Fréttablaðið - 09.07.2010, Qupperneq 16
16 9. júlí 2010 FÖSTUDAGUR
FRÁ DEGI TIL DAGS
greinar@frettabladid.is
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is
MENNING: Páll Baldvin Baldvinsson fulltrúi ritstjóra pbb@frettabladid.is HELGAREFNI: Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is og Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is
ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að
fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í
gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871
N
orðmönnum var illa brugðið í gær þegar sagt var frá
því að þrír menn búsettir í Noregi, sem grunaðir eru
um þátttöku í hryðjuverkasamtökunum Al Kaída, hefðu
verið handteknir. Þeir eru grunaðir um að hafa unnið
að skipulagningu sprengjutilræða í Noregi eða öðrum
Evrópulöndum.
Almenningur í Noregi gerði ekki ráð fyrir að hryðjuverkastarf-
semi þrifist þar. Sú reyndist samt raunin. Norðmenn höfðu talið
sig tiltölulega örugga, þrátt fyrir hótanir hryðjuverkasamtaka á
undanförnum árum. Margir hafa nú sjálfsagt glatað þeirri öryggis-
tilfinningu.
Upp hefur komizt um hryðju-
verkastarfsemi í þremur af okkar
næstu nágrannalöndum, sem
Íslendingar hafa mest samskipti
við, þ.e. Noregi, Danmörku og
Bretlandi. Þetta hlýtur að leiða
hugann að því hversu lengi Ísland
getur litið á sig sem eyland, varið
fyrir hryðjuverkaógn.
Magnus Ranstorp, einn fremsti sérfræðingur Norðurlanda
í hryðjuverkastarfsemi, segir í samtali við Fréttablaðið í dag að
hryðjuverkamennirnir hafi sennilega valið Noreg vegna þess að
landið sé stórt og fámennt og þar hafi ekki verið hryðjuverkastarf-
semi áður. Þeir hafi því talið sig komast hjá eftirliti. Raunin hafi
orðið önnur, þar sem norska leyniþjónustan sé í góðu samstarfi
við leyniþjónustur annarra landa. Ranstorp telur ekki útilokað að
hryðjuverkamenn horfi til Íslands, þótt staðsetning landsins sé
nokkur vörn.
Leyniþjónusta norsku lögreglunnar stóð sig klárlega vel í því að
koma upp um hryðjuverkamennina. En hvernig er íslenzka lögregl-
an í stakk búin að fyrirbyggja hryðjuverkastarfsemi hér?
Í síðasta opinbera hættumati greiningardeildar ríkislögreglu-
stjóra kom fram að hryðjuverkaógn hér væri ekki talin meiri en á
öðrum Norðurlöndum. Hvorki ætti að gera mikið úr slíkri ógn né
hafna henni með öllu. Í hættumatinu sagði hins vegar líka að lög-
reglan hér hefði ekki svokallaðar forvirkar rannsóknarheimildir til
að safna upplýsingum um einstaklinga eða lögaðila, lægi ekki fyrir
grunur um tiltekið afbrot. „Möguleikar lögreglunnar á Íslandi til
þess að fyrirbyggja hryðjuverk eru því ekki þeir sömu og á hinum
Norðurlöndunum. Þessu fylgir einnig að íslenska lögreglan hefur
mun takmarkaðri upplýsingar um mögulega ógn eða hættulega
einstaklinga sem kunna að fremja hryðjuverk eða taka þátt í að
fjármagna slíka starfsemi.“
Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra hefur mælt með því að lög-
reglan fái þær heimildir sem hún þarf til að fylgjast með hugsan-
legri hryðjuverkastarfsemi og skipulögðum glæpum. Hins vegar
liggur fyrir að þá sem helzt eru á móti slíkum heimildum lögreglu
er að finna í þingliði núverandi ríkisstjórnarflokka.
Ef við stöndum einn daginn frammi fyrir sama veruleika og Norð-
menn, viljum við þá ekki að atburðarásin verði svipuð; að lögreglan
nái hryðjuverkamönnunum áður en þeir ná að fremja ódæðisverk?
Eða viljum við að Ísland verði veikasti hlekkurinn í keðju hryðju-
verkavarna vestrænna ríkja, sem hryðjuverkamenn sjá hugsanlega
tækifæri til að nýta sér – hugsanlega til að skipuleggja árásir á
önnur lönd?
HALLDÓR
Ólafur Þ.
