Fréttablaðið - 14.07.2010, Page 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI14. júlí 2010 — 163. tölublað — 10. árgangur
MIÐVIKUDAGUR
skoðun 12
Fjöll á Fróni
Pétur Þorleifsson, göngugarpur á
áttræðisaldri, lýsir gönguleiðum
á 103 fjöll í nýrri bók.
allt 2
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
HEIMASMURT NESTI er langbest í ferðalagið. Gaman
getur verið að láta hugmyndaflugið ráða en annars er ótrú-
legt hvað einföld samloka með smjöri og osti bragðast
miklu betur fyrir utan bæjarmörkin en heima í eldhúsi.
GALLAFATNAÐUR-FERÐAFATNAÐUR – MIKIÐ ÚRVAL
Skoðið sýnishornin á laxdal.is - thema KORSIKA
„Þegar ég heyrði af verkefninu
hafði ég samband við Rauða kross-inn og spurði hvort ég mætti slást
með í för. Þar var vel tekið í hug-myndina og fyrr en varði var ég á
ferðalagi um snævi þaktar slétt-ur Hvíta-Rússlands,“ segir Brynja
Dögg Friðriksdóttir, meistara-nemi í heimildarmyndagerð við
University of Salford í Manchest-er, sem hefur gert mynd um för
starfsmanna Rauða kross Íslands
til Hvíta-Rússlands, þar sem þeir
afhentu gám með gjöfum fyrir ung-börn og bágstadda í febrúar íðliðnu
um landið áður en ég lagði af stað,
annað en það sem ég hafði kynnt
mér á netinu. Hins vegar komst ég
að raun um að íbúarnir eru mjög
gestrisið fólk og áhugasamt um
menningu annarra þjóða. Maturinn
er góður og fjölbreyttur, sérstak-lega í Minsk, arkitektúrinn mikil-fenglegur og náttúran stórbrotin
með sínum fallegu sléttum, sem ég
myndi vilja sjá að sumarlagi.“Brynja viðurkennir hins vegar
að Hvíta-Rússland eigi sér skuggahliðar Bilið
heilbrigðisþjónustu. Það er þó gott
til þess að vita að Rauði krossinn
hefur styrkt lækna og hjúkrunar-fræðinga sem fara á milli og þjón-usta íbúana.“
Brynja segir ferðina hafa verið
lærdómsríka. „Mér þótti til dæmis
mjög athyglisvert að uppgötva
að þrátt fyrir bágborið efnahags-ástand skuli Hvít-Rússar hafa í
nafni Rauða krossins styrkt íbúaHaítí eftir að jarð kjþ
Utan alfaraleiðarBrynja Dögg Friðriksdóttir, nemi í heimildarmyndagerð, myndaði ferð starfsmanna Rauða kross Íslands til
Hvíta-Rússlands í febrúar síðastliðnum og uppgötvaði margt áhugavert í þessu síðasta einræðisríki Evópu.
„Þetta land virðist af einhverjum ástæðum gleymast í umræðunni um áhugaverða ferðastaði en hefur margt til brunns að bera,“
segir Brynja Dögg Friðriksdóttir, um Hvíta-Rússland sem hún heimsótti fyrr á árinu.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
SÉRBLAÐ
í Fréttablaðinu
Allt
veðrið í dag
Skemmtilegur ferðafélagi
Fréttablaðið er með 180%
meiri lestur en Morgunblaðið.
Allt sem þú þarft...
MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTABLAÐIÐ
77,5%
27,7%
Meðallestur á tölublað, höfuðborgarsvæðið, 18–49 ára.
Könnun Capacent í febrúar til apríl 2010.
MÁ
LTÍÐ
MÁN
AÐA
RINS
Níu ára keppir í fitness
Sesselja Sif Óðinsdóttir
keppti í fyrsta heims-
meistara móti barna í
fitness.
fólk 26
Elsta félag á landinu
Hið íslenska biblíufélag á
195 ára afmæli um þessar
mundir.
tímamót 17
SKIN OG SKÚRIR Í dag verður
víðast hæg norðaustlæg eða breyti-
leg átt. Bjartviðri syðra en annars
skýjað með köflum og hætt við
stöku skúrum síðdegis. Hiti 10-18
stig, hlýjast SV-lands.
