Fréttablaðið - 23.07.2010, Síða 42
26 23. júlí 2010 FÖSTUDAGUR
sport@frettabladid.is
GOLF Þrjár átján ára gamlar stelpur
úr GR leiða listann á Íslandsmót-
inu í höggleik sem hófst í Kiðja-
bergi í Grímsnesi í gær. Ólafía
Þórunn Kristinsdóttir er efst en
hún verður reyndar ekki 18 ára
fyrr en í október.
Hún spilaði á tveimur höggum
yfir pari vallarins sem er 71 en
þessi 73 högg Ólafíu hefðu getað
verið færri ef ekki hefði verið
fyrir einstaka óheppni hennar á
annarri braut sem er par 4.
„Ég hélt að ég hefði týnt bolt-
anum og tók víti. Ég fann fyrri
boltann seinna en þurfti að spila
hinum með vítinu og því fór sem
fór og ég endaði á að fá sex. En ég
náði mér strax upp og náði fugli á
þriðju holu,“ sagði Ólafía sem spil-
aði svo stöðugt golf út hringinn.
„Ég er sátt með daginn. Ég
skipulagði mig vel og var að koma
mér í góðar stöður til að ná í fugla.
Ég hitti ekki alltaf en svona er
þetta,“ sagði Ólafía og viðurkenndi
að hún ætti því eitthvað inni.
Hún sagði völlinn vera harðan.
„Í það minnsta ef tekið er mið af
völlunum í Reykjavík en maður
spilar bara eftir því. Ég fór tvo
æfingahringi fyrir mótið og nú
ætla ég bara að halda sama skipu-
lagi. Ég þarf bara að halda mér
rólegri,“ sagði Ólafía.
Hildur Kristín Þorvarðardóttir
er í öðru sætinu en hún er dóttir
Ragnhildar Sigurðardóttur, marg-
falds Íslandsmeistara sem ekki er
með á mótinu og heldur Hildur
því uppi heiðri fjölskyldunnar í
Kiðjaberginu. Hildur spilaði eins
og Berglind Björnsdóttir á fimm
högum yfir pari en þær eru báðar
18 ára og í GR líkt og Ólafía.
Eygló Myrra Óskarsdóttir lenti
í ævintýrum á hinni margslungnu
15. braut sem refsar grimmilega
fyrir hver mistök. Það sýndi sig
þegar Eygló missti upphafshöggið
sitt út til hægri. Boltinn hennar
lá á milli tveggja steina og var
ósláanlegur.
Eygló tók víti og sló rétt fyrir
aftan steinana. Höggið hennar fór
aðeins einn metra áfram og aftur
á milli sömu steina. Hún tók aftur
víti og sló þá aðeins fjóra metra. Þá
sló hún sjötta höggið inn á brautina
og endaði á tíu höggum. - hþh
Íslandsmótið í höggleik hófst með látum í Kiðjabergi í gær þar sem óvænt tíðindi urðu í kvennaflokki:
Unglingarnir stálu senunni í Kiðjaberginu
SKYTTURNAR ÞRJÁR Hildur Kristín, Berglind og Ólafía Þórunn stilltu sér upp eftir
flottan hring hjá þeim öllum í gær. MYND/VALUR JÓNATANSSON
Staðan í kvennaflokki:
Kylfingur (Klúbbur) Staða
1. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir (GR) +2
2. Hildur Kristín Þorvarðardóttir (GR) +5
3. Berglind Björnsdóttir (GR) +5
4. Þórdís Geirsdóttir (GK) +6
5. Valdís Þóra Jónsdóttir (GL) +6
6. Tinna Jóhannsdóttir (GK) +7
7. Nína Björk Geirsdóttir (GKJ) +8
8. Signý Arnórsdóttir (GK) +9
9. Helena Árnadóttir (GR) +10
10. Eygló Myrra Óskarsdóttir (GO) +10
Birgir Leifur Hafþórsson setti glæsilegt vallarmet á Kiðjabergsvelli
í gær. Hann lék hringinn á 68 höggum, þremur undir
pari. Búið er að setja upp hvíta teiga í fyrsta skipti
í sögu vallarins og því féll vallarmetið sem Hlynur
Geir Hjartarson setti á mánudaginn fyrst fyrr um
daginn þegar Sigurpáll Geir Sveinsson skilaði skor-
korti upp á 69 högg í hús.
Birgir fékk fugl á átjándu holunni. „Þetta var
ekkert pressupútt fyrir vallarmetinu, ég hafði ekki
hugmynd á hverju Sigurpáll eða neinn annar hefði
verið að spila. Mér fannst ég eiga fuglinn inni þar
sem ég missti stutt pútt fyrir fugli á sautjándu.
Ég var því ákveðinn í að ná fugli,“ sagði Birgir
sem var ekki alveg nógu sáttur við höggin með
járnunum í gær.
„Annars gekk nánast allt upp hjá mér. Ég byrj-
aði mjög vel og var á þremur undir eftir fjórar holur.
Ég vippaði í á fjórðu holu en ég missti líka nokkur tækifæri. Heilt yfir
spilaði ég nokkuð stöðugt,“ sagði Birgir.
