Fréttablaðið - 09.07.2010, Side 52
24 9. júlí 2010 FÖSTUDAGUR
Ofurfyrirsætan Cindy Crawford
er ekki mikill aðdáandi botox-
aðgerða.
„Ég hef prófað botox en ég er
samt hrædd við það. Ég hræðist
lýtaaðgerðir en svo lengi sem þú
notar þær ekki til að breyta and-
litinu á þér finnst mér þær allt í
lagi,“ sagði Crawford, sem er 44
ára. „Ég fer ekki fram á að líta
út eins og ég gerði hér áður fyrr
vegna þess að það yrði bara pirr-
andi. Ég stunda líkamsrækt svo
mér líði vel og fái aukna orku.“
Crawford er tveggja barna móðir
og segist vera góð fyrirmynd barn-
anna sinna með því að borða hollan
mat og stunda líkamsrækt.
„Já það er rétt. Við fjölskyldan erum að
flytja til Danmerkur,“ segir Jens Ólafsson,
betur þekktur sem Jenni í Brain Police.
Jenni leggur land undir fót í næstu viku
til Danmerkur þar sem kona hans, Elín
Hólmarsdóttir, bíður hans. Fjölskyldan
ætlar að flytja til Århus þar sem Jenni
hefur skráð sig í rafmagnsverkfræði
og Elín í meinatækni. Jenni segir dótt-
ur þeirra, sem er ellefu ára, vera mjög
spennta fyrir því að prufa að búa í öðru
landi.
„Ég heyrði af því í gær að það væri
ekki mikið um rokk í Danmörku þar
sem allir strákarnir kunna að dansa.
Þannig að ég er ekki viss hvernig
landið liggur þarna í sambandi við
rokkið,“ segir Jenni, spurður hvort hann
ætli sér að grípa í míkrafóninn í nýju
landi, en hann er af mörgum talinn einn
öflugasti rokksöngvari landsins – og þótt
víðar væri leitað.
Fjölskyldan hefur lengi haft löngun til
að breyta til og þar sem Brain Police er
ekki starfandi í bili tóku þau ákvörðun um
að stökkva á tækifærið.
„Ég er að kveðja alla hér heima þessa
dagana. Það var óvæntur hittingur hjá
vinahópnum í gær og síðan ætla ég norð-
ur um helgina. Þar á ég tvær ömmur, eina
langömmu og að sjálfsögðu fullt af vinum
sem ég ætla að kveðja og svo fer ég bara
út,“ segir söngvarinn spenntur fyrir þessu
nýja ævintýri fjölskyldunnar. - ls
Jenni flytur til Danmerkur
Ekki hrifin af botoxi
Ofurfyrirsætan
Cindy Crawford er
44 ára gömul.44
FJÖLSKYLDAN BREYTIR TIL Jenni flytur með
fjölskyldu sína til Danmerkur þar sem hann og
kona hans setjast á skólabekk. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓBERT
> AFTUR Í SKÓLA
Söngkonan Mary J. Blige hefur
fengið inngöngu í Howard-há-
skólann í New York. Blige hætti
ung í framhaldsskóla, en útskrifað-
ist nýlega úr framhaldsskóla í New
York. Hún stefnir nú að því að út-
skrifast úr háskóla árið 2014.
folk@frettabladid.is
CINDY CRAWFORD Ofurfyrirsætan er
ekki mikill aðdáandi botox-aðgerða.
Töluverðar líkur eru á að Sena endursýni ævintýra-
myndina Avatar í lok ágúst í þrívídd í lúxussalnum í
Smárabíói. Ekki var hægt að sýna myndina í þrívídd
í salnum á sínum tíma en núna er tæknin fyrir hendi.
„Það hefur engin ákvörðun verið tekin enn þá en
þetta er mjög spennandi. Það veltur á því hvort það
sé grundvöllur fyrir því að menn hafi áhuga á að sjá
hana í bíó, þrátt fyrir að hún sé komin út á DVD og
að einn þriðji landsmanna hafi séð hana í bíó,“ segir
Guðmundur Breiðfjörð hjá Senu.
Samkvæmt erlendum fréttamiðlum verður Avat-
ar endursýnd í þrívídd víða um heim í haust, sökum
þess að þrívíddarsölum hefur fjölgað til muna að
undanförnu. Í mars þurfti myndin að víkja úr þrí-
víddarsölum vestanhafs þegar Lísa í Undralandi
var frumsýnd en núna fær Avatar annað tækifæri.
Ekki skemmir fyrir að átta mínútum verður bætt við
myndina, aðdáendum hennar til mikillar ánægju.
„Ef þeir ætla að bjóða upp á átta mínútna aukaefni
er engin spurning að við könnum þetta,“ segir Guð-
mundur og útilokar ekki að hún verði sýnd víðar en í
lúxussalnum. - fb
Lúxusendursýning á Avatar
AVATAR Ævintýramyndin Avatar verður hugsanlega endursýnd
í lúxussal Smárabíós í lok ágúst.
Kvikmyndin Boðberi var frumsýnd í Kringlubíói í gær og var mikill fjöldi fólks viðstadd-
ur sýninguna. Með aðalhlutverkin í kvikmyndinni fara Darri Ingólfsson og Ísgerður Elfa
Gunnarsdóttir en leikstjóri myndarinnar er Hjálmar Einarsson. Kvikmyndin var tekin
upp stuttu fyrir bankahrunið árið 2008 og fjallar um hrun íslensks samfélags.
BOÐBERI MÆTTUR
STJÖRNUR KVÖLDSINS Hjálmar Einarsson, leikstjóri Boðbera, ásamt aðalleikurum sínum, þeim Darra Ingólfssyni og Ísgerði Elfu
Gunnarsdóttur. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
GÓÐIR GESTIR Ljósmyndarinn Lalli Sig og útvarpsmaðurinn
Atli hjá FM 957 létu sig ekki vanta á frumsýninguna. SÁTTIR BÍÓGESTIR Ingvar og Róbert mættu á frumsýninguna.
fyrir
24002
Úrval vinsælla bóka á 2 fyrir 2400 tilboði
Gleðilegt sumarfrí!
„Tvímælalaust
besta bók sem
ég hef lesið á
árinu.“
Metro 2009
„Frábær bók!
Spenna út í gegn...
Patterson aðdáend-
ur vilja ekki missa
af þessari.“
Memphis Reads