Fréttablaðið - 01.09.2010, Side 6
6 1. september 2010 MIÐVIKUDAGUR
STJÓRNSÝSLA Flóahreppur braut
ítrekað lög þegar sveitarstjórn
hreppsins vék formanni umhverf-
isnefndar hreppsins frá og skipaði
nýjan formann stuttu fyrir aðdrag-
anda sveitarstjórnarkosninganna
í vor, samkvæmt úrskurði sam-
göngu- og sveitarstjórnarráðu-
neytisins.
Sveitarstjórnin ákvað á fundi
sínum 17. mars síðastliðinn að
víkja Almari Sigurðssyni úr emb-
ætti formanns umhverfisnefnd-
ar, eins og fjallað var um í Frétta-
blaðinu á þeim tíma. Almar kærði
brottvikninguna til samgöngu- og
sveitarstjórnarráðuneytisins.
„Þetta er bara eitt dæmi um
vinnubrögðin sem viðgengust hjá
þáverandi sveitarstjórn,“ segir
Almar. Hann
segir málinu
lokið af sinni
hálfu, en það
sé ágæt áminn-
ing fyrir sveit-
arstjórnarfólk
um að vanda sig
í sínum mikil-
vægu störfum.
Í úrskurði
ráðuneytisins
kemur fram að
ekki sé neitt athugavert við að
sveitarstjórn skipti um fulltrúa í
nefndum verði trúnaðarbrestur.
Framkvæmdin var hins vegar ekki
í samræmi við sveitarstjórnarlög.
Í aðdraganda kosninga kom
fram nýtt framboð í Flóahreppi.
Að því stóð hópur fólks sem var
andsnúinn Urriðafossvirkjun. Hart
var tekist á um virkjanamál fyrir
kosningarnar, og virðist brott-
rekstur Almars hafa verið hluti af
þeim deilum.
Í fundargerð sveitarstjórnar þar
sem ákveðið var að víkja Almari
frá kemur fram að hann hafi til-
kynnt um framboð gegn sitjandi
sveitarstjórn. Var vísað í tvö viðtöl
við Almar í Fréttablaðinu, þar sem
hann var titlaður „einn aðstand-
enda“ nýs framboðs.
Almar mótmælti því að hafa lýst
yfir framboði, og var hvergi á lista
í sveitarstjórnarkosningunum.
Eiginkona hans leiddi hins vegar
lista fólks sem fór fram gegn sitj-
andi sveitarstjórn.
Í úrskurði ráðuneytisins kemur
fram að sveitarstjórnin virðist
hafa byggt ákvörðun sína á túlk-
un sinni á fréttum Fréttablaðs-
ins, í stað þess að sannreyna þann
skilning sinn að Almar væri sjálf-
ur á leið í framboð. Samkvæmt
úrskurðinum var sveitarstjórn-
inni ekki heilmilt að víkja honum
frá án þess að staðreyna upplýs-
ingarnar.
Í kjölfar brottvikningar Alm-
ars kaus sveitarstjórnin nýjan
formann umhverfisnefndar. Þar
braut sveitarstjórnin aftur lög,
þar sem þau kveða á um að þurfi
að kjósa fulltrúa í ráð eða nefnd
skuli kjósa í nefndina alla að nýju.
Vegna þessa var skipan í nefndina
ólögmæt. brjann@frettabladid.is
Flóahreppur braut
lög með brottrekstri
Brottvikning formanns umhverfisnefndar Flóahrepps og skipan nýs formanns í
aðdraganda sveitarstjórnarkosninga í vor var ólögmæt samkvæmt úrskurði ráðu-
neytis. Sýnir vinnubrögð fyrrverandi meirihluta segir formaðurinn fyrrverandi.
DEILUR Hart var deilt um fyrirhugaða Urriðafossvirkjun í aðdraganda sveitarstjórnar-
kosninga. Nýtt framboð sem var andsnúið virkjuninni varð undir í kosningunum.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
ALMAR
SIGURÐSSON
NEYTENDUR Hildigunnur Hafsteinsdóttir, lög-
fræðingur Neytendasamtakanna, segir sam-
tökin nú bíða viðbragða
Expressferða við þeirri nið-
urstöðu Neytendastofu að
ferðaskrifstofan hafi átt að
endurgreiða að fullu pakka-
ferð til Berlínar.
Ferðin, sem fara átti 16.
apríl í vor, var felld niður
þar sem flugvöllurinn í
Berlín var lokaður vegna
eldgoss í Eyjafjallajökli.
Expressferðir gáfu farþeg-
unum kost á nýrri ferð gegn
25 þúsund króna viðbótarframlagi eða að fá
endurgreiddan þann helming kostnaðarins,
um 40 þúsund krónur, sem var vegna flugs-
ins sjálfs. Hótelgistingin var hins vegar ekki
endurgreidd. Sjö farþeganna leit-
uðu til Neytendasamtakanna sem
kærðu ákvörðun Expressferða
fyrir hönd eins þeirra.
Hildigunnur bendir á að Neyt-
endastofa úrskurði ekki um fjár-
hagslegar kröfur einstaklinga og
geti því ekki lagt fyrir Express-
ferðir að endurgreiða alla ferð-
ina heldur geti aðeins sagt til
um hvað ferðaskrifstofan hafi
átt að gera.
„Þó að þessi úrskurður sé
kominn er ekki víst að þessi aðili eða aðrir
í sömu sporum fái peningana sína. Nú erum
við í raun að bíða eftir því hvort Expressferð-
ir ætli að bregðast við með því að endurgreiða
þeim sem leitað hafa til okkar
eða áfrýja,“ segir Hildigunnur.
Lilja Hilmarsdóttir, rekstrar-
stjóri Expressferða, segir lög-
menn ferðaskrifstofunnar enn
fara yfir stöðuna. „Málið er enn
þá í skoðun,“ segir Lilja. - gar
Neytendasamtökin segja niðurstöðu Neytendastofu í Berlínarmáli ekki bindandi:
Boltinn er núna hjá Expressferðum
FRÉTTABLAÐIÐ Í GÆR Neytendastofa
segir það ekki samrýmast lögum að
endurgreiða ekki í heild þriggja daga
pakkaferð til Berlínar.
HILDIGUNNUR
HAFSTEINSDÓTTIR
EINN NÁMUMANNANNA Hafa nú þurft
að bíða í 27 daga. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
CHILE, AP Námumennirnir 33, sem
setið hafa fastir í lokuðum námu-
göngum í Chile síðan 5. ágúst,
hafa nú verið fastir lifandi niðri
í námugöngum lengur en áður
hefur þekkst.
Á síðasta ári voru þrír námu-
menn í Kína fastir niðri í námu-
göngum í 25 daga áður en þeim
var bjargað.
Í gær hófust fyrstu boranir
með 31 tonns bor, sem á að nota
til að bora mjóa holu niður til
mannanna. Að því búnu verður
stærri bor notaður til að útvíkka
holuna þar til hún verður nógu
víð til að mennirnir komist upp.
Búist er við að sú vinna taki
þrjá til fjóra mánuði. - gb
Boranir hefjast í Chile:
Biðin orðin sú
lengsta til þessa
EFNAHAGSMÁL Í júlímánuði voru
fluttar út vörur fyrir tæpa 44
milljarða króna og inn fyrir rúma
39 milljarða. Vöruskiptin voru
jákvæð um 4,6 milljarða. Í júlí í
fyrra voru vöruskiptin hagstæð
um tæpa 0,4 milljarða á sama
gengi.
Fyrstu sjö mánuðina 2010 voru
fluttar út vörur fyrir rúman 321
milljarð en inn fyrir tæpa 253
milljarða. Rúmlega 68 milljarða
afgangur var því á vöruskiptum
við útlönd, miðað við 41,3 millj-
arða afgang á sama tíma í fyrra.
Sem áður er langmest flutt út
af áli og sjávarafurðum en mest
inn af hrávöru, eldsneyti og fjár-
festingarvörum. - sh
Jákvæð vöruskipti í júlí:
Flutt út fyrir 44
milljarða króna
VIÐSKIPTI Slysavarnafélagið Lands-
björg hefur samið við Skyggni
um rekstur á upplýsingatækni-
umhverfi félagsins. Í þjónustunni
felst meðal annars rekstur lykil-
kerfa, vöktun á búnaði og neti og
afritun á tölvugögnum.
„Um er að ræða viðbót við fyrri
samning,“ segir í tilkynningu
Landsbjargar. Stefnt er að því að
efla öryggi og auka hagræðingu í
rekstrarumhverfi félagsins, „svo
sem með sýndarvæðingu í upp-
lýsingatækniumhverfi sem felur
í sér lækkun á rekstrarkostnaði
tölvukerfa og dregur úr fjárbind-
ingu í vélbúnaði“. - óká
Semja við Skyggni um UT:
Efla öryggi hjá
Landsbjörg
Slökkviliðsstjórar í mat
Gestum á komandi ársfundi slökkvi-
liðsstjóra í Vík verður boðið í hátíðar-
kvöldverð og rútuferð um svæðið á
kostnað sveitarfélaga á svæðinu eins
og venjan hefur verið alls staðar þar
sem ársfundurinn hefur verið haldinn.
MÝRDALSHREPPUR
U
m
á
a
m
m
hö
ur
me
sem
bey
inn
hæg
brau
Í t
borg
að sý
mark
gu fannst á morðvettvangi.
fréttum Stöðvar 2 í gær að
unnusta Hannesar hafi gist á heimili sak-
borningsins nóttina örlagaríku.
