Fréttablaðið - 16.07.2010, Qupperneq 46
30 16. júlí 2010 FÖSTUDAGUR
Hjördís Lilja Örnólfsdóttir, dans-
ari hjá Íslenska dansflokknum,
slasaðist illa á sýningu flokks-
ins í Póllandi fyrir stuttu. Hjör-
dís Lilja var flutt á spítala strax
að sýningu lokinni þar sem öxlin
á henni var gifsuð sem varð til
þess að henni var meinað að fara
um borð í flugvélina heim til
Íslands.
„Þetta var síðasta sýning-
in okkar í Póllandi og rétt fyrir
lokaatriðið okkar fór ég í lyftu og
lenti heldur illa úr henni og datt á
öxlina. Ég fann strax að það var
eitthvað mikið að því ég gat ekki
hreyft á mér vinstri handlegginn,
ég kláraði samt dansinn og reyndi
að koma því til skila til dansfé-
laganna að ég gæti ekki hreyft
handlegginn. Ég man þetta ekki
nákvæmlega en við náðum þó að
klára verkið,“ segir Hjördís Lilja,
en við fallið slitnuðu liðbönd sem
halda viðbeininu við öxlina auk
þess sem hún tognaði.
„Eftir sýninguna var ég keyrð
upp á næsta spítala þar sem voru
aðeins tveir læknar á vakt og þeir
voru báðir í aðgerð. Við biðum í
svolitla stund og þá kom annar
læknirinn fram með blóðuga
hanska og sagðist geta litið á mig
ef ég biði í fimm klukkutíma.“
Hjördís Lilja ákvað að prófa
annan spítala en þar var einnig
löng bið eftir lækni en á þriðja
spítalanum komst hún loks undir
læknishendur. „Þar var ég send í
röntgen og svo sett í brjálað gifs
sem náði mér niður að mitti og
handleggurinn var gifsaður fast-
ur við líkamann,“ útskýrir Hjör-
dís Lilja sem lenti svo í miklum
vandræðum þegar hún ætlaði að
fljúga heim.
„Ég lenti í vandræðum strax
við innritunina vegna gifsins og
svo aftur við öryggishliðið. Þegar
það voru um tuttugu mínútur í
að við máttum fara um borð fékk
ég þær fréttir að ég mætti ekki
fljúga þar sem ég væri ekki með
neitt læknisvottorð. Mér tókst
að sannfæra manninn um að ég
væri ekki of alvarlega slösuð og
bað hann um að redda mér áhaldi
til að rífa af mér gifsið, sem hann
gerði. Ég og vinkona mín fórum
svo inn á klósett þar sem við
náðum á einhvern hátt að rífa
þetta allt utan af mér. Sem betur
fer var ég með aukabol í hand-
farangrinum því annars hefði ég
bara verið ber að ofan,“ segir hún
og hlær.
Hjördís Lilja segist eiga eftir
að ná fullum bata og kveðst hepp-
in að öxlin sjálf hafi ekki brotnað
við fallið.
sara@frettabladid.is
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
SUMARFRÍIÐ MITT
Ég og vinkona mín
fórum svo inn á
klósett þar sem við náðum á
einhvern hátt að rífa þetta allt
utan af mér.
HJÖRDÍS LILJA ÖRNÓLFSDÓTTIR
DANSARI Í ÍSLENSKA DANSFLOKKNUM
LÁRÉTT
2. loga, 6. átt, 8. hryggur, 9. arg, 11.
skst., 12. hlutdeild, 14. krapi, 16. í
röð, 17. kvk nafn, 18. andi, 20. stefna,
21. auma.
LÓÐRÉTT
1. mælieining, 3. í röð, 4. jarðbrú, 5.
sjáðu, 7. deilur, 10. fjallaskarð, 13.
tækifæri, 15. bata, 16. kæla, 19. 950.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. báls, 6. nv, 8. bak, 9. sig,
11. no, 12. aðild, 14. slabb, 16. íj, 17.
gró, 18. sál, 20. út, 21. arma.
LÓÐRÉTT: 1. únsa, 3. áb, 4. landbrú,
5. sko, 7. viðsjár, 10. gil, 13. lag, 15.
bóta, 16. ísa, 19. lm.