Heillandi landslagið í Kiðjaberginu getur líka verið hreint helvíti.
„Það er rosalega stutt á milli fugla og skolla á þessum velli og
það getur allt gerst. Maður verður að halda sér frá vandræð-
unum. Ég vippaði og púttaði mjög vel en skorið hefði ekki
mátt vera verra miðað við spilamennskuna.
Hann var á leiðinni upp í fjölskyldusumarbústað nálægt
vellinum þegar Fréttablaðið talaði við hann en þar dvelur
Birgir yfir mótið. „Það má nánast segja að Kiðjabergið sé
hálfgerður heimavöllur,“ sagði Birgir og kímdi. „Ég hef stund-
um spilað hérna en ekki mikið í sumar.“
Planið hjá Birgi var að grilla með Sigurpáli í gærkvöldi.
„Það er alltaf létt yfir þessu og það er gaman að hittast,
það gerist ekkert of oft. Við erum hér allir í mesta bróð-
erni þrátt fyrir að það sé hörkukeppni sem mun lifa
fram á síðustu holu á sunnudag,“ segir Birgir.
BIRGIR LEIFUR HAFÞÓRSSON: SETTI VALLARMET Í KIÐJABERGINU OG LEIÐIR KARLAFLOKKINN Á ÍSLANDSMÓTINU
Rosalega stutt á milli fuglasöngs og skollanna
FÓTBOLTI Kjartan Henry Finnboga-
son skoraði tvö mörk fyrir KR
gegn Karpaty frá Úkraínu í
seinni leik liðanna í undan-
keppni Evrópudeildar UEFA í
gær. Leiknum lauk með 3-2 sigri
Karpaty sem vann einvígið þar
með 6-2. Þetta var fyrsti leikur
KR undir stjórn Rúnars Kristins-
sonar.
Úkraínumennirnir komust í 2-0
í fyrri hálfleik en Kjartan jafnaði
metin með nokkurra mínútna
millibili áður en Karpaty skoraði
sigurmarkið.
Gunnar Kristjánsson var í
byrjunarliði KR en hann hefur
verið í viðræðum við FH. Hann
fór nefbrotinn af velli eftir 23
mínútur eftir að hafa fengið
olnbogaskot. - hþh
Kjartan Henry Finnbogason:
Skoraði tvö sem
dugði KR ekki
TVÖ MÖRK Kjartan, hér í fyrri leiknum
gegn Karpaty, skoraði tvö mörk sem var
þó ekki nóg fyrir KR. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FÓTBOLTI Framherjinn Viktor
Unnar Illugason gekk í gær í
raðir Selfyssinga frá Val. Hann
er fjórði leikmaðurinn sem Guð-
mundur Benediktsson bætir í
leikmannahópinn í sumar. Áður
höfðu Selfyssingar samið við
Svía og tvo Fílabeinsstrendinga.
Guðmundur sagði við Fréttablað-
ið í gær að ekki væri von á fleiri
mönnum til liðsins á reynslu. - hþh
Viktor Unnar Illugason:
Fer til Selfoss
> Haraldur Freyr óviss um Kongsvinger
Keflavík hefur sent norska félaginu Kongsvinger gagntil-
boð vegna Haraldar Freys Guðmundssonar, fyrirliða síns.
Norska úrvalsdeildarfélagið bauð í Harald í gær. Hann
spilaði í fjögur ár með Álasund í Noregi en er ekki
viss um að það yrði rétt skref fyrir sig að fara til
Kongsvinger. Það er í harðri fallbaráttu og er í
næstneðsta sæti eftir 17 umferðir af 30. „Ég
hef heyrt lauslega í Kongsvinger og ef félögin
ná saman skoða ég málið betur. Ég er ekki
endilega viss um að þetta sé rétt skref
þegar ég lít á töfluna. Mér finnst ekki
ólíklegt að þeir fari niður,“ segir Haraldur
en heyra mátti á honum að hann myndi
líklega neita tilboði félagsins ef það kæmi.
FRJÁLSAR Ásdís Hjálmsdóttir
lenti í fimmta sæti af átta kepp-
endum í spjótkastkeppninni á
Demantamótinu í Mónakó í gær.
Ásdís kastaði lengst 59,55 metra
en Íslandsmet hennar er 61,37
metrar. Lengsta kast hennar á
árinu var á síðasta Demantamóti,
60,72 metrar, sem dugði til fjórða
sætis.
Þá stökk Sveinbjörg Zophonías-
dóttir 5,79 metra í langstökki á
Heimsmeistaramóti unglinga
í Moncton í Kanada í gær og
er komin í úrslit. Fresta þurfti
keppni í stangarstökki þar sem
Hulda Þorsteinsdóttir keppir þar
til í dag vegna úrhellisrigningar.
Helga Margrét Þorsteinsdóttir
keppir í sjöþraut í Moncton og
hafði lokið keppni í tveimur grein-
um af fjórum í gær þegar Frétta-
blaðið fór í prentun. Helga hljóp
100 metra grindahlaupið á 14,39
sekúndum sem er hennar besti
tími í ár og stökk 1,63 metra í
hástökki. Keppni lýkur í nótt. - hþh
Demantamót í Mónakó:
Ásdís í fimmta
sæti í spjótkasti
FIMMTA SÆTI Ásdís getur vel við unað
enda árangurinn góður. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Staðan í karlaflokki á
Íslandsmótinu í golfi:
Kylfingur (Klúbbur) Staða
1. Birgir Leifur Hafþórsson (GKG) -3
2. Sigurpáll Geir Sveinsson (GK) -2
3. Heiðar Davíð Bragason (GHD) 0
4. Sigmundur Einar Másson (GKG) 0
5. Davíð Gunnlaugsson (GKJ) 0
6. Örvar Samúelsson(GA) 0
7. Hjalti Atlason (GKB) +1
8. Hlynur Geir Hjartarson (GK) +1
9. Örn Ævar Hjartarson (GS) +1
10. Ólafur Már Sigurðsson (GR) +1
FÓTBOLTI Íslensk lið hafa lokið
keppni í Evrópukeppnunum þetta
árið. Síðasta liðið til þess að detta
út var Breiðablik er liðið tapaði
gegn Motherwell, 0-1, á Kópa-
vogsvelli í gær. Skoska liðið vann
rimmu liðanna 2-0 samanlagt.
Það er langur vegur frá því að
þetta skoska lið sé betra en Breiða-
blik. Þó svo að liðið hafi reynt að
spila þéttan varnarleik í gær þá
gekk Blikum afar vel að opna vörn
liðsins. Það var Skotunum aftur á
móti til happs að Blikar voru algör-
ir klaufar fyrir framan markið.
Blikar fengu að minnsta kosti fimm
mjög fín færi í gær en nýttu ekki
eitt einasta. Þeir voru sjálfum sér
verstir og geta engum um kennt
nema sjálfum sér að vera ekki
komnir áfram í Evrópudeildinni.
„Mér fannst við ekki slakir í
þessum leik heldur vorum við með
yfirburði að mínu mati. Þeir pökk-
uðu í vörn en við fundum lausn-
irnar. Auðvitað áttum við síðan
að gera betur í færunum sem
voru vissulega góð,“ sagði Ólafur
Kristjánsson, þjálfari Breiðabliks,
eftir leikinn.
Mark Skotanna kom upp úr
engu. Stutt sending inn í teiginn
þar sem einbeiting varnarmanna
Blika klikkaði og Jamie Murphy
refsaði þeim á sáran hátt.
„Það var kominn hasar í leikinn
á þessum tíma og ég held að blóðið
hafi ekki runnið eðlilega til heil-
ans er þeir skora markið. Við verð-
um að læra af því,“ sagði Ólafur
sem þó hrósaði vörninni þess utan
enda átti hún fumlausan leik fyrir
utan markið.
Það eru engir snillingar í þessu
skoska liði og þeir voru svo sann-
arlega ekki að finna upp fótbolt-
ann með löngum sendingum allan
leikinn á eina framherja liðsins.
Það er því sárgrætilegt að sjá gott
íslenskt lið ekki klára sterkari and-
stæðing en raun bar vitni.
„Við sköpum nógu mikið af
færum í báðum leikjunum til þess
að fá betri niðurstöðu. Auðvitað
er ég svekktur að við nýtum ekki
færin. Mér fannst liðið samt leggja
það mikið í leikinn og spila það
ásættanlega að ég get ekki svekkt
mig mikið heilt yfir þessum úrslit-
um. Stundum er þetta bara svona.
Ég hefði verið reiður ef menn hefðu
verið með allt í buxunum en mér
finnst við geta verið stoltir þó svo
úrslitin hafi ekki verið eins og við
óskuðum okkur.“ henry@frettabladid.is
Klaufaskapur í Kópavogi
Blikar voru sjálfum sér verstir er þeir féllu úr Evrópudeild UEFA gegn Mother-
well í gær. Blikar spiluðu mjög fínan leik gegn Motherwell en voru einstakir
klaufar að skora ekki eitt einasta mark. Skoska liðið fór áfram samanlagt 2-0.
SKOSK STEMNING Skotarnir í stúkunni voru hressir á Kópavogsvellinum í gær og
fögnuðu sigri eins og þeim einum er lagið. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FÓTBOLTI Fjórtán mörk voru skor-
uð í tveimur leikjum í 1. deild
karla í knattspyrnu í gær. Vík-
ingur styrkti stöðu sína á toppn-
um með 5-3 sigri á Fjölni eftir að
hafa lent bæði 2-1 og 3-2 undir.
Víkingar jöfnuðu í 3-3 sjö mínút-
um fyrir leikslok og skoruðu tvö
mörk áður en yfir lauk. Þeir hafa
þriggja stiga forystu á Leikni
sem á leik til góða.
ÍR vann öruggan 5-1 sigur á
Njarðvík og komst upp fyrir Þór
í þriðja sæti, fimm stigum á eftir
Víkingum. - hþh
1. deild karla í knattspyrnu:
Fjórtán mörk í
tveimur leikjum
MARKASKORARI Helgi skoraði fyrir
Víkinga í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI