Fréttablaðið - 09.07.2010, Page 28

Fréttablaðið - 09.07.2010, Page 28
6 föstudagur 9. júlí Snærós Sindradóttir vakti fyrst opinbera athygli þegar hún var sjö ára. Reyndar hefur hún reglulega vakið athygli síðan hún fæddist og kippir þannig í kynið. Sjálf fetar hún slóð- ann að pólitíkinni, sem formaður Ungra vinstri grænna á höfuðborgar- svæðinu. Viðtal: Júlía Margrét Alexandersdóttir Ljósmyndir: Arnþór Birkisson S é flett í gegnum gagna- grunn dagblaða er nafn Snærósar Sindradótt- ur fljótt að koma upp. Þegar hún er 11 ára gömul birtist eftir hana ljóð í Lesbók Morgun- blaðsins og þrisvar sigrar Snær- ós ljóðasamkeppnir. Ljóðabókin Lumbrað á ljóðum kom út þegar Snærós var sjö ára og var ætluð nánustu fjölskyldu. „Pabbi minn, Sindri Freysson, sem sjálfur er rithöfundur, dreif mig áfram í að koma ljóðabókinni út og hann hefur alltaf verið stoltur af skrif- um mínum. Það stoltur að einu sinni þegar ég var 14 ára vaknaði ég upp um miðja nótt við að pabbi var að lesa ljóðin mín upp fyrir gesti inni í stofu,“ segir Snærós og hlær. Snærós sendi stundum inn lesendabréf sem barn, eitt þegar- hún var 12 ára og í því kvartar hún yfir niðurskurði í heilbrigðiskerf- inu og kvikmyndinni Opinberun Hannesar. „Ef það þurfti einhver að tala, alveg frá því að ég man eftir mér, hvort sem var í leikskól- anum, skólanum eða heima, hafði ég mig í frammi. Og varð jafnvel fúl ef einhver annar var valinn til að tala! Ég varð líka fljótt óvenju ábyrg, kannski verandi skilnaðar- barn, og pínulítil var ég farin að segja fólki til syndanna. Eitt sinn var ég boðuð á Bessastaði, 11 ára, vegna verðlaunaafhendingar og þá meira að segja fann ég mig knúna til að segja Ólafi Ragnari að hann ætti ekki að skrifa undir Kárahnjúkalögin.“ TVÖ HEIMILI Snærós tilheyrir nýrri kynslóð. Hún er eitt þeirra barna sem próf- aði, sem skilnaðarbarn, að alast upp jöfnum höndum hjá móður og föður. Var tvær vikur í senn á heimili sínu hjá móður og svo tvær vikur í senn hjá föður. Snæ- rós lætur vel af þessu fyrirkomu- lagi, enda hafi hún aldrei þekkt neitt annað. Móðir hennar er Helga Vala Helgadóttir, leikkona, meistaranemi í lögum og mikil Samfylkingarkona. Þegar móðir og stjúpfaðir Snærósar fluttu til Bolungarvíkur þar sem stjúp- faðirinn, Grímur Atlason, gegndi stöðu bæjarstjóra Bolungarvík- ur, bjó Snærós hjá föður sínum, Sindra Freyssyni, rithöfundi og fyrrum blaðamanni, og stjúpmóð- ur, Gerðu Fiðriksdóttur hjúkrunar- fræðingi. „Ég fór auðvitað oft vest- ur og var eitt sumar á Ísafirði að vinna við hellulagnir. Í dag bý ég aðallega hjá mömmu, enda verður þetta fiftí-fiftí kerfi flóknara fyrir mann þegar maður eldist.“ ÓSAMMÁLA MÖMMU Snærós er barnabarn einna ást- sælustu leikara landsins, Helga Skúlasonar heitins og Helgu Bach- mann. Snærós sjálf segist lengi vel hafa ætlað í Leiklistarskólann en í dag sé það ekki í kortunum. Hún gæti þó kannski hugsað sér að sameina skriftir og leik með leik- ritaskrifum. „Mitt helsta vandamál hefur verið að mig langar alltaf að gera svo margt. Nú er ég heilluð af pólitíkinni sem hefur átt hug minn síðustu tvö árin og ég hef endalausa orku og þolinmæði í að vinna í henni.“ Snærós tók við sem formaður Ungra vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu fyrir ári. „Þá var ég búin að vera í höfuðborgarstjórn Ungra vinstri grænna árið á undan en ég hef reyndar verið viðloðandi flokkinn síðan árið 2003. Jú, mamma er í Samfylkingunni en ég fylgi henni ekki enda erum við ósammála um margt, til að mynda Evrópumálin, þótt ég telji mig ekki tilheyra þeim hópi innan Vinstri grænna sem eru harðastir í Evrópuandstöðu sinni. En það er ekki alltaf auðvelt að vera heima þegar við mamma og Grímur byrjum að tala um póli- tík,“ segir Snærós og kímir. UPPNEFND BÚRTÍK! Snærós vakti mikla athygli þegar hún hélt ræðu á flokksráðsfundi VG. Í ræðunni sagði hún meðal annars að það væri „skammar- legt að horfa upp á fullorðið fólk rífast eins og hunda og ketti án þess nokkurn tímann að útkljá sín ágreiningsefni hvert við annað persónulega.“ Fannst henni fólk í flokknum ganga of harkalega fram í deilum gagnvart öðrum flokksfé- lögum. Ræðan var að hennar sögn frá eigin brjósti. „Ég er búin að fá mikil viðbrögð við þessari ræðu og þá meira af góðum viðbrögðum en vondum. Ég varð ekki hissa yfir þeim slæmu viðbrögðum sem ég fékk enda málið viðkvæmt. Ég hef fengið að heyra að ég sé „búrtík“ og „dekurdýr Svavars-armsins“. Ég gagnrýndi ekki skoðanir eins né neins heldur fyrst og fremst að- ferðafræði og hvernig við tölum saman í flokknum. Mér finnst ekki í lagi að kalla fólk sem maður starfar með svikara. Gagnsæi, jú takk, en mannorðsmorð, nei. Til að þróun eigi sér stað þurfa and- stæðar skoðanir að koma saman og átök út frá þeim sem skila nið- urstöðu. En skoðanaágreiningur á ekki að þurfa að snúast upp í persónulegt níð. Starf stjórnmála- manna snýst um að vera gagn- rýndur og geta tekið gagnrýni. Og þeir sem pakka í vörn eiga ekki heima í þessu starfi.“ MÓTLÆTI HERÐIR Snærós er að eigin sögn ágæt- lega í stakk búin fyrir uppnefn- ingar. „Ég lenti í því í 10 og 11 ára bekk að vera lögð í einelti og ég hugsa að það hafi hert mig frekar en hitt. Nei, þetta situr ekki mikið í mér í dag, en var auðvitað erfitt á sínum tíma. Ég held samt að þetta hafi styrkt mig og er því líklega ágætis undirbúningur fyrir þátt- töku í stjórnmálum. Stjórnmála- menn fá oft yfir sig alls konar skít- kast og oftar en ekki þvælist útlit þeirra inn í. Samfélagið virðist til dæmis eiga erfitt með að taka mark á fallegum konum. Sjálfri finnst mér mikilvægt að jafnrétti náist á forsendum kvenna, ekki karla. Þannig vil ég að tekið sé mark á konum sem eru kvenleg- ar og kynþokkafullar því þær eru líka klárar. Kvenfrelsi snýst um að konur séu jafnar körlum, ekki að þær séu eins og þeir. Sjálf set ég ekki spurningarmerki við kyn heldur persónu, og var fljót að eignast mína fyrstu kærustu, svo ég er kannski svolítið upptekin af því að maður fái að vera eins og maður er og vill vera.“ Í JÁRNUM Í SJÖ TÍMA Snærós stundar nám í Mennta- skólanum við Hamrahlíð og seg- ist gjarnan vera fimm skrefum á undan sér. „Þegar ég var í Haga- skóla gat ég ekki beðið eftir því að komast í menntaskóla og núna er mér farið að leiðast þófið þar og langar í háskóla.“ Snærós hefur munninn kirfilega staðsettan fyrir neðan nefið. Því komst lögreglan í Reykjavík að þegar Snærós var handtekin í mótmælunum 20. jan- úar 2009. Snærós var í haldi í tíu klukkutíma, þar af eina sjö tíma í járnum. „Það er ekki bara rétt- ur fólks, heldur skylda, að mót- mæla. Það var undarleg tilfinn- ing að vera í lýðræðisríki, nýt- andi þann rétt, og enda í járnum. Mér finnst mikið til lögreglunnar koma, en það er misjafn sauður í hverri hjörð og mér fannst einn lögregluþjónninn ganga fram af of mikilli hörku. Þegar ég bað um áheyrn annars lögregluþjóns út af þeirri meðferð, var mér svar- að að ég hefði verri munnsöfnuð en verstu handrukkarar bæjarins. Ég varð orðlaus, eitt augnablik, en svaraði því svo að ég hefði líklega betri orðaforða en handrukkar- arnir svo fjölbreytni fúkyrðanna væri meiri. Hins vegar tek ég fram að ég kynntist þarna konum sem voru mjög ákveðnar en sanngjarn- ar. Það er synd að maður fær ekki að vita hvað löggan heitir, því ég hefði viljað þakka einni sem fylgdi mér inn í yfirheyrslur.“ Mun hún ekki halda áfram að láta í sér heyra? „Ég er í það minnsta ekki hrædd við að tjá mig. Mikilvægast er að fólk hafi kjark- inn, maður þarf ekki að vera full- kominn og það er ekkert að því.“ FIMM SKREFUM Á UNDAN Snærós Sindradóttir, formaður Ungra vinstri grænna segist vel geta tekið á móti hvaða uppnefni sem er, enda hafi hún upplifað ýmislegt.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.