Fréttablaðið - 14.07.2010, Side 17
MIÐVIKUDAGUR 14. júlí 2010 3
Knitting Iceland var stofnað árið
2009 af Hélène Magnússon og
Ragnheiði Eiríksdóttur sem hafa
haft ýmis skemmtileg verkefni á
prjónunum síðan þá. Má þar nefna
vefrit, vefverslun, bókaútgáfu og
einstakar prjónaferðir sem skipu-
lagðar eru fyrir erlent prjónafólk
sem kemur hingað til lands. 10.
júní var fyrsta ferðin af því tagi
farin og heppnaðist hún vonum
framar.
„Ferðin gekk ótrúlega vel. Flest
prjónafólkið í ferðinni var frá
Bandaríkjunum og Kanada auk
eins Ástrala. Íslenski prjónaheim-
urinn vakti mikla lukku meðal
hópsins,“ segir Ásta Sif Theódóra
Gísladóttir, fjármálastjóri Knitt-
ing Iceland.
Ferðin tók sjö daga þar sem dval-
ið var á Vesturlandi og aðalbæki-
stöð hópsins var hótel í Borgar-
firði þaðan sem stuttar ferðir voru
farnar. „Fyrri part dags voru nám-
skeið og seinnipartinn var farið í
stuttar ferðir, svo sem á textíl-
safnið á Blönduósi, hestbak, fjór-
hjólaferð og fleira til. Og auðvit-
að voru prjónarnir alltaf uppi við
og prjónað fram eftir öllum kvöld-
um. Konurnar voru hissa á því hve
margir kunna að prjóna og hekla
hérlendis, en til að mynda í Banda-
ríkjunum er þetta mjög afmörkuð
kunnátta. Hér heima hittu þær
alls staðar fyrir fólk sem kunni
eitthvað fyrir sér í prjóni og þeim
fannst það frábært.“
Næsta ferð verður farin í lok
ágúst og sniðið á henni verður öllu
ævintýralegra, en fyrri ferðin var
hugsuð út frá lúxus. Yfirskrift
þeirrar ferðar er „Knitting in the
wild north“ og er vikuferð þar sem
gist er á Hveravöllum í svefnpoka
og mikið fer fyrir ferðum út í nátt-
úruna. Þar verður prjónað uppi í
koju á hálendinu sem Ásta Sif segir
eflaust verða mikla upplifun.
„Knitting Iceland hefur einnig
skipulagt gönguferðir um Reykja-
vík þar sem gengið er á milli garn-
og textílbúða með leiðsögumanni
og hönnuðir hittir fyrir. Framtíð-
in býður svo vonandi upp á að við
getum komið prjónaferðum fyrir
Íslendinga á dagskrá. Það er næsta
mál á dagskrá.“
juliam@frettabladid.is
Prjónaferð vakti lukku
Knitting Iceland fór af stað með prjónaferðir fyrir útlendinga hingað til lands nú í sumar. Fyrsta ferðin
var farin 10. júní og tókst vonum framar en á dagskrá eru fleiri ferðir, meðal annars upp á hálendið.
Erlendi hópurinn fékk heimsókn frá íslenskum prjónurum sem vakti mikla lukku.
Í ferðinni var ýmist prjónað eða farið í
styttri ferðir, til að mynda á hestbaki.
Hópurinn heldur af stað í ferðalag að
Ullarfossi. MYND/ÚR EINKASAFNI
Í Húsafelli er hægt að eyða nótt-
inni í notalegu smáhýsi.
Þeir ferðalangar sem vilja sækja
Húsafell heim hafa um ýmislegt að
velja þegar kemur að gistingu. Þar
er hægt að leigja sér sumarbústað
í viku í senn eða planta sér niður
á tjaldstæðinu. Þeir sem vilja fara
milliveginn geta líka leigt sér smá-
hýsi en það er hægt að gera eina
nótt í einu.
Gisting í smáhýsi kostar 2.500
krónur á mann fyrir nóttina. Inni
í minni smáhýsunum eru dýnur
fyrir tvo og ofnar til að hita þau
upp en í þeim stærri rúm. Aðgang-
ur að útieldhúsi er í boði fyrir þá
sem gista í húsunum. - eö
Smáhýsi í Húsafelli
Í stærri smáhýsunum eru rúm og stóll. Þeir sem gista í húsunum hafa aðgang að
útieldhúsi.
Í minni smáhýsunum eru dýnur.
Opnunartímar
mán.–fös. kl. 9–18
laugard. kl. 9.00–16.00
Opið á sunnudögum
í júní, júlí og ágúst.
Vöðlutilboð Joakim’s
flugulínur
Það tók 4 ár að
fullkomna þessa línu
100% sambærileg
helmingi dýrari línum
hönnuð fyrir okkar
köldu vötn.
Verð aðeins 6.490 kr.
Robinson
fluguhjól
Úr áli með diskabremsu
2.900 kr.
Advance spinnstangir
6 - 8 - 9 og 10 fet frá 2.990 kr.
Vasi
Belti
CE vottaðir og samþykktir af Siglingastofnun Íslands.
• þolir allt að 20 hestafla mótor
• þyngd 45 kg
• harður botn og uppblásinn kjölur
• árar og pumpa
• Kemur í tösku og smellur í
skottið á fjölskyldubílnum
Verð 249.000 kr.
Jaxon slöngubátur 290 cm og 320 cm
Öndunarvöðlusett.
Snowbee vöðlur
og Jaxon skór
aðeins 28.950 kr.
Líklega langÓDÝRASTA
öndunar vöðlusettið á
Íslandi í dag.
Ath. Vöðlutaska fylgir.
Rafmagnsmótor að verðmæti 44.950 kr.
fylgir meðan birgðir endast.Ný sending, örfáir bátar til.
Verð aðeins 395 kr.
TOPY spúnar
Frábærar flugustangir í 4 hlutum með auka topp og flottum hólk
Verð 36.900 kr. kynningartilboð 29.900 kr.
Ertu búinn að fá nóg af eilífðarábyrgðinni sem fylgdi dýru stönginni sem þú
átt því það tekur heila eilífð að fá topp í hana … + svimandi háann flutnings-
kostnað?. Þú færð alla varahluti svo gott sem samdægurs í Joakim’s stangirnar
á 4.500 kr.
Nýtt módel IM10-MMX
Joakim’s flugustangir
99 kr. flugan
Sérvaldar silunga-
flugur
10 stk.
í poka.
990 kr.