Fréttablaðið - 09.07.2010, Side 36

Fréttablaðið - 09.07.2010, Side 36
 9. JÚLÍ 2010 FÖSTUDAGUR8 ● fréttablaðið ● reykjanesbær ● FLOTTIR KÖRFUBOLTAVELLIR Körfuboltavellir hafa nú verið settir upp á þremur stöðum í Reykjanesbæ: Við Holtaskóla og hjá Akurskóla í Innri Njarðvík og við Njarð- víkurskóla. Vellirnir eru lagðir yfirborðsefni sem eru plasteiningar læstar saman á hliðun- um. Plöturnar eru rifflaðar og opnar í gegn þannig að vatn, sandur og óhreinindi leka niður úr yfirborði. Efnið hefur verið í notkun víða um heim og hefur reynst vel. Körfurn- ar eru frá sama framleiðanda og eru þær af vandaðri gerð en gengur og gerist á útikörfu- boltavöllum. Framkvæmdir eru nú hafnar við hringtorg við Grænás sem teng- ir byggðina á Ásbrú við Reykja- nesbæ en vonir standa til þess hjá Vegagerðinni að það muni hægja á umferð á þessum hættulegu gatna- mótum. Íbúar á Ásbrú og bæjaryfir- völd hafa barist fyrir úrbótum á umferðaröryggi við þessi gatna- mót frá árinu 2007, en þau urðu sérlega varasöm eftir breytt hlut- verk svæðisins á Ásbrú þar sem áður var herlið en nú námsmenn með fjölskyldur. Mörg slys hafa orðið á þessum gatnamótum enda má segja að Reykjanesbrautin kljúfi byggðina í sundur en þar er umferð mikil í tengslum við utanlandsflug. Þetta skapar slysahættu fyrir börn og unglinga og aðra gangandi veg- farendur sem sækja ýmsa þjón- ustu svo sem íþróttir og tómstund- ir fyrir neðan Reykjanesbraut. Í upphaflegum áætlunum Vega- gerðarinnar var gert ráð fyrir undirgöngum fyrir gangandi veg- farendur en þeim hefur nú verið frestað fram á næsta ár. Aukið öryggi Vonast er til að hringtorg við Grænás hægi á umferð og dragi úr slysahættu. ● NYTJAGARÐAR VINSÆLIR Nytjagarðar hafa notið mikilla vin- sælda en íbúar í Reykjanesbæ eiga nú kost á því í fyrsta sinn að rækta sitt grænmeti í almennum reit. Búið er að setja upp nytjagarða í Gróf þar sem áður voru skólagarðar fyrir börn og hafa þegar um 90 einstaklingar sett þar niður bæði kartöflur og grænmeti en að auki geta íbúar á Ásbrú nýtt sér þennan möguleika. Gert er ráð fyrir nytjagörðum í Njarðvíkum næsta sumar vegna mikillar eftir- spurnar. Ekkert gjald er tekið fyrir garðana í ár enda ekki vitað hvernig jarðvegurinn er en á næsta ári er gert ráð fyrir hóflegri gjaldtöku. Það má segja að skapast hafi góð stemning hjá íbúum við ræktunina og stefnt er að sameiginlegri upp- skeruveislu að hausti í tengslum við Ljósanótt. ● EFNASKIPTI Sýningin Efnaskipti er framlag Listasafns Reykjanesbæjar til Listahátíð- ar 2010 og samvinnuverkefni safnsins og fimm myndlistar- kvenna; Önnu Líndal, Guðrún- ar Gunnarsdóttur, Hildar Bjarna- dóttur, Hrafnhildar Arnardóttur og Rósu Sigrúnar Jónsdóttur. Sýningin er sjálfstætt áframhald verkefnis sem hófst í safninu árið 2008, en þá voru þrír listamenn fengnir til að kanna hvort lífsmark væri með einni elstu listgrein Íslendinga, tréskurði. Í framhaldi af því var ákveðið að láta reyna á þanþol annarrar fornrar listgreinar, textílsins. Sýningin stendur til 15. ágúst. Sjá reykjanesbaer. is/listasafn. Veiðihornið • Síðumúla 8 • 568 8410 • veidihornid.is Munið vinsælu gjafabréfin okkar Bestu flugurnar Já, þú færð allar bestu flugurnar hjá okkur á betra verði Kannastu við þessar? Fransis, Snælda, Blue Charm, Avatar, Collie Dog, Green Butt, Bismo, Flæðarmús, Hairy Mary, Peacock, Killer, Sunray Shadow, Kötturinn, Green Brahan, Black & Blue, Skröggur, Rusty Rat, Randy Candy, Mýsla, Leonardo, María, Colburn Special, Black Ghost, Krókur, Black Labrador, Héraeyra, Skógá, Green Highlander, Dýrbítur, Þingeyingur, Alder, Montana, Black Gnat, Dark Side of the Moon, Stardust, Alda, Dentist, Silver Sheep, Munroe Killer, Rocket, Alma Rún, Watson Fancy Eða komdu við í Veiðihorninu Síðumúla 8 – Opið alla daga Gerðu verð og gæðasamanburð. Fjölmargir veiðimenn hafa áttað sig á því að það margborgar sig. Bleik og blá - 290 krónurFlæðarmús - 290 krónur Rektor - 290 krónur Black Ghost - 290 krónur Nobbler - 290 krónur Watson Fancy - 220 krónurPeacock - 220 krónur Killer - 220 krónur Krókur - 280 krónur Alma Rún - 220 krónur Black Sheep - 450 krónurSnælda - 450 krónur Fransis - 450 krónur Skógá - 450 krónur Tvívængja - 450 krónur Black Brahan - 390 krónurStekkur Blá - 390 krónur Hairy Mary - 390 krónur Rusty Rat - 390 krónur Colburn Special - 390 krónur Black Eyed Prawn - 450 krónurHKA Sunray (Bismo) - 450 krónur HKA Sunray (Bismo) - 450 krónur Green Brahan örkeila - 390 krónur Sunray Shadow - 390 krónur

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.