Fréttablaðið - 21.07.2010, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 21.07.2010, Blaðsíða 8
8 21. júlí 2010 MIÐVIKUDAGUR SAMGÖNGUR Landeyjahöfn var vígð með pomp og prakt í gær, þegar Herjólfur lagði þar að bryggju að viðstöddu miklu fjölmenni. Skipið var fullt og innanborðs var meðal annars bæjarstjórn Vestmanna- eyja sem nýtt hafði ferðina til fundarhalda. Kristján Möller samgönguráð- herra hélt ræðu við opnun hafn- arinnar og sagði við það tæki- færi að höfnin væri ekki einungis mikið samgöngumannvirki, hún væri mikið þrekvirki. Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, líkti ferðinni á milli lands og Eyja við fyrstu tunglferðina, sem farin var árið 1969. „Núna áðan þegar ég sté frá borði úr Herjólfi og í land hér í Landeyjum er ekki laust við að mér líði eins og Neil Armstrong þegar hann steig fæti á tunglið fyrstur manna. Skref mitt var svo sem ekki stórt en skrefið sem samfélag okkar Eyjamanna er nú að taka er gríðarlegt.“ Áætlunarferðir milli nýju hafn- arinnar og Eyja hefjast í dag. Með tilkomu hafnarinnar styttist ferða- tími á sjó milli lands og Eyja úr tæpum þremur klukkustundum í rúmar 30 mínútur. Samtals styttist því ferðatíminn milli Vestmanna- eyja og Reykjavíkur úr fjórum klukkustundum í tvær og hálfa. Hafnargerðin í Landeyjum var boðin út í apríl árið 2008 og hóf- ust framkvæmdir þá um haustið. Kostnaðurinn við framkvæmdirn- ar var rétt tæpir fjórir milljarð- ar króna, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Siglinga- stofnun og samgöngu- og sveitar- stjórnarráðuneytinu. Bryggjan í Bakkafjöru er 70 metrar að lengd, með 10 metra og 15 metra löngum göflum. Hún er varin með tveimur brimvarnar- görðum en hafnarmynnið er 90 metrar á breidd og um 600 metrum utan við ferjubryggjuna. kolbeinn@frettabladid.is magnusl@frettabladid.is 1 Hvaða íslenska hljómsveit lenti í ofsaveðri á tónlistarhátíðinni G! í Færeyjum í síðustu viku? 2 Hver tók við þjálfun karlaliðs KR í knattspyrnu eftir starfslok Loga Ólafssonar á mánudag? 3 Í hvaða landi er Kim Jong-Il leiðtogi? SVÖRIN ERU Á SÍÐU 26 DANMÖRK Lögreglan í Danmörku hefur lýst eftir 41 árs gamalli konu sem fór til Bosníu fyrir tveimur vikum og hefur ekki skilað sér heim. Konan fór frá Danmörku og skildi fjögurra vikna gamalt barn sitt eftir hjá vinafólki. Í Bosníu ætlaði hún að skilja við eigin- mann sinn og skildi barnið eftir af ótta við að hann myndi reyna að taka barnið af henni. Þegar hún kom ekki heim til Danmerkur með áætluðu flugi var farið að spyrjast fyrir um hana. Lögregla segist skoða hvort hún hafi komið til landsins með öðru flugi, en vill ekki segja til um hvort hún telji eitthvað hafa hent konuna. - þeb Kom ekki heim með flugi: Konu saknað eftir skilnað SUÐUR-AFRÍKA Gel sem inniheldur meðal annars alnæmislyf virð- ist geta fækkað HIV-smitum meðal kvenna um helming, sam- kvæmt tilraunum sem gerðar hafa verið í Suður-Afríku. 889 konur tóku þátt í tilraun- inni, sem tók þrjú ár. Gelið átti að bera á kynfæri innan tólf tíma áður en kynlíf var stund- að og aftur innan tólf tíma eftir það. HIV-smitum fækkaði um 50 prósent fyrsta árið en virkn- in minnkaði eftir það og var 39 prósent yfir árin þrjú. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin og Sameinuðu þjóðirnar hafa fagnað niðurstöðunum og segir Alþjóðaheilbrigðisstofnunin að fáist niðurstöðurnar samþykkt- ar verði unnið að því að koma gelinu í almenna dreifingu. - þeb Ný tilraun í S-Afríku: HIV-smitum hefur fækkað um 50 prósent UPPLÝSINGATÆKNI „Stafræn eitur- lyf“ sem sækja má á Netið ógna velferð ungmenna, að því er segir á fréttavef News9.com í Oklahoma í Bandaríkjunum. Þar vestra hafa skólayfirvöld og samtök foreldra áhyggjur af því að ungdómurinn sækir mp3- hljóðskrár með upptökum sem eiga að geta valdið vímuhughrif- um ef á þær er hlustað. Neyslan er kölluð I-Dosing. Vísað er til þess að á vefjum á borð við YouTube megi finna fjölda upptaka af ungu fólki að prófa sig áfram með þessa hluti. Í umfjöllun tímaritsins Psychol- ogy Today segir hins vegar að ekki sé ástæða til að hafa af þessu mikl- ar áhyggjur, I-Dosing sé útgáfa af löngu þekktri tækni. Árið 1839 hafi Heinrich Wilhelm Dove upp- götvað að framkalla mætti hughrif með því að láta fólk hlusta á tvo stöðuga tóna á mismunandi tíðni, hvorn með sínu eyra. Þá virðist fólki sem það hlusti á hraðgengan takt. Tæknin mun hafa verið hent á lofti af ýmsum „gervivísind- um“ þótt hún hafi líka verið notuð af læknum til að fást við svefn- truflanir, rannsaka heyrn og við kvíðaröskun. Í umfjöllun Psychology Today segir að meira vafamál sé hvort upptökur þessar geti aukið fram- leiðslu dópamíns hjá þeim sem hlustar og litlar líkur séu á að setja þurfi hljóðskrár þessar í flokk með eiturlyfjum. - óká Varað við stafrænum eiturlyfjum sem ungmenni sækja á Internetið: Óttast vímuhughrif úr MP3-skrám EYRNAKONFEKT Fjölmiðlar beggja vegna Atlantsála greina nú frá því að ungmenni reyni nú að komast í vímu með hljóðskrám. N O R D IC PH O TO S/G ETTY IM A G ES Á morgun 22. júlí gefur Íslandspóstur út þrjú frímerki tileinkuð eldgosinu á Fimmvörðuhálsi og í Eyjafjallajökli. Fyrstadagsumslög fást á helstu póst - húsum og hjá Frímerkjasölunni, Stórhöfða 29, Reykjavík Sími 580 1050 stamps@postur.is www.stamps.is Frímerkin eru silki prentuð með mjög fínkorna trakíandesít ösku sem féll undir Eyjafjöllum 17. apríl 2010. Trakíandesít kvikan kemur af um 7 km dýpi, kísil innihaldið er um 60% og hún er rúmlega 1100°C heit þegar hún kemst í snertingu við jökul hettuna. Safnaðu litlum lis taverkum Til sölu gullfallegir Sólseturs- hvolpar; tilbúnir til afhendingar. Ættbókarfærðir hjá HRFÍ, heilsu- farsskoðaðir, bólusettir og örmerktir. Uppl. í síma 691 1962 Kristín. Ástralskur fjárhundur/ Aussie Lagt að í nýrri Landeyjahöfn Herjólfur fór í gær fyrstu ferð sína í hina nýju Landeyjahöfn. Bæjarstjórn Vestmannaeyja fundaði um borð og bæjarstjórinn líkti ferðinni við tungllendinguna. Reglubundnar áætlunarferðir hefjast í dag. BEÐIÐ Í OFVÆNI Stemningin var góð hjá gestum í fjörunni og ljóst að um mikilvægan atburð var að ræða. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR ÚTSÝNI Glæsilegt útsýni er úr Landeyjarhöfn, ekki síst á góðviðrisdögum. Herjólfur á skamma siglingu fyrir höndum. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR FÖGNUÐUR Mikill fögnuður braust út hjá áhorfendum þegar Herj- ólfur sigldi inn í Landeyjahöfn og lyfti stefni sínu. Fjöldi manns var samankominn eystra. FR ÉTTA B LA Ð IÐ /Ó SK A R P. FR IÐ IK SSO N GEISTLEGIR GESTIR Fulltrúar kirkjunnar létu sig ekki vanta og blessuðu þeir höfnina í bak og fyrir þegar Herjólfur var lagstur að bryggju. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.