Fréttablaðið - 09.07.2010, Side 56
28 9. júlí 2010 FÖSTUDAGUR
sport@frettabladid.is
Kaplakrikavöllur, áhorf.: 1.587
FH Fram
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 17–11 (7–6)
Varin skot Gunnleifur 5 – Hannes 3
Horn 9–9
Aukaspyrnur fengnar 13–16
Rangstöður 1–3
FRAM 4–5–1
Hannes Halldórsson 6
Jón Orri Ólafsson 5
Kristján Hauksson 5
Hlynur Magnússon 4
(46., Daði Guðm. 5)
Sam Tillen 4
Halldór H. Jónsson 5
Jón G. Eysteinsson 3
Kristinn Halldórsson 4
Ívar Björnsson 3
(46., Almarr Ormar. 6)
Joe Tillen 4
Hjálmar Þórarinsson 3
*Maður leiksins
FH 4–3–3
Gunnleifur Gunnleifs. 6
Guðm. Sævarsson 7
Pétur Viðarsson 7
Tommy Nielsen 6
(75., Freyr Bjarnason -)
Hjörtur Valgarðsson 7
Björn D. Sverrisson 7
Bjarki Gunnlaugsson 7
(80., Hafþór Þrastar. -)
*Matthías Vilhjálm. 8
Ólafur Páll Snorras. 7
Atli Guðnason 8
(84., Einar Ingvars. -)
Atli V. Björnsson 7
1-0 Atli Guðnason (8.)
2-0 Pétur Viðarsson (30.)
2-1 Almarr Ormarsson (47.)
3-1 Björn Daníel Sverrisson (52.)
4-1 Atli Viðar Björnsson (64.)
4-1
Valgeir Valgeirsson (4)
Hásteinsvöllur, áhorf.: 846
ÍBV Keflavík
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 11–9 (6–5)
Varin skot Albert 5 – Ómar 4
Horn 5–6
Aukaspyrnur fengnar 11–8
Rangstöður 4–5
KEFLAVÍK 4–5–1
Ómar Jóhannsson 6
Alen Sutej 6
Bjarni Aðalsteinsson 7
Haraldur Guðmunds. 6
Guðjón Antoníusson 5
Einar O. Einarsson 6
Hólmar Rúnarsson 7
Paul McShane 6
Guðm. Steinarsson 6
Magnús Þorsteins. 6
Magnús Matthíasson 7
*Maður leiksins
ÍBV 4–3–3
Albert Sævarsson 6
Matt Garner 6
*Eiður Sigurbjörns. 8
Rasmus Christiansen 7
James Hurst 6
Tony Mawejje 6
Finnur Ólafsson 6
(88., Danien Warlem -)
Þórarinn Valdimars. 7
Denis Sytnik 6
(63., Eyþór Birgis. 5)
Andri Ólafsson 7
Tryggvi Guðmunds. 7
1-0 Andri Ólafsson (32.)
1-1 Magnús Matthíasson (45.)
2-1 Eiður A. Sigurbjörnsson (90.+4)
2-1
Gunnar Jarl Jónsson (6)
STAÐAN
Breiðablik 11 7 2 2 26-13 23
ÍBV 11 7 2 2 18-9 23
Keflavík 11 5 4 2 12-11 19
FH 11 5 3 3 20-17 18
Fram 11 4 5 2 18-16 17
Valur 11 4 5 2 19-17 17
Stjarnan 11 3 4 4 20-19 13
KR 10 3 3 4 14-15 12
Fylkir 10 3 3 4 18-20 12
Selfoss 11 2 2 7 13-21 8
Grindavík 11 2 1 8 11-21 7
Haukar 11 0 6 5 12-22 6
NÆSTU LEIKIR
ÍBV - Fram 17. júlí kl. 14.00
Haukar - KR 18. júlí kl. 19.15
Fylkir - Selfoss 18. júlí kl. 19.15
Keflavík - Breiðablik 18. júlí kl. 19.15
FH - Valur 18. júlí kl. 19.15
Grindavík - Stjarnan 19. júlí kl. 19.15
PEPSI-DEILDIN
FÓTBOLTI KR og norður-írska liðið
Glentoran skildu jöfn, 2-2, í Belf-
ast í gærkvöldi.
