Fréttablaðið - 09.07.2010, Page 40
10 föstudagur 9. júlí
✽ smáatriði eru stór atriði
tíska
FYRIR VEISLUNA
ESTHER ÝR
ljósmyndari
ÉG ER ALLTAF MEÐ IPODINN með
mér hvert sem ég fer.
FYRSTA ALVÖRU MYNDAVÉLIN sem
ég eignaðist. Ljósmyndaáhuginn byrjaði
um leið og ég fékk þessa vél.
DAVID LACHAPELLE er einn
af mínum uppáhalds ljósmynd-
urum. Bókina var afmælisgjöf.
ÉG ER MIKILL SAFN-
ARI og safna ég þess-
um fígúrum sem kallast
Dunny. Þær fást ekki á
Íslandi og því kaupi ég
alltaf nokkrar þegar ég
kemst í Kidrobot-búð.
ÞESSAR DÚKKULÍSUR erfði ég eftir
ömmu mína og ég tel þær vera eitt af
því dýrmætasta sem ég á.
ÉG BYRJAÐI AÐ
RENNA MÉR Á
SNJÓBRETTI vet-
urinn 2008 og ég
er sjúklega léleg
en engu að síður
finnst mér fárán-
lega gaman að
renna mér.
ÉG ER MEÐ
MIKLA SKÓ-
DELLU og eru
Kron by Kron-
kron-skórnir mínir
í miklu uppáhaldi.
Líka gaman að
geta verið í skóm
sem eru íslensk
hönnun.
ÉG SAFNA SÓLGLERAUGUM og þessi
eru alveg spes. Ég keypti þau í Pixie
market úti í New York
TOPP
10
V
ið erum að reka verslun sem
selur bæði íslenska hönnun
og list í bland við second hand
flíkur. Okkur langaði að nýta tísku-
vikuna í Berlín til að kynna versl-
unina og í leiðinni íslenska hönn-
un og ákváðum að halda smá partí
til að vekja á okkur athygli,“ segir
Elsa María Blöndal, verslunarstjóri
tískuverslunarinnar Glad I Never
sem er í Berlín.
Verslunin stendur fyrir viðburði
þar sem íslensk list, tónlist og
tíska er kynnt og á meðal þeirra
hönnuða sem sýna vörur sínar eru
Kalda, Eygló, Gígja Ísis og Dead
auk þess sem listamaðurinn Þórð-
ur Grímsson mun sýna verk sitt,
White Light/Dark Wave.
Verslunin var opnuð fyrr í vetur
og segir Elsa María reksturinn hafa
gengið vel. „Þetta fór hægt af stað
en við erum hægt og bítandi að
byggja upp fastan kúnnahóp. En
reksturinn hefur gengið þrusuvel
og það kom okkur í raun á óvart
hversu vel þetta hefur gengið.“
Elsa María dvelur í Berlín í allt
sumar og sinnir rekstri verslunar-
innar en heldur heim á ný í haust
til að klára fatahönnunarnám við
Listaháskóla Íslands. Innt eftir því
hvort hún muni sækja viðburði
tengda tískuvikunni svarar hún því
játandi. „Ég ætla að reyna að snigl-
ast aðeins þarna í kring. Það fylg-
ir nú líka bæði starfinu og nám-
inu að skoða og sjá hvað er að ger-
ast innan tískunnar,“ segir hún að
lokum.
PARTÍ Í ÍSLENSKU TÍSKUVERSLUNINNI GLAD I
NEVER Í BERLÍN:
Vekja athygli á
íslenskri hönnun
Glad I Never Elsa María Blöndal og Baldvin Dungal
reka verslunina Glad I Never sem er í Mitte í Berlín.
ÉG SAFNA
DÚKKUM
sem kallast
Blythe-dúkkur
og er þetta ein
þeirra. Þessi
er í miklu
uppáhaldi hjá
mér og segja
margir að ég
líkist henni
smá.
ÞENNAN KJÓL
keypti ég í Rokki og
rósum. Hann var
síður en vinkona mín
stytti hann og breytti
honum þannig að hann
varð alveg fullkominn
fyrir mig.
OPULASH er heitið á nýjasta maskaranum frá MAC. Burstinn er
sérstaklega stór og á, eins og svo margir maskara, að gera augnhárin þéttari
og lengri. Það sem er hins vegar prýðilegur plús við þennan maskara
er að hann er ekki blautur og klessist því lítið sem ekkert og þornar fljótt.
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki