Fréttablaðið - 09.07.2010, Side 24
2 föstudagur 9. júlí
núna
✽ Sjóðheitir sumardagar
augnablikið
Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Forsíðumynd Arnþór Birkisson
Útlitshönnun Kristín Agnarsdóttir Auglýsingar Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir
sigridurdagny@365.is sími 512 5462 Föstudagur Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000
UNDIRDJÚP BUTONI Hinn ótrú-
lega skemmtilegi fatahönnuður Ika
Butoni var með undirdjúpaþema í
tískuvikunni í Hong Kong í vikunni.
Kórallar, skrautfiskar og annað fagurt
af sjávarbotni voru í aðalhlutverkum.
GUÐRÚN EVA MÍNERVUDÓTTIR RITHÖFUNDUR
Ég geri ráð fyrir því að fara í sund á föstudaginn og í sjötugsafmæli á laugardag-
inn. Kannski smá bíltúr á sunnudaginn. Annars er ég bara að skrifa. Þetta
er því inni- og vinnusumarið mikla og ég er hæstánægð með það.
M
yndir eftir l jós-
myndarann Börk
Sigþórsson birtust
nýverið í tísku- og
menningartímaritinu Contribu-
tor. Myndirnar vann hann í sam-
starfi við stílistann Ellen Lofts-
dóttur og sminkuna Steinunni
Þórðardóttur og sátu fyrirsæt-
urnar María Birta og Tinna Bergs
fyrir á myndunum.
„Contributor er tísku- og menn-
ingarblað sem er tiltölulega ný-
byrjað að gefa út. Ég var með ljós-
myndasýningu í Los Angeles í
janúar og aðstandendur blaðsins
voru þar á sama tíma og fjölluðu
meðal annars um sýninguna. Þeir
höfðu síðan samband og vildu fá
að birta efni eftir mig í blaðinu og
er þetta í þriðja sinn sem mynda-
sería eftir mig birtist hjá þeim,“
segir Börkur en hann hefur starf-
að bæði sem ljósmyndari og leik-
stjóri um árabil.
„Það er engin djúp heimspeki-
leg pæling á bak við myndirnar,
þetta var bara hugmynd sem
við Ellen vorum búin að kasta
á milli okkar í einhvern tíma,“
segir Börkur, en myndasyrpan
nefnist Neon Noir og eru fyrir-
sæturnar meðal annars lýstar
með neonljósi til að skapa rétta
andrúmsloftið.
Aðspurður segist Börkur lítið
hafa starfað við blaðaljósmyndun
fram að þessu, en að hann hafi
gaman af því að taka að sér slík
verkefni inn á milli. „Ásamt leik-
stjórninni, starfa ég aðallega við
tísku- og listræna ljósmyndun, en
blaðaljósmyndun er eitthvað sem
ég geri inn á milli og finnst alltaf
jafn skemmtilegt,“ segir hann.
Hægt er að skoða myndirn-
ar á vefsíðu tímaritsins www.
contributormagazine.com og
heimasíða Barkar er www.bork-
urs.com. - sm
TÍSKUMYNDASYRPA EFTIR BÖRK SIGÞÓRSSON BIRT Í TÍMARITINU CONTRIBUTOR:
ENGIN HEIMSPEKI
NEON NOIR Myndasyrpan Neon Noir
er sú þriðja sem tímaritið Contributor
birtir eftir Börk.
KONAN SEM FÉLL Þessi mynd er úr
myndasyrpunni The Woman Who Fell to
Earth sem tímaritið birti einnig á síðum
sínum. MYND/BÖRKUR SIGÞÓRSSON
helgin
MÍN
Hafið þið heyrt um Jónsa?
Zach Galifianakis, ein aðalstjarn-
an úr hinni ofurvinsælu gaman-
mynd The Hangover, er þekktur
fyrir fremur óheflaða framkomu á
sviði og hvíta tjaldinu. Og því hefði
kannski mátt ætla að tónlistar-
smekkur hans lægi í þungarokki.
En það er öðru nær. Galifianakis
lýsir því nefnilega yfir á vefsíðu
MTV-sjónvarpsstöðvar-
innar að hann sé mik-
ill aðdáandi Jónsa.
„Hafið þið heyrt um
Jónsa, J-O-N-S-I?
Hann er frá Ís-
landi og semur
alveg rosa-
lega fallega
tónlist,“ segir
leikarinn í
samtali við
vefinn.
Prinsessan efst
Leoncie, indverska prinsessan,
sem nú býr í Essex og starfar við
fasteignasölu og að sjálfsögðu tón-
smíðar, er með Carli Lewis á lista.
Ekki er listinn þó jákvæður held-
ur fremur neikvæður því vefsíðan
toptenz.net tók saman tíu verstu
myndbönd allra tíma. Carl Lewis
á eitt lag á listanum en kemst þó
ekki með tærnar þar
sem Leoncie
hefur hælana,
því hún vermir
nefnilega
efsta sætið
með mynd-
bandið við
lagið Ást
á pöbb-
num eða
Love in a
Pub.
Nýr skemmti- og tónleikastaður verður opnaður þar sem Grand
Rokk var áður til húsa og hefur
staðurinn hlotið nafnið Faktorý.
Arnar Fells, einn þriggja eig-
enda staðarins, segist líta á stað-
inn sem eins konar menningar-
miðstöð. „Þessi staður mun þjóna
ýmsum hlutverkum. Á efri hæð-
inni er tónleikastaður og á þeirri
neðri er þægilegur bar. Til stend-
ur að stækka húsið enn frekar í
framtíðinni og þá mun meðal
annars bætast við leikherbergi þar
sem gestir geta spilað pool, fuss-
ball, kastað pílum og teflt. Einnig
ætlum að halda regluleg bíókvöld
og Pub Quiz.“
Barinn niðri er að sögn Arnars
mjög litríkur og skemmtilegur
og hefur tekið miklum breyting-
um frá því sem áður var. „Gömlu
fastakúnnarnir hafa litið við nán-
ast á hverjum degi og fylgst með
og þeim líst flestum mjög vel á
þær breytingar sem við höfum
gert,“ segir hann og hlær.
Opið verður á Faktorý alla
helgina en hin eiginlega opnun
skemmtistaðarins á sér stað helg-
ina 16. og 17. júlí og verður hald-
ið upp á það með tónleikahaldi
þar sem hljómsveitirnar Hjálmar,
Mammút og Feldberg munu meðal
annars koma fram. - sm
Nýr skemmtistaður opnar í miðbænum:
Litríkur og líflegur
Kampakátir Arnar Fells, Villy Þór og
Birkir Björn reka saman skemmtistað-
inn Faktorý.
LAUGAVEGI 42
SÍMI 552 1818
MOMO.IS
Opið til kl. 16 á laugardag
MOMO MENN – ný búð á
Laugavegi 45, beint á móti
Momo konur.
NÝJAR VÖRUR
Í FULLUM GANGI
ÚTSALAN
LJÓSMYNDARINN Börk-
ur Sigþórsson hefur starf-
að sem ljósmyndari í rúm
þrettán ár. Hann starfar
helst við tísku- og listræna
ljósmyndun.
M
Y
N
D
/B
Ö
R
K
U
R
þetta
HELST