Fréttablaðið - 14.07.2010, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 14.07.2010, Blaðsíða 2
2 14. júlí 2010 MIÐVIKUDAGUR NÁTTÚRA Magn frjókorna í and- rúmsloftinu vex yfirleitt mikið þegar líður á júlímánuð og nær síðan hámarki í lok mánaðarins. Magn frjókorna er meira þessa dagana en á sama tíma síðustu ár. „Um helgina hef ég verið að mæla mjög háar tölur. Á föstudag fór þetta upp í 200 frjó á rúmmetra sem er tala sem ég er ekki vön að sjá svona snemma í júlí,“ segir Margrét Hallsdóttir, jarðfræðing- ur hjá Náttúrufræðistofnun. Margrét segir að hlýindi síð- ustu vikna séu helsta ástæða mik- ils frjómagns en að auki hafi veður verið þurrt sem hefur líka áhrif. Á Íslandi eru það aðallega þrjár tegundir frjókorna sem valda fólki óþægindum: grasfrjó, birkifrjó og súrfrjó. Birkifrjó er mest áberandi í lok maí og júní en þegar júlí geng- ur í garð eru það aðallega grasfrjó- in sem valda fólki óþægindum. Til að frjókorn valdi ofnæmi þarf það annars vegar að inni- halda allergen eða ofnæmisvaka sem er eggjahvítuefni sem líkami fólks sem er með ofnæmi skynjar sem hættulegt efni og hins vegar þurfa frjókornin að vera til staðar í miklu magni, að því er segir á vef Náttúrufræðistofnunar. Spurð hvort hún hefði einhver ráð fyrir þá sem hafa frjókorna- ofnæmi segir Margrét: „Þeir sem hafa grasofnæmi ættu ekki að fara út að hlaupa þegar mest er af grasi í loftinu, heldur þjálfa frekar inn- andyra. Svo eru ýmsir sem ráð- leggja fólki að fara í sturtu þegar það kemur heim.“ - mþl Meira af frjókornum í andrúmsloftinu en í fyrra: Fjöldi grasfrjóa í andrúmslofti nær hámarki í júlímánuði LAMBAKJÖT Lambakjötssala í júní var um það bil 35% meiri en í fyrra, 555 tonn seldust í ár en 410 tonn í sama mánuði í fyrra. Frá öðrum fjórðungi síðasta árs er söluaukn- ingin 7,8%. Þetta eru heildsölutölur, það er að segja viðskipti verslana, kjötvinnslufyrirtækja og veitinga- staða við sína birgja. „Annars vegar er verðið lækk- andi og mikið um tilboð. Hins vegar var þetta gríðarlega hlýr mánuður. Þá grillar fólk mikið og það hjálpar okkur,“ segir Sigurður Eyþórsson, framkvæmdastjóri Landssamtaka sauðfjárbænda, um ástæður þess- arar auknu sölu. Hann segir kannanir benda til þess að Íslend- ingar kjósi helst af öllu lambakjöt þegar þeir ætla að grilla. Sigurður seg- ist telja ólík- legt að svo mikil söluaukning verði einnig í júlí. Hann segir að sauðfjárbændur séu ánægðir með að salan sé að taka við sér á ný. Árið 2008 var besta ár í sölu lamba- kjöts hér á landi frá 1993. Ótti við kreppuna kom meðal annars fram í því að fólk fyllti frystikistur af lambakjöti haustið 2008. Í sam- ræmi við þá birgðasöfnun heimil- anna dróst öll kjötsala saman 2009, auk þess sem Sigurður segir að þá hafi kaupmáttarskerðingin eftir hrunið verið farin að bíta. „Núna virðist markaðurinn vera að snúast aftur og við erum kátir með það,“ segir Sigurður Eyþórsson. Útflutn- ingur hefur einnig aukist, var 170 tonn í júní, sem er 182% aukning frá því í fyrra. Fyrir vikið eru mun minni birgðir í landinu en áður. -pg 40% söluaukning frá júnímánuði í fyrra: Stóraukin sala á lambakjöti SIGURÐUR EYÞÓRSSON MARGRÉT HALLSDÓTTIR Ráðleggur fólki með frjóofnæmi að æfa innandyra yfir hásumarið. „Jónas, gengur erfiðlega að svæfa ljónið?“ „Já, enda þekkir maður ljónið af klónum.“ Jónas Skaftason er vert á Ljóni norðurs- ins á Blönduósi. Skipulagsnefnd vildi ekki samþykkja rekstrarleyfi staðarins þar sem hann uppfyllti ekki ýmis skilyrði. Jónas segist ekki ætla að loka veitingastaðnum. HUNDAHALD Talið er að um 550 óskráðir hundar séu í Reykjavík. Skráðir hundar í Reykjavík eru um 2.200 en að sögn Árnýjar Sig- urðardóttur, framkvæmdastjóra Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, má gera ráð fyrir að í viðbót séu um 25 prósent óskráðir hundar. Heilbrigðiseftirlitinu berst margar kvartanir um lausagöngu hunda í borginni en tólf hundsbit voru tilkynnt í fyrra. Árný segir nokkurn ama af lausum hundum, bæði fyrir fólk sem er hrætt við hunda og aðra sem hugnast ekki að hund- ar gangi lausir á almennings- svæðum á borð við Klambratún og Arnarhól. Hún beinir þeim tilmælum til hundaeigenda að virða lög og hafa hundana í taumi innan borgarmarka. - bs Hundahald í Reykjavík: Um 550 hundar eru óskráðir DÓMSMÁL Bandaríska skyndibita- keðjan Kentucky Fried Chick- en er komin í hart við íslensku lúgusjoppurnar Aktu taktu. KFC hefur stefnt FoodCo. ehf., eiganda Aktu taktu, og krefst þess að fyr- irtækið láti af notkun vörumerk- isins Taco-Twister. KFC á rétt á vörumerkinu Twister, og býður upp á nokkra rétti með því nafni. Forsvarsmenn Aktu taktu hafa hins vegar hafnað umleitan KFC um að láta af notkun vörumerk- isins. Þeir telja ekki forsendur fyrir því enda hafi réttur þeirra, Taco-Twister, verið á matseðli árum saman. Það verður því dómstóla að skera úr um málið, sem verður þingfest í byrjun september. - sh Vilja banna Taco-Twister: KFC stefnir Aktu taktu VINSÆLIR SÖLUTURNAR Fjórir söluturnar eru reknir undir merkjum Aktu taktu. FRÉTTABLAÐIÐ/E. ÓL MANNFJÖLDI Íslendingar verða um 436.500 talsins árið 2060 rætist mannfjöldaspá Hagstofu Íslands fyrir næstu 50 ár. Spáin gerir ráð fyrir fólksfækkun á Íslandi á yfirstandandi ári, en að fólks- fjölgun taki við á næsta ári. Meðalævin mun áfram lengj- ast. Nýfæddar stúlkur geta í dag vænst þess að ná 83,3 ára aldri, en eftir 50 ár gæti meðalaldurinn verið kominn í 87,1 ár. Meðalald- ur karla er lægri, 79,7 ár, en verð- ur líklega 85 ár árið 2060, sam- kvæmt spá Hagstofunnar. - bj Spá fólksfjölgun áfram: Verðum 436.500 eftir fimmtíu ár BRETLAND Anna Chapman, einn rússnesku njósnaranna sem eru í haldi í Bandaríkjunum, hefur misst ríkisborgararétt sinn í Bretlandi. Hann fékk hún þegar hún giftist Breta árið 2002. Anna heitir í raun Anya Kush- chenko og var með tvöfaldan rík- isborgararétt frá 2002. Lögmað- ur hennar sagði í síðustu viku að hún hefði vildi fara til Bretlands. Innanríkisráðuneytið hefur hins vegar ógilt vegabréf hennar og vinnur að því að gera henni ókleift að ferðast til landsins. - þeb Einn njósnara sem eru í haldi: Missir breskan ríkisborgararétt ÍTALÍA Lögreglan á Ítalíu handtók í gær 300 manns vegna gruns um aðild að morðum og skipulagðri glæpastarfsemi, að því er fram kom á vef breska ríkisútvarps- ins, BBC. Í hópi hinna handteknu var Domenico Oppedisano, meintur höfuðpaur Calabrian-fjölskyld- unnar, sem er ein sú valdamesta innan ítölsku mafíunnar. Opped- isano er áttræður. Auk hans var framkvæmda- stjóri glæpafjölskyldunnar hand- tekinn í Mílanó, ásamt 160 öðrum, þar á meðal kaupsýslumenn og embættismenn úr heilbrigðisstétt. Lögreglan lét til skarar skríða í kjölfar innbyrðis átaka í Calabri- an-fjölskyldunni, eftir að norður- armur glæpasamtakanna reyndi að ná völdum yfir þeim syðri. - bs Fjöldahandtökur á Ítalíu: Lögreglan náði mafíuforingja HEILBRIGÐISMÁL Efnahagskreppan sem nú geisar á Íslandi í kjölfar bankahrunsins haustið 2008 kann að verða til góðs fyrir heilsufar þjóðarinnar ef marka má nið- urstöður erlendra rannsókna á áhrifum hagsveiflna. Dr. Tinna Laufey Ásgeirs- dóttir, lektor og umsjónarmað- ur MS-náms í heilsufræðum við Háskóla Íslands, segir rannsókn- ir sýna nokkuð skýr tengsl milli efnahagslægða og heilsufars. „Þær sýna frekar að heilsa batni í kreppum heldur en að henni hraki. Helsta undantekningin er geðsjúkdómar og því er mik- ilvægt að hafa augum á þeim og fylgjast með sjálfsvígum. Að öðru leyti er dánartíðni almennt minni í kreppum en þegar hagkerfið er í uppsveiflu,“ segir Tinna. Ásamt Unni Önnu Valdimars- dóttur, forstöðumanni Miðstöðvar í lýðheilsuvísindum, og Ragnheiði Bjarnadóttur, fæðingarlækni á Landspítala, er Tinna ábyrgðar- maður nýrrar rannsóknar sem efna á til og ber yfirskriftina „Áhrif efnahagshrunsins á Íslandi 2008 á tíðni fyrirbura og léttbura- fæðinga.“ „Þetta er hluti af stærra verk- efni þar sem við erum nokkur í hóp að kanna ýmis áhrif efna- hagshrunsins á heilsu og heil- brigði. Það er til dæmis verið að skoða áhrif á heilsutengda hegð- un, eins og hreyfingu og matar- æði og áhrif á ýmsa sjúkdóma. Þetta er enn allt á frumstigi og við erum enn að reyna að fjármagna verkefnið,“ segir Tinna. Orsakir þess að heilsa fólks batnar almennt í kreppum eru ekki fullrannsakaðar. „En það er margt sem fólk getur látið sér detta í hug. Þegar hægist á hag- kerfinu verður til dæmis minni mengun. Umferð minnkar og umferðarslysum fækkar. Fólk hefur meiri tíma til að hreyfa sig og hefur minna fjármagn til að stunda ýmiss konar áhættusama hegðun á borð við reykingar og áfengisneyslu,“ bendir Tinna á. Að sögn Tinnu vonast íslenski rannsóknarhópurinn til að bæta við heildarmyndina í þessum fræðum. „Hver og ein kreppa í hverju landi er ólík en menn geta séð eitthvert mynstur út úr rann- sóknum við mismunandi aðstæð- ur,“ segir hún og bætir við að mikilvægt sé að rannsóknir hér hefjist sem fyrst. „Þá hefðu nið- urstöðurnar ekki aðeins fræði- legt gildi á alþjóðlega vísu held- ur hefðu líka hagnýtt gildi fyrir íslenska stefnumótun í þessari kreppu.“ gar@frettabladid.is Heilsa batnar oftast í efnahagskreppum Erlendar rannsóknir sýna að heilsufar batnar í efnahagskreppum. Skert fjárráð til reykinga og áfengisdrykkju og minni umferð og mengun og meiri hreyfing er möguleg skýring. Rannsóknir á áhrifum bankahrunsins hér eru á frumstigi. DR. TINNA LAUFEY ÁSGEIRSDÓTTIR Hópur íslenskra fræðimanna leitar nú leiða til að fjármagna rannsóknir á áhrifum kreppunnar á heilsufar þjóðarinnar. Vonast er til að rannsóknir geti hafist sem fyrst svo niðurstöðurnar gagnist Íslendingum í núverandi kreppu. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL SPURNING DAGSINS Nýr Nicorette plástur fæst nú 25 mg og hálfgagnsær Nýt t! Nicorette® nikótínlyf eru fáanleg án lyfseðils og eru notuð til að auðvelda reykingafólki að venja sig af tóbaki með því að draga úr nikótínþörf og fráhvarfseinkennum. Skammtar eru einstaklingsbundnir eftir því hve mikið er reykt. Nota má forðaplásturinn einan og sér eða samtímis 2mg Nicorette lyfjatyggigúmmíi eða Nicorette innsogslyfi. Hámarksdagskammtur er 1 stk forðaplástur og annað hvort 24 stk lyfjatyggigúmm eða 12 hylki af innsogslyfi.Til að ná sem bestum árangri skal fylgja leiðbeiningum í fylgiseðli. Leitið til læknis eða lyfjafræðings ef þörf er á frekari upplýsingum um lyfin. Þeir sem fengið hafa ofnæmi fyrir nikótíni eða öðrum innihaldsefnum lyfsins, nýlegt hjartaáfall, óstöðuga versnandi hjartaöng, alvarlegar hjartsláttartruflanir, ómeðhöndlaðan háþrýsting eða nýlegt heilablóðfall eiga ekki að nota Nicorette. Börn yngri en 15 ára mega ekki nota Nicorette. Þungaðar konur og konur með barn á brjósti skulu eingöngu nota Nicorette í samráði við heilbrigðisstarfsfólk. Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. Markaðsleyfishafi: McNeil Denmark ApS. Umboð á Íslandi: Vistor hf., Hörgatún 2, 210 Garðabæ. Nicorette Invisi 25 mg Er að hærri styrkleika en fyrri forðaplástrar frá Nicorette

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.