna um daginn var lögð áhersla
á það að málið væri enn til rannsóknar og ekki
væri búið að kveða upp úr um sekt mannanna.
magnusl@frettabladid.is, thorunn@frettabladid.is
Þrír Óslóarbúar handteknir
vegna hryðjuverkaáforma
Tveir menn voru handteknir í Noregi og einn í Þýskalandi í gær grunaðir um skipulagningu hryðjuverka-
árása. Taldir tengjast Al Kaída. Forsætisráðherra Noregs lagði áherslu á að dæma ekki hópa vegna málsins.
BLAÐAMANNAFUNDUR Í GÆR Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, og Knut Storberget, dómsmálaráð-
herra, greina frá handtökum þremenninganna. NORDICPHOTOS/AFP
Lenti með veikan farþega
Farþegaþota, af gerðinni Airbus 333,
á leið frá Amsterdam til Detroit í
Bandaríkjunum þurfti að lenda á
Keflavíkurflugvelli um hádegisbil í
gær. Um borð var veikur farþegi sem
þurfti að komast undir læknishendur
að sögn Hjördísar Guðmundsdóttur,
upplýsingafulltrúa Flugstoða.
SAMGÖNGUR
FJÁRMÁL Andvirði gullforða þess
sem geymdur er í Seðlabankan-
um er orðinn yfir 10 milljarða
króna virði í fyrsta sinn í sög-
unni. Þetta kemur fram í efna-
hagsreikningi Seðlabankans sem
birtur er í hagtölum bankans.
Gullforðinn stóð í nákvæmlega
10.113 milljónum króna í lok júní
og hafði hækkað um 167 milljónir
frá fyrra mánuði. Ástæðan fyrir
hækkuninni er þær verðhækkan-
ir sem verið hafa á heimsmark-
aðsverði á gulli undanfarnar
vikur og mánuði.
Metgullforði Seðlabankans:
10 milljarða
gullforði
RÍKISLÖGREGLUSTJÓRI Kærðum
málum til efnahagsbrotadeildar
ríkislögreglustjóra hefur fjölgað
um 126 prósent á liðnum tveim-
ur árum. Um er að ræða tímabil-
ið frá því fór að halla undan fæti í
efnahagslífinu frá ársbyrjun 2008
til 2009. Þetta kemur fram í árs-
skýrslu ríkislögreglustjóra fyrir
árið 2009.
Kærð mál til efnahagsbrota-
deildar á árinu 2007 voru 59, á
árinu 2008 voru þau 90. Á árinu
2009 voru þau 133.
Þá segir í skýrslunni að krafa
um aðhald í ríkisfjármálum hafi
valdið því að ekki var hægt að
bregðast við þörfum deildarinn-
ar.
Afleiðing þessa er að mál hafa
safnast upp í nokkrum mæli. Á
árinu 2009 voru gefnar út fleiri
ákærur en nokkurn tíma áður í
sögu deildarinnar, eða 47.
Verkefni efnahagsbrotadeildar
leiða mörg hver af hruni banka-
kerfisins með einum eða öðrum
hætti. Má þar nefna stóraukinn
fjölda alvarlegri skattsvikamála,
brot gegn gjaldeyrishöftum sem
leiddu af bankahruninu og mik-
inn fjölda skilasvikamála vegna
undanskots eigna við gjaldþrot.
Hluti þessara mála, eins og þau
sem snerta gjaldeyrishöftin, eru
bein afleiðing af hruninu. - jss
Metfjöldi útgefinna ákæra hjá efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra:
Málum fjölgaði um 126 prósent
RÍKISLÖGREGLUSTJÓRI Efnahagsbrotadeild embættisins hefur ekki haft undan.
Viltu að gamli söluturninn í
Mæðragarðinum verði fluttur á
Lækjatorg?
Já 60%
Nei 40%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Óttast þú að hryðjuverk kunni
að verða framin á Norðurlönd-
um?
Segðu skoðun þína á visir.is.
KJÖRKASSINN