VEÐUR 4
14
13
12
11
14
Ætla að taka á þeim
Víkingar úr Ólafsvík drógust
á móti Íslandsmeisturum
FH í VISA-bikarnum.
íþróttir 22
DÓMSMÁL Slitastjórn Glitnis segir
gögn sýna fram á að Jón Ásgeir
Jóhannesson hafi að undanförnu
flutt eignir á nafn eiginkonu sinn-
ar, Ingibjargar Pálmadóttur, í því
skyni að koma þeim undan kyrr-
setningu.
Þetta kemur fram í rökstuðningi
slitastjórnar sem lagður var fram
fyrir dómi í London fyrir helgi og
blaðið hefur undir höndum. Þar
kemur fram það mat slitastjórn-
arinnar að Jón Ásgeir reyni nú að
telja aðilum málsins trú um það að
eignir sem í raun eru hans, eða í
sameiginlegri eigu þeirra hjóna,
séu alfarið eign Ingibjargar.
Þá segir að óskað hafi verið eftir
lista yfir allar þær eignir sem Jón
Ásgeir hefur flutt yfir á eiginkon-
una undanfarin þrjú ár en hann ætli
sér ekki að verða við þeirri bón og
lögmenn hans hafi sent slitastjórn-
inni bréf þess efnis. „Hann gaf
ekki í skyn að engar slíkar [eigna-
tilfærslur] hefðu átt sér stað. Hans
afstaða var einfaldlega sú að honum
bæri engin skylda til að veita slíkar
upplýsingar,“ segir í rökstuðningi
slitastjórnarinnar.
Í rökstuðningnum eru talin upp
ýmis atriði sem þykja benda til þess
að Jón Ásgeir segi ósatt um eignar-
haldið á tilteknum eignum.
Þannig er Rolls Royce-bifreið,
metin á 17 milljónir, skráð á nafn
Jóns Ásgeirs en hann heldur því
fram að bíllinn hafi verið afmælis-
gjöf til Ingibjargar, sem eigi hann
að fullu. Þá er Hótel 101, sem metið
er á 590 milljónir, skráð á hjónin
sameiginlega. Jón Ásgeir heldur
því fram að það séu mistök – hótel-
ið hafi alltaf átt að vera eign Ingi-
bjargar einnar. Að sögn slitastjórn-
ar benda engin gögn til þess að nein
mistök hafi verið gerð.
Jón Ásgeir segist einnig aðeins
eiga eitt prósent í lúxusíbúðunum
við Gramercy Park North á Man-
hattan, sem sé hefðbundið forms-
atriði svo maki geti dvalið þar ef
eigandinn fellur frá. Slitastjórnin
segir engin gögn finnast um það
hvernig kaupin voru fjármögnuð og
þá hafi Jón Ásgeir orðið tvísaga um
það; einu sinni sagt Landsbankann
hafa fjármagnað kaupin og í annað
skipti sagt að Ingibjörg hafi keypt
íbúðirnar fyrir ættarauð sinn.
Þá voru tvö íbúðarhús Ingibjarg-
ar í Reykjavík nýlega veðsett fyrir
400 milljóna láni til Ingibjargar, að
því er Jón fullyrðir, þótt hans nafn
sé á lánasamningum og öðrum
gögnum. „Jón Ásgeir segist hafa
beðið lögmann sinn um að skrá
nafn sitt á veðskuldabréfið fyrir
mistök. Engin skýring hefur feng-
ist á því hvernig þau mistök áttu sér
stað eða af hverju Jón Ásgeir gaf
lögmanni sínum fyrirmæli vegna
eigna sem hann segir nú að séu sér
óviðkomandi,“ segir slitastjórnin.
Að síðustu er vikið að skíðaskála
í Frakklandi sem var fjármagnað-
ur með láni til félags í eigu þeirra
beggja (101 Chalet) en Jón Ásgeir
segir nú að hafi verið alfarið henn-
ar verkefni og því hafi hún fengið
allan hagnaðinn af sölu skálans.
Ingibjörg Pálmadóttir er stjórn-
arformaður 365, útgáfufélags
Fréttablaðsins. - sh
Þögull um eignatilfærslur
Slitastjórn Glitnis telur að Jón Ásgeir Jóhannesson hafi upp á síðkastið flutt töluvert af eignum á nafn eig-
inkonu sinnar. Hann hefur neitað að upplýsa hvaða eignir hann hefur flutt á konuna undanfarin þrjú ár.
SNÚINN NIÐUR Mótmælendur komu saman við húsnæði Alþjóðagjaldeyrissjóðsins fyrir aftan Stjórnar-
ráðshúsið í gær. Rauðri málningu var slett á hús AGS. Lögreglan handtók einn mótmælenda áður en yfir lauk.
EFNAHAGSMÁL Eygló Harðardóttir,
þingmaður Framsóknarflokksins,
hefur óskað eftir fundi í viðskipta-
nefnd Alþingis vegna mögulegra
áhrifa slitameðferðar Aska Capi-
tal á stöðu Sjóvár-Almennra.
Ríkissjóður bjargaði Sjóvá frá
gjaldþroti í fyrra þegar keyptur
var 73 prósenta hlutur í fyrirtæk-
inu fyrir 11,6 milljarða króna. Af
þeim voru 6,2 milljarðar í formi
skuldabréfa útgefnum af Öskum
Capital. „Þessir pappírar voru meg-
inuppistaðan í því eigin fé sem ríkið
kom með inn í félagið og því hlýtur
eiginfjárhlutfallið hjá því að vera
komið aftur undir það sem það ætti
að vera,“ sagði Eygló. „Það sem er
uppi á borðinu núna er hvort Sjóvá
er gjaldþrota eða ekki.“
Gunnar Þ. Andersen, forstjóri
Fjármálaeftirlitsins, segir rétt að
einhver óvissa ríki um pappíra
Aska og Avant. „Við erum að skoða
þessa hluti en það er dálítið erfitt
fyrir mig að vera að tjá mig um
áhrif á aðra eftirlitsskylda aðila á
þessari stundu,“ sagði Gunnar.
Fjármálaráðuneytið hefur
umsjón með eignarhlut ríkisins í
Sjóvá en ekki náðist í Steingrím J.
Sigfússon fjármálaráðherra vegna
málsins í gærkvöldi. - mþl / sjá síðu 4
Stór hluti innspýtingar ríkissjóðs inn í Sjóvá-Almennar voru skuldabréf Aska:
Askar gætu valdið Sjóvá vanda
VÍSINDI Ný rannsókn bendir til
þess að höfuðstórir einstakling-
ar með Alzheimer-sjúkdóm hafi
betra minni og skarpari hug en
þeir sem hafa minni höfuð. Þetta
gildir jafnvel þótt hlutfall dauðra
heilafrumna vegna sjúkdómsins
sé það sama.
Rannsóknin var birt í júlíhefti
bandarísku taugavísindastofn-
unarinnar. Þar kemur fram að
fyrir hvert prósent dauðra heila-
frumna bætir auka sentimetri
við þvermál höfuðs, árangur á
minnisprófum um sex prósent að
meðaltali.
Þótt erfðir skipti mestu um höf-
uðstærð hafa næring og aðstæð-
ur barna til sex ára aldurs mikil
áhrif líka en heili barns hefur
náð 93 prósentum af fullri stærð
strax við sex ára aldur.
Um 270 manns með Alzheimer
tóku þátt í rannsókninni. - mþl
Ný bandarísk rannsókn:
Höfuðstærð hefur
áhrif á Alzheimer