Fréttablaðið - 16.07.2010, Síða 17

Fréttablaðið - 16.07.2010, Síða 17
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447 „Ég baka oft pönnukökur,“ segir Gunnhildur Daðadóttir fiðluleik- ari. Uppskriftina fékk hún hjá ömmusystur sinni. „Hún kenndi mér að baka pönnukökur og það voru mikil fræði á bak við þær. Það má aldrei hræra deigið rang sælis vegna þess að þá misl- ukkast þær. Ég er að reyna að halda uppi heiðri fjölskyldunnar með því að halda áfram að baka pönnukökur.“ Gunnhildur hefur verið við nám í fiðluleik erlendis síðustu fimm ár. Fyrst stundaði hún nám í Finn- landi en svo flutti hún sig yfir til Illinois í Bandaríkjunum og heim- sótti seinna bróður sinn til Seattle. Hún segir pönnukökupönnuna fylgja sér um heiminn. „Ég á allt- af eina pönnukökupönnu á Íslandi og eina þar sem ég er á hverjum tíma,“ segir Gunnhildur og heldur áfram: „Svo fer ég í útilegur og þá tek ég pönnuna með á prímus.“ Að sögn Gunnhildar finnst Finn- um og Bandaríkjamönnum pönnu- kökur góðar. „Þetta er svolítið Setur pönnuna á prímus Ef deigið væri hrært rangsælis gætu pönnukökurnar mislukkast. Þetta var trú ömmusystur Gunnhildar Daðadóttur fiðluleikara sem gefur lesendum uppskrift að pönnukökum sem eru vinsælar um heiminn. Gunnhildur Daðadóttir hefur gefið Finnum, Bandaríkjamönnum og Íslendingum pönnukökur að smakka. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR 50 g smjörlíki 3 dl hveiti 4-5 dl nýmjólk 1 tsk. vanillusykur ½ tsk. lyftiduft ¼ tsk. hjartarsalt ½ tsk. salt 1 egg Bræðið smjörlíkið á pönnuköku- pönn- unni og látið kólna. Blandið þurrefnunum saman. Blandið mjólk- inni rólega saman við á meðan hrært er réttsælis í blöndunni. Bætið egginu út í og bræddu smjörlíkinu. Bakið svo þunnar pönnukökur á pönnu- kökupönnunni. Berið fram með sykri eða sultu og rjóma. PÖNNUKÖKUR FIÐLULEIKARANS Hrærðar réttsælis 20 STYKKI Veitingahúsið Perlan - Sími 562 0200 - Fax 562 0207 Netfang perlan@perlan.is - Heimasíða www.perlan.is 4ra rétta Góð tækifæ risgjöf! Kryddlegin bleikja með rússneskri pönnuköku, dillrjóma og piparrótarsósu Humarsúpa rjómalöguð, með Madeira og grilluðum humarhölum Fiskur dagsins það ferskasta hverju sinni; útfærður af matreiðslumönnum Perlunnar *** eða / Or *** Lambatvenna með steinseljurótarmauki, aspas, rófu, soðkartöflu og basil-myntu gljáa Kókoshnetu Tapioca með steiktu mangói og lychee sorbet Verð aðeins 7.290 kr. tilboðsseðill A u g lý si n g a sí m i Allt sem þú þarft… KÁTIR DAGAR hófust í Langanesbyggð í gær og standa fram á sunnudag. Á Kátum dögum er skemmti- leg dagskrá fyrir alla fjölskylduna og má þar nefna fjölda dansleikja fyrir börn, unglinga og fullorðna. öðruvísi heldur en þeir eru vanir. Í Ameríkunni eru pönnukökur mjög þykkar og í Finnlandi eru þær litl- ar eins og lummur.“ Gunnhildur leikur ásamt Guð- ríði St. Sigurðardóttur á tónleik- um í Gljúfrasteini klukkan fjögur á sunnudag. martaf@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.