Þetta var síðari leikur liðanna
í fyrstu umferð Evrópudeildar
UEFA en KR vann fyrri leikinn,
3-0. KR vann rimmu liðanna því
samanlagt, 5-2.
Kjartan Henry Finnbogason
skoraði annað marka KR í gær.
Hitt mark KR var sjálfsmark.
Skúli Jón Friðgeirsson fékk
að líta rauða spjaldið í leiknum
er hann braut á leikmanni
Glentoran. Heimaliðið fékk víti
og jafnaði leikinn úr vítinu.
KR mætir úkraínsku liði í
annarri umferð. - hbg
Evrópudeild UEFA:
KR komið í
aðra umferð
> Fylkir kveður Evrópu
Fylkir tapaði 1-3 fyrir Torpedo frá Hvíta-Rússlandi í
Evrópudeild UEFA í gær og 1-6 samanlagt. Pape Faye
skoraði mark Fylkis. „Við vorum betri í þessum leik heldur
en úti en að sama skapi voru þeir kannski slakari en í
fyrri leiknum enda með 3-0 forystu úr fyrri hálfleiknum.
Við náðum að spila ágætlega og þetta var
okkar besti leikur í langan tíma. Tölurnar
gefa ekki rétta mynd af gangi leiksins, við
gáfum aðeins eftir í blálokin og líklega
er þetta lið klassanum fyrir ofan okkur.
Þrátt fyrir tap er samt sem áður
hægt að taka margt jákvætt
úr þessum leik,“ sagði Kristján
Valdimarsson, fyrirliði Fylkis.
Dramatíkin var í hámarki þegar Eyjamenn tóku á móti
Keflvíkingum. Hvorugt liðið ætlaði að sætta sig við jafntefli
í leiknum og endaði það með fjörugustu lokamínútum í
manna minnum. En lokatölur urðu 2-1 og sigurmarkið kom á
94. mínútu og menn tala um mark ársins
Willum Þór Þórsson, þjálfari Keflavíkur, var að vonum
svekktur.
„Leikurinn var vel spilaður af beggja hálfu, Vestmann-
eyingarnir betri í þeim fyrri og við í seinni. Við áttum
færi í lokin og það skilur bara á milli. Við nýttum ekki
okkar færi. Hefðum við klárað þau þá hefðum við
unnið þennan leik en þetta klafs í lokin er náttúru-
lega bara sérkafli í þessum leik og það er bara ekki
hollt fyrir mig að tjá mig neitt um það.“
Heimir Hallgrímsson, þjálfari ÍBV, var hressari.
„Lokamínúturnar voru bara taugatryllir. Þeir eiga
stangarskot, við sláarskot, rautt spjald og svo þetta líka sigurmark-
ið. En leikurinn heilt yfir var bara eins og við bjuggumst við. Þeir
liggja til baka og við vorum oft ekki nógu þolinmóðir og hlupum
með boltann inn á miðjuna þar sem þeir eru þéttir. Keflavík eru
líka bara með gríðarlega gott lið og þegar þeir eru með boltann
er alltaf hætta.“
Eiður Aron var hetja ÍBV í gær.
„Boltinn berst þarna til mín og í stöðunni var ekkert annað hægt
en að skjóta, leikurinn kominn í uppbótatíma og ég hitti hann bara
fullkomlega. Flottasta mark sem ég hef skorað á ferlinum, mitt þriðja
á tveimur tímabilum, annað í ár. Þetta var æðislegt og ég hélt að
ég myndi bara deyja í fagnaðarlátunum, það var haldið svo fast í
mig,” sagði Eiður Aron Sigurbjörnsson
DRAMATÍSKUR SIGUR HJÁ ÍBV: EIÐUR ARON MEÐ FRÁBÆRT SIGURMARK Í UPPBÓTARTÍMA
Flottasta mark sem ég hef skorað á ferlinum
HEIMIR HALLGRÍMSSON
þjálfari ÍBV.
