Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.07.2010, Qupperneq 58

Fréttablaðið - 09.07.2010, Qupperneq 58
30 9. júlí 2010 FÖSTUDAGUR BREIÐABLIK 4-0 STJARNAN 1-0 Alfreð Finnbogason, víti (48.) 2-0 Alfreð Finnbogason, víti (55.) 3-0 Alfreð Finnbogason (76.) 4-0 Haukur Baldvinsson (83.) Kópavogsvöllur, áhorf.: 1.230 Dómari: Kristinn Jakobsson (7) TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 10–9 (7–4) Varin skot Ingvar 3 – Bjarni 3 Horn 7–2 Aukaspyrnur fengnar 3–9 Rangstöður 2–2 Breiðablik 4–2–3-1 Ingvar Kale 6 - Arnór Aðalsteinsson 6, Kári Ársælsson 5, Finnur Orri Margeirsson 7, Kristinn Jónsson 6 - Jökull Elísabetarson 5, Guðmundur Kristjánsson 7 - Olgeir Sigurgeirsson 5 (78., Árni Gunnarsson -), *Alfreð Finnbogason 9, Kristinn Steindórsson 5 (68., Andri Yeoman 5) - Guðmundur Pétursson 5 (82., Haukur Baldvinsson -). Stjarnan 4–4–2 Bjarni Þ. Halldórsson 5 - Bjarki Páll Eysteinsson 5, Daníel Laxdal 4, Tryggvi Bjarnason 5, Jóhann Laxdal 5 - Þorvaldur Árnason 6, Dennis Danry 3¨(65., Björn Pálsson 5), Atli Jóhannsson 4 (78., Arnar Björgvinsson -), Halldór Orri Björnsson 5 - Ellert Hreinsson 5 (37., Hilmar Hilmarsson 5), Steinþór Freyr Þorsteinsson 6. FÓTBOLTI Grindvíkingar náðu ekki að komast upp fyrir Selfyssinga og úr fallsætinu eftir, 1-1, jafn- tefli í botnslagnum suður með sjó í gærkvöldi. Heimamenn byrjuðu leikinn af miklum krafti og komust yfir eftir frábæra sókn sem endaði með marki frá Grétari Ólafi Hjart- arsyni. Selfyssingar náðu að jafna þegar um tíu mínútur voru liðnar af síðari hálfleiknum , en Auðun Helgason , leikmaður Grindvík- inga, skoraði sjálfsmark og þar við satt. Það verður að teljast ótrúlegt að Grindvíkingar hafi ekki náð að skora fleiri mörk í leiknum en Selfyssingar verða að þakka Jóhanni Ólafi Sigurðssyni markverði fyrir hreint út sagt frábæran leik og það er honum að þakka að leiknum lyktaði með jafntefli. „Mér fannst þetta ekki sann- gjörn úrslit,“ sagði Orri Freyr Hjaltalín ,fyrirliði Grindvíkinga, eftir leikinn í gær. „Við fengum heilan hellinga af færum í fyrri hálfleiknum og vorum bara klauf- ar að ná ekki að skora fleiri mörk. Ég tel líka að við hefðum átt að fá víti en dómarinn [Erlendur Eiríks- son] dæmdi óbeina aukaspyrnu , sem er mér alveg óskiljanlegt,“ „Þessi úrslit verða að teljast frekar sanngjörn ef maður skoðar leikinn í heild sinni,“ sagði Guðmundur Benediktsson, þjálfari Selfyssinga, eftir leikinn í gær. „Við spiluðum alveg hreint eins og aumingjar í fyrri hálfleik og áttum í raun ekkert gott skilið úr honum, en svo komu strákarnir til baka í þeim síðari og við komumst aftur inn í leikinn. Strákarnir sýndu ákveðinn karakter í síðari hálfleiknum og við hefðum alveg getað stolið sigrinum í lokin.“ - sp Selfyssingar heppnir að ná stigi gegn Grindavík í sex stiga slagnum í gær: Vorum klaufar að skora ekki meira ÓHEPPINN Auðun Helgason skoraði sjálfsmark í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM FÓTBOLTI Leik Breiðabliks og Stjörnunnar í Kópavogi lauk með sannfærandi sigri 4-0. Einn maður skaraði fram úr í þessum leik en Alfreð Finnbogason skoraði þrennu og lagði upp annað mark ásamt því að skora að því er virt- ist fullkomlega löglegt mark sem var ekki dæmt. Stjörnumenn sýndu lítið fram á við en voru óheppnir að fá á sig tvö víti snemma seinni hálfleiks sem var mikið áfall fyrir þá. „Mér fannst við vera betri í fyrri hálfleik og það vantaði bara mark- ið. Við fórum hins vegar yfir málin í hálfleik, ég benti strákunum á að halda áfram því sem við höfðum verið að gera og þá mundu mörk- in skila sér,“ sagði Ólafur Kristj- ánsson, þjálfari Breiðabliks, eftir leikinn. „Alfreð sýndi enn og aftur í þessum leik að hann er meðal allra bestu leikmanna deildar- innar, áskorunin fyrir hann er að halda því nú áfram. En núna tekur við leikur á öðrum forsend- um, næsti leikur í Evrópubikarn- um er tveggja leikja einvígi en það verður mjög skemmtilegt,“ sagði Ólafur en Blikar eiga næst Evr- ópuleik. „Það er mjög gott að taka þennan leik með í töskurnar út, við höfum verið að skora nóg í sumar og þetta er bara spurning um að halda sér á beinu brautinni og halda áfram. Ég hef fulla trú á að mínir menn haldi áfram að spila svona, maður segir þeim bara að halda áfram að gera það sem þeir eru bestir í. “ sagði Ólafur Kristjánsson. „Upphaf seinni hálfleiks var mjög ljótt hjá okkur, einbeiting- arleysi, mistök sem eiga ekki að sjást í þessari deild og ódýr mörk sem kosta okkur þetta stóra tap. Við vorum sjálfum okkur verst- ir en við verðum að hreinsa and- rúmsloftið sem fyrst, þessi mörk koma ekki vegna þess að þeir séu að spila sig í stórkostleg færi heldur vegna þess að við erum að gera ótrúleg mistök á eigin vallar- helmingi,“ sagði svekktur þjálfari Stjörnunnar, Bjarni Jóhannsson. Við hefðum getað skorað í byrj- un og við lögðum upp með það,hins vegar gengur það ekki upp og við missum Ellert út af sem riðlar spili okkar. Svo fáum við á okkur tvö víti þar sem mér fannst annað þeirra vera vafasamt, það er hins vegar engin afsökun fyrir þessu hroðalega tapi. Blikarnir spiluðu alveg frábær- lega og áttu sigurinn svo sannar- lega skilið, þetta er eitt albesta liðið á landinu í dag. Við þurfum núna bara að hysja upp um okkur buxurnar, við erum í neðri kant deildarinnar þegar mótið er hálfn- að virðist vera ljóst hvernig deildin skiptist, við verðum bara að mæta vel stemmdir í restina af mótinu “ sagði Bjarni. - kpt Toppsætið virðist eiga vel við leikmenn Blika Alfreð Finnbogason fór hreinlega á kostum þegar topplið Pepsi-deildarinnar, Breiðablik, kjöldró nágranna sína úr Garðabæ. Alfreð skoraði þrennu í leiknum og Blikar halda því fast í toppsætið sem þeir nældu í um daginn. SKREFI Á UNDAN Blikar voru klassa betri í gær og á undan í alla bolta. Stjarnan sá aldrei til sólar í leiknum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.