Stephensen
olafur@frettabladid.is
SKOÐUN
Í mínum huga hefur orðið þjófur verið end-urskilgreint. Nú einskorða ég skilgrein-
inguna ekki lengur við hegningarlögin sem
okkar mistæka Alþingi hefur samþykkt
heldur set orðið í víðara samhengi. Jón
Hreggviðsson var ekki eiginlegur þjófur
í mínum huga þótt hann nældi sér í snæri
og margir þeirra sem breska heimsveldið
lét flytja til Ástralíu á sínum tíma voru það
ekki heldur. Jón og áströlsku sakamennirn-
ir voru miklu frekar fórnarlömb þjófa, rétt
eins og alþýða þessa lands er nú.
Það felur nefnilega í sér þjófnað að búa
til samfélag sem hlunnfer suma þegna sína.
Samfélag sem misskiptir auði sínum svo
gróflega að sumir neyðast til að stela sér til
lífsviðurværis er samfélag ranglætis sem
ekki verður réttlætt og gerir alla að þjófum
áður en yfir lýkur. Ekkert réttlætir að fáir
sölsi undir sig svo mikinn auð að þúsundir ef
ekki milljónir annarra lepji dauðann úr skel.
Þeir sem það gera eru þjófar enda kemur
alltaf í ljós að auðurinn var illa fenginn, að
hann var í rauninni ólíðandi upptaka á eigum
og lífsorku annarra. Sagan sýnir okkur að
slík þróun endar á einn veg því allir telja sig
innst inni eiga rétt á mannsæmandi lífi.
Vissulega á snjallt fólk sem skapar öðrum
lífsviðurværi að njóta þess, en ef því hefur
líka verið gefin viska veit það að umbunin
felst ekki bara í veraldlegum auði. Mannkyn-
inu óx ekki fiskur um hrygg af því fáir kúg-
uðu auðinn út úr þegnunum. Umbunin felst í
samfélagi þar sem allir njóta sín og síns auðs
á sanngjörnum forsendum.
En vei hinni föllnu borg; nú horfir maður
á eigur nágrannans og hugsar sitt.
Þjófur -s, -ar KK
Samfél-
agsmál
Rúnar Helgi
Vignisson
rithöfundur
Ekkert réttlætir að
fáir sölsi undir sig
svo mikinn auð að
þúsundir ef ekki milljónir ann-
arra lepji dauðann úr skel. Þeir
sem það gera eru þjófar enda
kemur alltaf í ljós að auðurinn
var illa fenginn ...
Vilja frekar evruna
Viðskiptablaðið greinir frá því að
átta af tíu stærstu útgerðarfyrirtækj-
um landsins séu farin að gera upp
ársreikninga sína í erlendri mynt. Þar
af gera sex af tíu stærstu fyrirtækjun-
um upp í evrum. Í samtali
við Pressuna, segir
Friðrik J. Arngrímsson,
framkvæmdastjóri LÍÚ,
að það geti verið betra
fyrir útgerðarmenn að
gera upp í erlendri mynt.
Sveiflur á gengi
geti haft áhrif
á skuldir fyrir-
tækjanna.
Hagsmunir fjöldans
Sveiflur á gengi hafa ekki bara áhrif á
skuldir fyrirtækja, heldur líka skuldir
heimila. Þau geta aftur á móti ekki
notað evrur eins og útgerðarmenn,
nema Ísland gangi í ESB. Á það vill
Friðrik ekki heyra minnst. „Við
höfum nákvæmlega ekkert að
gera þangað inn. Það kemur
ekki til álita að gefa eftir
forræði á auðlindum landsins.“
Þar á Friðrik væntanlega við
handhafa kvótans, en þeir
eru samkvæmt
nýjustu
tölum 166
talsins.
Hæfir menn
Á fundi borgarráðs í gær var samþykkt
að skipa Óttarr Proppé og Stefán Einar
Stefánsson í samstarfsnefnd Reykjavík-
urprófastsdæma til loka kjörtímabils-
ins. Báðir hafa pælt sitthvað í kristnum
fræðum og lagt út af þeim. Stefán
Einar hefur lokið embættis-prófi
í guðfræði. Óttarr Proppé söng
hins vegar lagið Trúboða-sleikjari
með hljómsveitinni HAM. Mynd-
bandið þótti svo gróft að þáver-
andi dagskrárstjóri sjónvarps
(Hrafn Gunnlaugsson af
öllum mönnum) bannaði
sýningar þess.
bergsteinn@frettabladid.is
Oddi – umhverfisvottuð prentsmiðja. Höfðabakka 7, 110 Reykjavík, sími 515 5000, www.oddi.is
Norðmenn vakna upp við vondan draum um
hryðjuverkastarfsemi. Hvað gera Íslendingar?
Veiki hlekkurinn?