Fréttablaðið - 09.07.2010, Qupperneq 21
FÖSTUDAGUR 9. júlí 2010 3
GARÐAR
Hljómskálagarðurinn, Skrúð-
garðurinn í Laugardal, Hallar-
garðurinn, Fógetagarðurinn, allir
skarta þeir sínu fegursta um þess-
ar mundir. Austurvöllur og Mikla-
tún þjóna líka vel sem almenn-
ingsgarðar. Í gömlum hverfum
eru smærri garðar og má benda á
tvo slíka í Smáíbúðahverfinu, við
Grundargerði og Hólmgarð. En
af hverju eigum við engan virki-
lega flúraðan garð eins og við
sjáum erlendis? Þórólfur Jónsson,
garðyrkjustjóri borgarinnar, var
spurður að því.
„Við Íslendingar eigum svo
stutta garðamenningu. Þessir
erlendu hallargarðar sem þú ert
að vitna í voru gerðir fyrir tvö
til þrjú hundruð árum og teljast
orðnir menningarminjar. Þeir
þurfa gríðarlegt viðhald sem hlýt-
ur að vera kostnaðarsamt. Það má
segja að Alþingisgarðurinn sé sá
sem kemst næst því hér á landi
að falla í þennan flokk. En við
gerum bara garða okkar tíma og
höfum lagt heilmikið í svæði eins
og kringum Ráðhúsið og viðbygg-
ingu Alþingis þó þau séu ekki stór.
Laugardalurinn er líka einn risa-
garður með margs konar hlutverk
og mikið viðhald. Við gætum alveg
gert algeran skrautgarð, þá er það
spurningin um fjármagn,“ svarar
hann og bendir á að við búum í 120
þúsund manna borg og takmörk
séu fyrir því sem hún getur stað-
ið undir. En er hann ánægður með
notkun almenningsgarðanna?
„Notkun garðanna fer mikið
eftir veðri og okkur vantar svolít-
ið þessa menningu að fara þang-
að með nestiskörfur. Það er helst á
Austurvelli sem eitthvað er dvalið.
En fólk fer líka í garða til að leita
kyrrðar og þeir þurfa að geta sinnt
því hlutverki ásamt öðrum. Sumir
þeirra þola samt alveg meiri notk-
un,“ segir Þórólfur sem aðspurður
segir fólk almennt ganga vel um
gróðurinn en mætti vera duglegra
að nota ruslaföturnar.
gun@frettabladid.is
Blómabeð borgarinnar
Þó að við Íslendingar eigum ekki garða með íburðarmiklum blómabeðum í rokókóstíl og formuðum
runnum sem eru klipptir daglega þá býður Reykjavíkurborg almenningi víða að njóta gróðursældar.
„Við Íslendingar eigum stutta garðamenningu,“ segir Þórólfur Jónsson, garðyrkjustjóri
Reykjavíkur.
Reykjavík býr yfir Hallargarði þótt enginn
sé kóngurinn.
Í Hljómskálagarðinum eru skrautleg beð
meðfram stígum og flötum.
Þessar ungu stúlkur njóta greinilega sældarlífs í Skrúðgarðinum í Laugardal.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
GARÐDVERGAR eru alltaf til prýði og eiginlega alveg
ómissandi í garðinn. Einn er alveg nóg en þeir sem vilja
fara með þetta alla leið geta náttúrulega haft þá sjö.
SMÁVÉLAVIÐGERÐIR
&
UTANBORÐSMÓTORAR
Opið: Má. - Fö. 12 - 18
Lau. 11 - 15
Kauptúni 3 • 210 Garðabær • S 771 3800 • www.signature.is
Blómaker og eldstæði úr pottjárni,
húsgögn úr graníti, marmara ofl.
Jóna María Hafsteinsdóttir
jmh@365.is
sími 512 5473
Henný Árnadóttir
henny@365.is
sími 512 5427
Þórdís Hermannsdóttir
thordish@365.is
sími 512 5447
Laugardaga