Fréttablaðið - 09.07.2010, Page 62
34 9. júlí 2010 FÖSTUDAGUR
þar. Sú litla er nánast orðin dönsk,
talar tungumálið fullkomlega og
gerir óspart grín að mér þegar ég
segi eitthvað vitlaust,“ segir hann og
hlær. Björn segist þó ekki hættur í
tónlistinni og mun hann sinna henni
eitthvað meðfram náminu. „Ég verð
alltaf tónlistarmaður. En núna ætla
ég að einbeita mér að náminu og
minna að tónlistinni, enda krefst
námið mikillar viðveru,“ segir
Björn að lokum. sara@frettabladid.is
Tónlistarmaðurinn Björn Stef-
ánsson, betur þekktur sem Bjössi
í Mínus, hefur leiklistarnám við
Teaterskolen Holberg nú í haust.
Hann segist þó ekki hættur í tón-
listinni því hann mun sinna henni
meðfram leiklistarnáminu.
„Fréttirnar komu flestum sem
ég þekki á óvart. Ég sagði engum
frá því að ég ætlaði í inntökupróf-
ið því ég nennti ekki að þurfa að
útskýra mig ef ég fengi ekki inn-
göngu,“ útskýrir Björn. Hann segir
leiklist og tónlist haldast svolítið í
hendur og segir flesta tónlistar-
menn dreyma um að verða leik-
ara og öfugt. „Mér finnst leiklistin
mjög heillandi. Mér finnst gaman
að skapa karakter og halda það
út að vera hann í einhvern tíma,
það er eitthvað mjög heillandi við
það.“
Inntökuprófið sjálft tók um sex
klukkustundir í allt og segir Björn
að hann hafi mætt kokhraustur á
staðinn og ákveðinn í að láta litla
dönskukunnáttu ekki aftra sér. „Ég
gerði mig oft að fífli þarna en ég
trúi því að ef maður gerir sitt besta
þá sjái fólk það. Skólinn hefur líka
boðið mér að taka dönskunám sam-
hliða leiklistarnáminu sem ég ætla
að gera. Ég er bæði spenntur og
kvíðinn en ég hef alltaf haft þörf
fyrir að ögra sjálfum mér og þetta
er þannig verkefni.“
Björn mun dvelja í Danmörku
næstu fjögur árin ásamt unnustu
sinni og dóttur, sem hafa að hans
sögn aðlagast nýjum heimkynnum
vel. „Við erum búin að vera í Dan-
mörku í rúmt ár og líður mjög vel
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
Ég er bæði spennt-
ur og kvíðinn en ég
hef alltaf haft þörf fyrir að
ögra sjálfum mér og þetta er
þannig verkefni.
BJÖRN STEFÁNSSON
TROMMULEIKARI MÍNUSS
LÁRÉTT
2. árás, 6. skammstöfun, 8. slit, 9.
lærdómur, 11. verslun, 12. þjóðsagna-
skepna, 14. á undan, 16. ætíð, 17.
keraldi, 18. umhyggja, 20. stöðug
hreyfing, 21. hávaði.
LÓÐRÉTT
1. bak, 3. fæddi, 4. listastefna, 5.
lúsaegg, 7. örmjór, 10. stúlka, 13. bar,
15. nöldra, 16. verkfæri, 19. ung.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. sókn, 6. eh, 8. lúi, 9. nám,
11. bt, 12. dreki, 14. fyrst, 16. sí, 17.
ámu, 18. önn, 20. ið, 21. gnýr.
LÓÐRÉTT: 1. lend, 3. ól, 4. kúbismi,
5. nit, 7. hárfínn, 10. mey, 13. krá, 15.
tuða, 16. sög, 19. ný.
Útvarpsmaðurinn Andri Freyr Viðarsson
verður viðstaddur þungarokkshátíðina
Eistnaflug nú um helgina ásamt starfsfélaga
sínum, Ómari Ragnarssyni. Eistnaflug verð-
ur haldin hátíðleg í fimmta sinn nú um helg-
ina og á meðal þeirra hljómsveita sem koma
fram eru goðsagnirnar í Napalm Death, Sól-
stafir, Dr. Spock, Mínus og Klink.
Þetta er í fyrsta sinn sem þeir Andri
Freyr og Ómar sækja hátíðina, sem margir
líta á sem árshátíð þungarokksins, og segj-
ast þeir hlakka mikið til að upplifa rokkið
sem þar ríkir. „Þetta er í fyrsta sinn sem
ég fer á Eistnaflug, sem er alveg til skamm-
ar, enda er ég heimamaður. Þetta er stór
stund og ekki skemmir fyrir að við fáum
að upplifa hana saman, ég og Ómar,“ segir
útvarpsmaðurinn knái. Aðspurður segist
Andri Freyr hvað spenntastur fyrir að sjá
kempurnar í Napalm Death, Klink, Mínus
og Plastic Gods.
Ómar segist einnig spenntur fyrir hátíð-
inni og er fullviss um að hann eigi eftir að
skemmta sér vel. „Ég á eftir að fíla þetta,
þetta er „power“ og kraftur. Ég er gamall
þungarokkari sjálfur og vildi bara hlusta
á Little Richard og Chuck Berry á mínum
yngri árum, Elvis var aldrei nógu grófur
fyrir mig. Ég er því viss um að ég eigi eftir
að falla vel inn í hópinn. Nafnið á hátíðinni
sjálfri þykir mér, sjö barna föður, einnig
dásamlegt í alla staði,“ segir Ómar og hlær.
Hann segir samstarfið við Andra Frey
hafa gengið vonum framar og eru þeir
félagar orðnir hinir mestu mátar. „Þetta
hefur verið mjög gefandi, ekki síst fyrir
mig. Núna er Andri líka á heimavelli og í
staðinn fyrir að ég úði út úr mér mismun-
andi skemmtilegum fróðleik þá getur hann
nú tekið gamla manninn og sagt mér frá
öllu,“ segir Ómar.
- sm
Ómar Ragnarsson á árshátíð þungarokksins
MESTU MÁTAR Andri Freyr og Ómar Ragnarsson ætla
að sækja þungarokkshátíðina Eistnaflug um helgina.
Þetta er í fyrsta sinn sem þeir fara á hátíðina.
Söngkonan Björk Guðmunds-
dóttir er stödd hér á landi en hún
hefur unnið að upptökum
á nýjum lögum
undanfarin misseri.
Björk var stödd á
pöbbnum Boston
á miðvikudagskvöld
þar sem hún vakti
að sjálfsögðu mikla
athygli. Spænskir
ferðamenn
stóðust ekki
mátið og
spjölluðu
við söngkonuna sem tók þeim af
einlægri gestrisni.
Ragnar Bragason og aðrir kvik-
myndamenn hafa ástæðu til að
fagna því Reykjavíkurborg hefur
samþykkt að veita
hlutafélagi um rekstur
svokallaðs „heimilis
kvikmyndanna” í
Regnboganum 12
milljón króna styrk.
Fréttablaðið
hefur fylgst
náið með
afdrifum
Regn-
bogans
eftir að Sena hætti kvikmyndasýn-
ingum í húsinu sem var síðasta
miðbæjarbíó höfuðborgarinnar.
Kvikmyndasýningar ættu að hefjast
á ný 1. september.
Kári Viðarsson sem setur upp fyrstu
atvinnuleiksýninguna á Rifi í dag,
Hetju, á ekki langt að sækja hæfi-
leika sína. Frændi hans er nefnilega
leikarinn Halldór Gylfason, sem
hefur brugðið sér í hin ýmsu
hlutverk í gegnum árin, rétt eins
og Kári gerir í hinum gamansama
einleik sínum. Hvort Halldór muni
gera sér ferð á Rif til að sjá frænda
sinn þreyta frumraun sína hér á
landi skal ósagt
látið en um
tveggja klukku-
stunda akstur
er þangað úr
Reykjavík, þar
sem Halldór
býr.
- afb/fb
FRÉTTIR AF FÓLKI
FERÐALÖGIN
„Ég myndi mæla með plötunni
minni, Freak. Það er fullt af
mega-góðum lögum á henni.
Líka hljómsveitinni Empire of
the Sun. Lög eins og We Are
The People og Standing On The
Shore eru geðveik. The Globe
Sessions með Sheryl Crow er
líka ein af mínum uppáhalds-
plötum.“
Haffi Haff tónlistarmaður.
BJÖRN STEFÁNSSON: MÉR FINNST LEIKLISTIN MJÖG HEILLANDI
Bjössi í Mínus hefur nám í
leiklistarskóla í Danmörku
Í NÝTT HLUTVERK Björn Stefánsson tónlistarmaður hefur fengið inngöngu í leiklistar-
skóla í Danmörku. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
„Við erum komin hingað í norðlensku sæluna
og tökur voru að hefjast. Má segja að allt sé á
suðupunkti,“ segir Baldvin Z og bætir við að
tökuliðið hafi fengið góðar móttökur hjá Akur-
eyringum. Baldvin er einn af framleiðendum
sjónvarpsþáttanna Hæ Gosi sem verða sýndir
næsta haust á Skjá einum. Tökur voru að hefjast
í vikunni og þegar Fréttablaðið náði tali af Bald-
vini var góð stemning í herbúðum þáttanna.
„Ég eiginlega trúi varla að þetta sé að gerast.
Þetta er eins og eitt skrítið ævintýri. Við erum
búin að vera að vinna við þetta á fullu síðan í
byrjun árs og nú er þetta loksins að fara í gang,“
segir Baldvin spenntur.
Aron Pálmi Arnórsson er leikstjóri þáttanna
en þeir eru skrifaðir af öllum fjórum aðstand-
endum Zeta Film í sameiningu og eru það bræð-
urnir Kjartan og Árni Guðjónssynir sem fara
með aðalhlutverkin.
Mikil keyrsla verður á tökuliðinu en áætlað er
að taka upp sex þætti á einum mánuði. „Já, þetta
er frekar knappur tími en það hafa stærri þrek-
virki verið unnin á styttri tíma. Svo erum við
með frábært tökulið með okkur, góða blöndu af
reyndum og óreyndum.“
Tökur fara aðallega fram á Akureyri en
einnig munu einhverjar upptökur fara fram í
Eyjafirði og Hrísey. Með önnur hlutverk fara
Þórhallur Sigurðsson, María Ellingsen, Helga
Braga Jónsdóttir, Hjálmar Hjálmarsson og
Hannes Óli Ágústsson. „Við erum búin að koma
okkur vel fyrir hér í höfuðstað Norðlendinga
og þetta verður skemmtilegur mánuður,“ segir
Baldvin. - áp
Tökur hefjast á Hæ Gosa á Akureyri
FYRSTA SENAN María Ellingsen og Árni Guðjónsson
sjást hér sitja í litríku eldhúsi í fyrstu tökum sjónvarps-
þáttanna Hæ Gosi.
ERTU
AÐ FARA Í
SUMARFRÍ?
Þú getur afpantað Fréttablaðið
á meðan þú ert að heiman.
Hafðu samband í grænt númer
800-1177 eða sendu póst á
netfangið dreifing@posthusid.is
Pósthúsið ehf. annast dreifingu Fréttablaðsins,
nánari upplýsingar á www.visir.is/dreifing
VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á síðu 8.
1 Íslandsbanki.
2 Árborg og Grindavík.
3 Carles Puyol.