FÓTBOLTI FH vann í gær góðan
4-1 sigur á Fram og minnti
frammistaða liðsins í gær á
meistaratakta þess undanfarin ár.
Þeir fóru illa með Framara sem
misstu mann af velli með rautt
spjald í öðrum leik sínum í röð.
Í þetta sinn var það fyrirliðinn
Kristján Hauksson.
Þorvaldur Örlygsson, þjálfari
Fram, gerði þrjár breytingar á
byrjunarliði sínu frá síðasta leik
auk þess sem Jón Guðni Fjóluson
var í banni. Þessar breytingar
skiluðu þó ekki tilætluðum árangri
því FH-ingar stjórnuðu leiknum
nánast strax frá fyrstu mínútu
og komust yfir með mörkum Atla
Guðnasonar og Péturs Viðarssonar
í fyrri hálfleik. Þar að auki fóru
FH-ingar illa með nokkur góð færi
í fyrri háfleiknum.
Eftir síðara markið náðu
Framarar aðeins að komast á skrið
án þess þó að skapa sér nein færi.
Í leikhlénu gerði svo Þorvaldur
tvær breytingar á byrjunarliðinu
sem skilaði strax marki á annarri
mínútu síðari hálfleiksins þegar
varamaðurinn Almarr Ormarsson
minnkaði muninn.
En þar með var mótspyrna
gestanna öll. Björn Daníel
Sverrisson skoraði skömmu síðar
gott mark beint úr aukaspyrnu
og Atli Viðar Björnsson bætti
fjórða markinu við um miðbik
hálfleiksins.
FH-ingar sýndu í leiknum
af hverju liðið er ríkjandi
Íslandsmeistari og lét sterkt
lið Framara líta ansi illa út á
löngum köflum í leiknum. Þeir
eru nú komnir upp í fjórða sæti
deildarinnar og þó svo að liðið sé
fimm stigum á eftir toppliðunum
nú er engan veginn hægt að
afskrifa FH í titilbarátunni í
haust.
„Þetta var mjög góður leikur af
hálfu FH,“ sagði þjálfarinn Heimir
Guðjónsson. „Við höfum verið að
í spila vel undanfarinn mánuð ef
frá er talinn síðari hálfleikurinn
gegn Stjörnunni. Við höfum
þó verið klaufar upp við mark
andstæðinganna og ekki náð að
klára leikina okkar vel en það
gerðum við í dag.“
Almarr Ormarsson var vitanlega
ekki jafn sáttur. „Við áttum ekkert
skilið úr þessum leik. Þetta var
líklega okkar slakasti leikur í
sumar,“ sagði hann. „En ég tel
að það sé þó ekki lægð yfir okkar
liði. Við höfum verið allt í lagi að
undanförnu en bara ekki náð að
klára okkar leiki. En ég get ekki
útskýrt hvað gerðist í dag enda
var þetta óvenjulega lélegt hjá
okkur.“
Heimir sagði að sigurinn í
dag hafi verið mikilvægur upp á
toppbaráttuna að gera. „Hefðum
við tapað í dag værum við átta
stigum á eftir toppliðunum og
það hefði verið brött brekka fyrir
okkur. Það var því mjög gott að
ná þremur stigum í dag og koma
okkur ofar í töflunni.“
eirikur@frettabladid.is
Meistararnir minntu á sig
FH virðist vera komið á gott skrið í Pepsi-deild karla eftir glæsilegan 4-1 sigur á
Fram. FH-ingar yfirspiluðu gestina og hefðu hæglega getað unnið stærri sigur.
GLEÐI OG SORG Hannes Halldórsson og félagar í Fram eru hér svekktir er FH-ingar
fagna einu marka sinna í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN