Fréttablaðið - 21.07.2010, Síða 12
12 21. júlí 2010 MIÐVIKUDAGUR
FRÁ DEGI TIL DAGS
greinar@frettabladid.is
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is
HELGAREFNI: Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is og Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is
ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að
fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í
gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871
HALLDÓR
Í dag verður tekin í notkun Landeyjahöfn en hún er í rauninni lykill að nýjum
tækifærum og samvinnu milli Rangár-
þings og Vestmannaeyja. Loks verður höfn
við suðurströndina að veruleika á okkar
svæði.
Mörgum þótti þingsályktunartillaga
Árna Johnsen fjarlæg þegar hann lagði
hana fram á Alþingi og ég er stoltur af því
að hafa verið einn af samflutningsmönnum
Árna að þessari tillögu. Þingsályktunartil-
lagan var samþykkt og nú er Landeyjahöfn
orðin að veruleika með hjálp samgöngu-
ráðuneytisins, Siglingamálastofnunar og
margra færra sérfræðinga og verklaginna
snillinga. Um leið og höfnin opnar nýja og
spennandi samgönguleið til og frá Vest-
mannaeyjum tengir höfnin Rangæinga og
Vestmannaeyinga enn sterkari böndum en
alla tíð hafa verið sterk tengsl milli þessara
byggða. Margir Vestmannaeyingar eiga
rætur sínar í Rangárþing og Rangæingar
fóru gjarnan á vertíð til Vestmannaeyja og
opnaði það bændum og bændasonum nýja
sýn, um leið og þeir færðu björg í bú. Hér
var um ákveðna manndómsvígslu að ræða
ekki síður en smalamennsku í fjallferðum
á haustin í gamla daga.
Það má segja að Landeyjahöfn sé lykill
nýrra tækifæra bæði hér uppi á landi og í
Vestmannaeyjum. Hér opnast nýjar víddir
fyrir víðtæka samvinnu þessara byggða-
laga. Landeyjahöfn er glæsilegt mannvirki
þar sem margir hafa lagt hönd á plóginn.
Það er ánægjulegt að aðalverktaki hafnar-
innar sjálfrar er fyrirtækið Suðurverk sem
er í eigu Dofra Eysteinssonar en lagður var
grunnur að velgengni þess dugnaðarforks
þegar hann, barnungur maðurinn, var einn
þeirra sem gróf fyrir vatnleiðslunni til
Eyja á sjöunda áratugnum og enn er Dofri
að þrátt fyrir ýmiskonar kollsteypur verk-
takafyrirtækja á Íslandi. Verkið lofar svo
sannarlega meistarann og alla þá meistara
sem komið hafa að þessari þörfu og merki-
legu framkvæmd. Það er ósk mín og ann-
arra Rangæinga að blessun fylgi þessari
framkvæmd og æðri máttarvöld verndi þá
fjölmörgu sem eiga eftir að nýta sér þenn-
an samgöngumáta og þau mannvirki sem
nú hafa litið dagsins ljós íbúum Rangár-
vallasýslu, Vestmannaeyja og landsmönn-
um öllum til heilla. Mjög brýnt er að koma
strax upp smábátahöfn við þetta myndar-
lega mannvirki því tilkostnaður er til þess
að gera lítill meðan vinnuflokkar og vinnu-
vélar eru enn að störfum við hafnarmann-
vikrið. Þannig nýtast þessi mannvirki enn
betur og þeir fjármunir sem varið hefur
verið til verksins.
Lykill að nýjum tækifærum
Landeyja-
höfn
Ísólfur Gylfi
Pálmason
sveitarstjóri
Rangárþings
eystra
Óheppilegt
Landeyjahöfn var vígð í gær. Elliði Vign-
isson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum,
sagði þá að þegar hann steig á land í
Landeyjum hefði honum liðið eins og
geimfaranum Neil Armstrong og líkti
þessari samgöngubót við það þegar
maðurinn tók sín fyrstu skref á tunglinu.
Þetta er dálítið stórtæk samlíking en
líka óheppileg. Eftir að samgöngur
komust á við tunglið árið 1969 var
flogið þangað nokkrum sinnum í við-
bót, þar til það þótti ljóst að þangað
væri ekkert að sækja og tunglferðir
lögðust af. Það rímar
trauðla við framtíðarsýn
Eyjamanna.
Evrópa og Ísland
Evrópuvaktin birtir fréttir um að ungir
bændur séu að hverfa í Evrópu.
Einungis sjö prósent bænda þar eru
undir 35 ára aldri. Ekki fylgdi fréttinni
hversu hátt hlutfall bænda á Íslandi
er undir þeim aldri. Hitt er vitað að
bændastéttin á Íslandi hefur lengi
glímt við litla nýliðun; fyrir
fjórum árum var
meðalaldur
bænda hér á
landi 52 ár.
Hlekkurinn
Eins og kunnugt er klufu þrír þing-
menn sig úr Borgarahreyfingunni fyrir
ári og mynduðu Hreyfinguna. Keðjan
á milli þessara stjórnmálaafla virðist
þó ekki alveg slitin og hangir saman á
Finnboga Vikari Guðmundssyni. Hann
ritaði grein í Fréttablaðið í gær um
rækjuveiðar og titlaði sig sem fulltrúa
Hreyfingarinnar og Borgara-
hreyfingarinnar í starfshópi um
endurskoðun á fiskveiðistjórnun.
Finnbogi hefur komið víðar við
í pólitíkinni og leiddi meðal
annars lista VG í Hveragerði
í sveitarstjórnarkosningum
2006. bergsteinn@frettabladid.isÞ
að er vandi að ala upp börn. Ekki síst í samfélagi sem er í
sífelldri þróun og viðhorf sem voru viðtekin í gær standast
ekki kröfur okkar í dag. Gera verður ráð fyrir að þorri
foreldra leitist við að búa börn sín undir að takast á við
jafnveigamikil verkefni í lífinu, óháð kyni þeirra.
Þó hefur gengið heldur illa að takast á við staðalímyndir kynja
og hjálpast þar margt að. Til boða stendur endalaus varningur sem
stílaður er inn á hvort kyn fyrir sig. Foreldrar og aðrir sem þykir
vænt um börnin og vilja ekkert
nema það besta fyrir þau gá ekki
að sér og kaupa þetta dót.
Hér áður var þetta einfaldara,
bílar fyrir drengi og brúður fyrir
stúlkur; leikföng sem endurspegl-
uðu þann veruleika sem talinn var
bíða barnanna. Nú er það að stefna
flestra, að minnsta kosti í orði, að
búa börn sín undir fulla þátttöku bæði í atvinnulífi og störfum sem
snúa að fjölskyldu og heimili. Þó er skiptingin á leikfanga- og barna-
vörumarkaðinum orðin mun umfangsmeiri en áður var, vissulega í
samhengi við öran vöxt markaðar með barnavarning alls kyns.
Fyrir drengi eru í boði margháttuð vopn. Sömuleiðis karlar sem
eru færir um að fremja illvirki svo dæmi séu tekin. Stúlkum er
meðal annars boðið upp á prinsessuvarning og snyrtivörur. Þessi
andi endurspeglast einnig í stórum hluta þess fatnaðar sem falboðinn
er fyrir börn. Þetta kann að virðast saklaust en á þó sinn þátt í því
að móta kynhlutverk barnanna; drengir eru gerendur og mega jafn-
vel samsama sig með hálfgerðum eða algerum illvirkjum. Hlutverk
stúlknanna er að vera sætar prinsessur.
Skörin er svo farin að færast verulega upp í bekkinn þegar
grunnskólinn býður upp á valnámskeið fyrir unglinga þar sem ýtt
er undir gömlu staðalímyndirnar. Í markmiðsgrein grunnskólalaga
segir meðal annars að hlutverk grunnskólans sé að stuðla að alhliða
þroska allra nemenda og þátttöku þeirra í lýðræðisþjóðfélagi sem er
í sífelldri þróun. Meðal þess sem móta á starfshætti grunnskólans
er jafnrétti og virðing fyrir manngildi. Þá skal grunnskólinn stuðla
að víðsýni og efla skilning nemenda á íslensku samfélagi, auk þess
sem grunnskólinn skal leggja grundvöll að frumkvæði og sjálfstæðri
hugsun nemenda.
Líklega var fátt af fyrrnefndu ofarlega í huga þeirra sem bjuggu
til námslýsingu valnámskeiða á unglingastigi í grunnskólanum á
Álftanesi þar sem kenna átti það sem kallað var „helstu áhugamál“
bæði drengja og stúlkna. Í stelpuvali átti að kenna hvað væri í tísku
og spá í fatnað, skó, liti, förðun og heilsu. Þá átti að skoða hvað fræga
fólkið bæði hér á landi og erlendis væri að gera. Þar voru kennslu-
gögn slúðurblöð og netið. Í strákavali var viðfangsefnið úrslit helgar-
innar, bílar og bílaíþróttir og tækni og vísindi. Rétt er að taka fram
að til stóð að kenna hluta stráka- og stelpuvalsins saman og ræða þar
um ólík viðhorf og áhugamál kynjanna.
Það er vissulega hollt fyrir ungmenni að velta þeim málum fyrir
sér en í grunnskólanum fer betur á því að setja þá umræðu í sam-
band við uppbyggilegra námsefni en það að skerpa á stöðnuðum
staðalímyndum um það hver séu áhugamál pilta og stúlkna.
Foreldrar, skóli og staðalímyndir kynja:
Stríðsmenn og
pinsessur
SKOÐUN
Steinunn
Stefánsdóttir
steinunn@frettabladid.is