Fréttablaðið - 14.07.2010, Page 22
18 14. júlí 2010 MIÐVIKUDAGUR
BAKÞANKAR
Kolbeins
Óttarssonar
Proppé
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Gæti þessi
dagur verið
mikið lengri?
Vó! Þetta
ský lítur
út eins og
Hómer
Simpson!
Kannski eru
skýin með
skilaboð frá
æðri mátt-
arvöldum!
Já! Þetta
ský var að
segja okkur
að horfa á
Simpsons í
dag!
Eða kannski
var það að
segja okkur
að þetta verði
ömurlegur
dagur.
Þetta ský
var til þín.
Ég ætla
að horfa á
Simpsons!
Haltu á
töskunni
minni.
Niður
með
yfirvaldið!
Niður
með
yfirvaldið!
Ég má
ekki
ganga í
þessum
bol
heima.
Kjánalegar
hugsjónir
eru betri en
engar.
Apinn
á A.
Apinn
á A.
Boltinn
á B.
Blaðran
á B.
Ég veit ekki lengur
hverju ég á að trúa.
Eitt af því góða sem efnahagshrunið hafði í för með sér er að nú er Íslend-
ingum tamara en áður að mótmæla. Hegð-
un sem hingað til var að mestu bundin
grasrótarsamtökum þykir nú sjálfsögð
fólki úr öllum þrepum samfélagsstigans.
Það er hins vegar lykilatriði að mótmæl-
in beinist gegn réttum aðila. Ef á að öskra
sig hásan gegn óréttlæti er betra að öskra
á orsakavald þess óréttlætis.
AGS er með sendifulltrúa hér á landi og
fylgist með því að eftir efnahagsáætlun
sjóðsins og stjórnvalda sé farið. Skiljan-
lega líkar það ekki öllum; ekki þarf annað
en að skoða söguna til að sjá að sjóðurinn
vinnur ekki eintóm gustukaverk. Hann
starfar eftir ströngum lögmálum frjáls-
hyggjunnar og lönd víða um heim hafa
þurft að laga sig að þeim reglum, vilji þau
fá aðstoð.
Í ÞESSU samhengi er hins vegar rétt að
rifja það upp að sjóðurinn er hér að ósk
Alþingis Íslendinga og í samvinnu við
ríkisstjórnina. Það var ekki svo að
stjórnendur hans fengju þá góðu hug-
mynd að skjótast til Íslands og taka
til í efnahagsmálum þarlendra,
þeir brugðust við beiðni um sam-
starf og aðstoð. Líki mönnum
ekki það samstarf, er eðlilegra
að beina mótmælum sínum að
hugmyndasmiðnum að baki samstarfinu;
íslenskum stjórnvöldum.
ANNARS er AGS fyrirtaks ljóti kall. Að
honum er hægt að beina reiði sinni vegna
ýmissa hluta og oft með réttu. Nefna má
málefni Magma í því skyni. Þar eru undir-
liggjandi stórmál um eignarhald auðlinda
og óskiljanlegt að stjórnvöld hafi ekki gert
neitt í fyrr en of seint er í rassinn grip-
ið. Íslendingar reyna nú á eigin skinni það
sem þeir hafa reynt að gera öðrum í gegn-
um orkuútrásina. Þar lágu auðlindir ann-
arra þjóða undir.
Á SÍÐUSTU árum hefur allt verið á sömu
bókina lært; einkavæðing var það heill-
in. Það tókst Íslendingum án AGS. Þar
gengu stjórnvöld óstudd og fengu stuðn-
ing í hverjum kosningum á fætur öðrum,
bæði í landsstjórn og hjá sveitarfélögum.
Þetta eru því trauðla framandi hugmynd-
ir. Núverandi stjórnvöld hafa síðan lítið
gert til að vinda ofan af þessu.
ÞEGAR Sovétríkin vildu gagnrýna kín-
versk stjórnvöld brugðu þau á það ráð
að skamma Albaníu. Þeir sem standa nú
vaktina fyrir utan skrifstofu sendifulltrúa
AGS og skamma hann hæst í fjölmiðlum
ættu kannski að minnast þessa og snúa
skömmum sínum að íslenskum stjórnvöld-
um.
Albanía skömmuð enn á ný
OPIÐ
KL. 11 - 19
ALLA DAGA VIKUNNAR
BÆKUR