„Ég hef í raun engin sumarfrís-
plön þar sem ég er í námi og
vinn mikið í sumar. En ég ætla
þó að skjótast um helgar út úr
bænum í sumarbústað og hitta
vini og ættingja.“
Brynja Dögg Friðriksdóttir, nemi í heim-
ildarmyndagerð.
VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á síðu 8.
1 Raiffeisen Zentralbank.
2 Grindavíkur.
3 Karpaty Lviv.
„Við fórum ekki beint í prufu fyrir þetta. Þeir
höfðu samband og spurðu hvort við vildum
prufa að koma saman. Við slógum til og spil-
uðum nokkur lög fyrir þá og þeir réðu okkur í
framhaldi af því,“ segir Hannes Friðbjarnarson
úr hljómsveitinni Buff.
Eins og áður hefur komið fram í Fréttablað-
inu verður söngleikurinn um Buddy Holly
frumsýndur í Austurbæ í október. Ingó í Veð-
urguðunum fer með hlutverk söngvarans en sá
stóð ekki einn á sviði. Holly hafði bandið The
Crickets sér til halds og trausts á sviðinu og
nú hefur verið ráðið í hlutverk þeirra. Ásamt
Hannesi verða Guðmundur Stefán Þorláksson
gítarleikari úr hljómsveitinni Hraun og Baldur
Ragnarsson bassaleikari úr Ljótu Hálfvitunum
sem fara með hlutverk bandsins. Þeir félagar
eiga sér ekki langa sögu á sviði nema þá helst
hann Baldur. Hann hefur um árabil verið mjög
virkur í áhugaleikhópum og nú síðast í söng-
leiknum ROKK. Hannes hefur meðal annars
gert garðinn frægan í útlöndum í rússneskum
vodkaauglýsingum en lítið hefur spurst um
leikafrek Guðmundar.
„Ég hef aldrei spilað neitt af lögum Buddy
Holly og The Crickets en þau eru grunnurinn að
rokkinu þannig að þetta liggur vel fyrir okkur,“
segir Hannes. „Þeir sem lifa og hrærast í músík
þekkja til Buddy Holly og The Crickets og ein-
hverra laga þeirra. Þetta leggst vel í mig og
hópurinn sem búið er að nefna virðist ætla að
verða frábær.“
Bandið kemur saman í ágúst til að renna yfir
þennan fimmtán laga lista sem búið er að setja
saman fyrir sýninguna. Það er síðan í septemb-
er sem allur hópurinn kemur saman og æfingar
hefjast á sviði í Austurbæ.
„Það er bara Buddy Holly í spilaranum út
sumarið til að fá þetta beint í æð,“ segir Hann-
es að lokum. - ls
Feta í fótspor hljómsveitar Buddy Holly
THE CRICKETS Hannes, Baldur og Gummi fara með
hlutverk hljómsveitarinnar The Crickets í söngleiknum
um líf Buddy Holly. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
HJÖRDÍS LILJA ÖRNÓLFSDÓTTIR: SLASAÐIST Á DANSSÝNINGU Í PÓLLANDI
Mátti ekki fara með gifs í
flug og reif það því af sér
HÖRKUKVENDI Hjördís Lilja Örnólfsdóttir dansari lenti í miklum vandræðum þegar
hún ætlaði að fljúga heim frá Póllandi. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR BIRKISSON
Rússneska fyrirsætan Natalia
Vodianova er stödd á Íslandi. Sést
hefur til hennar á rölti um miðbæ
Reykjavíkurborgar. Hefur hún
vakið athygli meðal vegfarenda
og búðareigenda á Laugaveginum
enda stórglæsileg kona og flest-
ir sem fletta tískublöðum ættu að
kannast við andlit hennar. Natalia
er ein þekktasta fyrirsæta í heim-
inum í dag og var númer sjö á
lista Forbes yfir ríkustu fyrirsæt-
ur í heimi. Hún var einnig kynn-
ir í Eurovision á síðsta ári þegar
keppnin var haldin í Moskvu.
Natalia sást á röltinu um mið-
bæinn í vikunni með dökkhærð-
um manni en það mun ekki hafa
verið eiginmaður hennar. Þau röltu
um miðbæinn og komu meðal ann-
ars við í skartgripabúðinni OR á
Laugaveginum. Heiða, starfsstúlka
í búðinni, kannaðist við ofurfyrir-
sætuna sem skoðaði íslensku gull-
smíðina gaumgæfilega en festi
ekki kaup á neinu. „Maðurinn sem
var með henni hringdi á undan sér
og spurði hvort við værum ekki
örugglega enn þá á sama stað.
Hann hafði komið hérna áður og
vildi sýna Nataliu skartgripina,“
segir Heiða.
Rússneska fyrirsætan er 28 ára
og þriggja barna móðir. Hún hefur
verið gift breska fasteignaerf-
ingjanum, Justin Trevor Berkeley
Portman, síðan árið 2001.
Fréttablaðið grennslaðist fyrir
um ferðir ofurfyrirsætunnar
á Íslandi og hafði samband við
umboðsskrifstofu hennar, Why
Not model agency í Mílanó, en þeir
sögðust ekki vita neitt um ferðir
hennar þessa dagana. Ekki er því
vitað hvort um frí eða vinnuferð
var að ræða hjá fyrirsætunni, sem
hefur verið á forsíðu breska Vogue
sjö sinnum.
Flestir þeir sem urðu varir við
ferðir Nataliu í Reykjavík höfðu
orð á því hvað hún væri einstak-
lega fögur og sæist langa leið að
þarna væri á ferðinni ofurfyrir-
sæta. - áp
Fyrirsætan Natalia Vodianova í Reykjavík
NAUT SÓLARINNAR Í REYKJAVÍK Rúss-
neska ofurfyrirsætan Natalia Vodianova
kíkti í búðir á Laugaveginum í vikunni.
FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
Ólafur Darri Ólafs-
son og nokkrir félagar
hans úr leikarastétt og
skemmtanabransanum
hafa verið áberandi
í auglýsingum
Símans undan-
farna mánuði.
Þeir félagar hafa
auglýst 3G-net
fyrirtækisins af
miklum móð,
fyrst í eftir-
minnilegum þema-
partíum og nú síðast í mýrarbolta
og á vespum. Nú heyrist af því að
enn ein auglýsingin sé væntanleg
og þar mun frægt bensínstöðvar-
atriði úr kvikmyndinni Zoolander
vera haft til fyrirmyndar.
Félagar úr leikhópnum
Vesturporti voru staddir
í Súðavík á dögunum og
nutu þar lífsins. Meðal
viðstaddra var Björn
Thors sem einmitt
hefur farið mikinn
í áðurnefndum
auglýsingum.
Hópurinn
horfði á
úrslitaleik HM
í knattspyrnu
í félagsheimili á
staðnum og þar
var gleðin við völd. Björn hafði
nýlokið upptökum á Zoolander-
auglýsingunni og lét sér ekki muna
um að splæsa bjór á alla viðstadda.
Lét leikarinn svo um mælt að bjór-
inn væri í boði Símans.
Friðrik Weisshappel hefur nú
bætt sextánda húðflúrinu við safn-
ið sitt en það er stórt, blátt, akkeri
sem hann lét setja á vinstri fram-
handlegg sinn. Þrátt fyrir að Friðrik
hafi verið á sjó á Eskifirði um 18
ára aldur ku hann þó ekki hafa
fengið sér það út af tengingu við
sjómennskuna. Akkerið
stendur fyrir festu, en
Friðrik er vel kvæntur
og á von á sínu
öðru barni. Friðrik
hefur leitað rétta
akkerisins í að
verða ár og fann
það að lokum
í skjaldarmerki
tengdafjöl-
skyldu
sinnar.
- afb/ls
FRÉTTIR AF FÓLKI
ERTU
AÐ FARA Í
SUMARFRÍ?
Þú getur afpantað Fréttablaðið
á meðan þú ert að heiman.
Hafðu samband í grænt númer
800-1177 eða sendu póst á
netfangið dreifing@posthusid.is
Pósthúsið ehf. annast dreifingu Fréttablaðsins,
nánari upplýsingar á www.visir.is/dreifing