Fréttablaðið - 09.07.2010, Side 8
8 9. júlí 2010 FÖSTUDAGUR
www.myllan.is
Búðu þig undir góðar stundir
Kauptu beyglur frá Myllunni
Spurðu um beyglur frá Myllunni í versluninni þinni
Beyglurnar frá Myllunni eru bragðgóðar og henta við
öll tækifæri. Eigðu þær alltaf í frystinum. Spurðu um
beyglur í næstu búð. Taktu með þér poka til að eiga
núna. Berðu beyglur á borð fyrir gesti eða smyrðu
ljúffenga beyglu fyrir svanga krakka. Betri helming-
urinn kann líka að meta volga beyglu beint í rúmið.
Mundu eftir beyglunum frá Myllunni.
Beyglurnar frá Myllunni
eru til í þremur gerðum:
Fínar beyglur, beyglur með
kanil og rúsínum og
beyglur með hörfræjum,
sesam og birki.
Hver annarri betri!
Nú fæst 50% meira af beyglum
á sama verði og áður.
Gríptu með poka af bey
glum
í búðinni, í dag!
Fylgstu með okkur á:
AKUREYRI Nýr meirihluti bæjar-
stjórnar Akureyrar nýtur aðstoð-
ar fimm einstaklinga sem ekki
tengjast meirihlutanum við ráðn-
ingu nýs bæjarstjóra.
Eftir síðustu sveitarstjórnar-
kosningar náði L-listinn hreinum
meirihluta og segir Oddur Helgi
Halldórsson, fyrrverandi odd-
viti flokksins og núverandi bæj-
arfulltrúi, hópinn, sem kallaður
er hulduherinn, vera leynihóp og
hann tákni þverskurðinn af þjóð-
félaginu.
„L-listinn er mjög óvenjulegt
framboð,“ segir Oddur. „Við vild-
um fá bæjarstjóra sem er sam-
nefnari fyrir alla bæjarbúa.
Hulduherinn var valinn af Capa-
cent, ekki okkur sjálfum.“
Leynihópurinn samanstendur
af fimm manns úr bænum, hver
þeirra er fulltrúi á sínu sviði:
í Háskólanum, stjórnsýslunni,
menningunni, frá atvinnurekend-
um og verkamönnum.
Spurður hvort nafnleynd hóps-
ins sé ekki þversögn við opna og
gegnsæja stjórnsýslu, segir Oddur
það geta vel verið.
„Ég leyfði þeim að ráða þessu
sjálfum,“ segir hann. „Þetta er
alfarið í þeirra höndum.“
Fimmmenningarnir tóku við-
töl við alla 53 umsækjendur, gáfu
þeim númer og létu bæjarráð vita
hvort mælt væri með viðkomandi
eður ei. Hversu mikinn þunga
hópurinn hefur í ákvörðuninni er
ekki ljóst. Ráðningin verður til-
kynnt á næstu dögum.
Fréttablaðið hafði samband við
oddvita Samfylkingarinnar og
Vinstri grænna, sem ekkert höfðu
heyrt af málinu.
sunna@frettabladid.is
Fulltrúar íbúa
taka viðtöl við
bæjarstjóraefni
Meirihluti bæjarstjórnar Akureyrar fékk Capacent
til að velja fimm manns úr ólíkum áttum til að að-
stoða við ráðningu bæjarstjóra Akureyrar.
Alls sóttu 53 um starf bæjarstjóra Akureyrar. L-listinn fékk hreinan meirihluta
eftir kosningarnar í vor og var eitt af stefnumálum flokksins að ráða faglegan
bæjarstjóra. Ýmsir þekktir voru á meðal umsækjenda, þar á meðal Sigrún
Elsa Smáradóttir fyrrverandi borgarfulltrúi í Reykjavík, Gísli Tryggvason tals-
maður neytenda, Páll Magnússon bæjarritari í Kópavogi, Ragnar Jörundsson
fyrrverandi bæjarstjóri Vesturbyggðar, Ólafur Örn Ólafsson fyrrverandi bæjar-
stjóri Grindavíkur, Dofri Hermannsson fyrrverandi borgarfulltrúi í Reykjavík,
Einar Vilhjálmsson viðskiptafræðingur og spjótkastari og Guðrún Frímanns-
dóttir fréttamaður.
53 sóttu um bæjarstjórastöðu
UMFERÐ Þrír létust í umferðarslys-
um fyrstu fjóra mánuði ársins en
fjórir á sama tíma í fyrra. Umtals-
vert færri slösuðust alvarlega í
umferðinni hér á landi á tímabilinu
samanborið við í fyrra. Samkvæmt
slysaskráningu Umferðarstofu
urðu 39 alvarleg slys fyrstu fjóra
mánuði ársins í ár og í þeim slösuð-
ust 41. Á sama tímabili í fyrra urðu
50 alvarleg slys og 54 slösuðust en
samkvæmt þessu fækkar alvarlega
slösuðum um fjórðung.
Ekki er mikill munur á fjölda
lítið slasaðra fyrstu fjóra mánuði
áranna 2010 og 2009 en þeim virð-
ist fjölga um rétt rúmlega eitt pró-
sent. Fjöldi lítið slasaðra á þessu
tímabili ársins 2009 var 345 en nú
í ár er fjöldinn 349.
Slysaskráning Umferðarstofu
byggist á skýrslum lögreglu sem
fengnar eru úr gagnagrunni ríkis-
lögreglustjóra. -sbt
Færri alvarleg umferðarslys en í fyrra:
Þrjú banaslys fyrstu
fjóra mánuði ársinsHÖNNUN Niðurstaða hönnunar-samkeppni um byggingu nýs
Landspítala og húsnæðis fyrir
heilbrigðisvísindasvið Háskóla
Íslands verður kynnt í dag
klukkan ellefu á Háskólatorgi.
Fimm hönnunarteymi tóku þátt
í samkeppni um frumhönnun
nýja spítalans og skiluðu tillög-
um sínum 10. júní sl. til Ríkis-
kaupa. Undanfarinn mánuð
hefur níu manna dómnefnd, auk
óháðra ráðgjafa, farið yfir til-
lögurnar.
Samkeppnin tók annars vegar
til áfangaskipts skipulags lóðar
Landspítala við Hringbraut í
heild og hins vegar til útfærslu
á 1. áfanga verkefnisins, frum-
hönnunar 66 þúsund fermetra
nýbyggingar spítalans og 10 þús-
und fermetra byggingar fyrir
heilbrigðissvið H.Í. -sbt
Niðurstaða hönnunarkeppni:
Nýr Landspítali
kynntur í dag
1 Hver stóru bankanna þriggja
stendur best að vígi að mati
Bankasýslu ríkisins?
2 Í hvaða tveimur bæjarfélög-
um hefur Gunnar I. Birgisson
sótt um bæjarstjórastól?
3 Hver skoraði sigurmark
Spánverja gegn Þjóðverjum í
undanúrslitum HM á miðviku-
dag?
SJÁ SVÖR Á SÍÐU 34
AKUREYRI Tilkynnt verður um ráðningu bæjarstjóra Akureyrarbæjar á næstu dögum.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Á VEGUM ÚTI Færri hafa slasast alvarlega
fyrstu fjóra mánuði ársins en í fyrra.
NOREGUR Talið er víst að kveikt hafi verið í
athvarfi fyrir hælisleitendur í nágrenni við
Ósló í Noregi aðfaranótt miðvikudags. Kveikt
var í þremur byggingum á nánast sama tíma og
íbúar í athvarfinu höfðu pakkað saman eigum
sínum áður en eldurinn breiddist út.
Alls 23 íbúar hafa verið handteknir og
ákærðir fyrir aðild að málinu. Lögreglan vill
senda þrjá þeirra úr landi samkvæmt Aften-
posten. Flestir íbúanna eru íraskir kúrdar. Þeir
höfðu kvartað mikið undan slæmum aðbúnaði á
staðnum og hafði komið til orðaskipta á þriðju-
dagskvöld sem enduðu með afskiptum lögreglu.
Stjórnvöld í Noregi hafa neitað því að illa sé
séð um fólkið og segja það fá húsaskjól og mat
þrisvar á dag auk vasapeninga.
Í athvarfinu býr fólk sem hefur verið end-
anlega neitað um hæli í Noregi og bíður þess
að verða sent úr landi. Það er hins vegar erf-
itt þar sem fæst fólkið hefur skilríki og sumir
neita að gefa upp persónuupplýsingar um sig.
Lögreglan segist líta málið alvarlegum
augum og það sé hælisleitendunum ekki til
framdráttar. Í kjölfar eldsvoðans hefur verið
skipaður sérstakur hópur sem á að fara yfir
umsóknir allra sem í athvarfinu voru á nýjan
leik. - þeb
Talið að hælisleitendur sem neitað hefur verið um hæli hafi valdið eldsvoða:
Lögreglan vill hælisleitendur úr landi
FYLGST MEÐ ELDINUM Lögreglumenn fylgdust með
eldinum snemma í gærmorgun, en það tók eldinn
skamma stund að læsa sig í öll húsin. Það þykir benda
til að eldfimur vökvi hafi verið notaður til að kveikja í.
N
O
R
D
IC
PH
O
TO
S/
A
FP
VEISTU SVARIÐ?