- jss
VETTVANGURvettvangi mo
dóttir iðn-
gær um
arinnar í
Norður-
nana og
st ráð-
vað það
Óvissan
yrir þá
ilum,
uráli, að
u sem
inn
. Unnið
illitíð-
- sh
Helguvík:
ur
uð
NEYTENDUR Ferðalangur sem keypti
pakkaferð til Berlínar í apríl í vor
á að fá alla ferðina endurgreidda
en ekki aðeins flugið eins og
Expressferðir vildu. Þetta er nið-
urstaða Neytendastofu.Lilja Hilmarsdóttir, rekstrar-
stjóri hjá Expressferðum, sem er
í eigu Iceland Express, segir ekki
tímabært að tjá sig um niðurstöðu
Neytendastofu. Farið verði yfir
málið með lögfræðingum í dag.Umrædd ferð átti að vera til
Berlínar 16. apríl. Þar var ætlunin
að gista á hóteli í þrjár nætur. Lilja
segir að allt fram á síðustu stundu
hafi verið vonast til að hægt yrði
að lenda í Berlín. Reyndin hafi þó
orðið sú að lokað var fyrir flugum-
ferð í Berlín og úti um allt í Evr-
ópu þennan dag.Expressferðir buðu farþegunum
að fá flughlutann endurgreiddan eða að fá sams konar ferð og greiða 25 þús-und krónur til viðbótar. Einn farþeginn sætti sig við hvorug-an kostinn og leitaði til Neyt-endasamtak-anna sem kærðu málið til Neyt-endastofu. Að
sögn Lilju kostaði umrædd ferð
um 83 þúsund krónur. Um helm-
ingurinn hafi verið vegna gisting-
arinnar.
„Við reyndum að tala við hótelið en þeir b
með allan kostnað við ferðina,“
útskýrir Lilja sem kveður lang-
flesta viðskiptavinina hafa verið
sátta við það hvernig Expressferð-
ir tóku á málinu. „Fólk skildi þetta
mjög vel.“
Þetta var eina ferðin semExpressferðir þu f
urstaða þess verði fordæmisgef-
andi.
„Spurningin er hvort allur kostn-
aður eigi eingöngu að falla á ferða-
skrifstofuna eða flugfélögin,“
segir hún. Í umfjöllun Neytenda-
stofu kemur fram það sjónarmið
Expressferða að þar sem fluginu
hafi verið aflýst vegna ófyrirsjáan-
legra aðstæðna – svokallaðs „force
majeure“ bæri ferðaskrifstofunni
ekki að endurgreiða ferðina alla.
Var þar meðal annars vísað í grein-
argerð laga um alferðir.Neytendastofa segir hins vegar
misræmi milli greinarg ðog l
Endurgreiði ferð sem aflýst var í eldgosinuNeytendastofa segir að Expressferðum beri að endurgreiða gistingu en ekki
aðeins flug í pakkaferð til Berlínar sem féll niður vegna gossins í Eyjafjallajökli.
Aflýst var á síðustu stundu og hótelið neitaði að endurgreiða Expressferðum.
BERLÍN Aflýsa þurfti flugi Expressferða til Berlínar hinn 16. apríl því flugvöllurinn var
lokaður vegna gossins í Evrópu.
LILJA
HILMARSDÓTTIR
[…] við sátum uppi með allan kostnað við ferðina.
LILJA HILMARSDÓTTIR
REKSTRARSTJÓRI HJÁ EXPRESSFERÐUM
ót-
um
eitu
un
fi
ar
g
a
þá
-
ð
n OR:
ð
TRÚMÁL
konurna
þeim og
heyra hv
segir Þó
sóknarpr
Tugir p
sem Ólaf
beitti kyn
ínskirkju
partinn í g
til fundari
Sigríður
ur segir aðað hlusta á átakanleg s
Það var ohlusta á þ
Fórna
Pre
fyri
ÖRYGGISMÁL Landhelgisgæslan
gerði umfangsmikla leit að
neyðarsendi frá sunnudegi til
mánudags sem sendi frá sér
ítrekuð skeyti.
Við eftirgrennslan kom í ljós
að neyðarsendinum hafði verið
komið fyrir í ruslagámi hjá
Sorpu.
Sendirinn hafði þá sent fjölda
neyðarskeyta sem bárust með
reglulegu millibili til björgunar-
miðstöðva beggja vegna Norður-
Atlantshafsins. - shá
Landhelgisgæslan:
Leit að neyðar-
sendi í tvo daga
Var rétt af Arion banka að reka
Jóhannes Jónsson frá Högum?
Já 75,4%
Nei 24,6%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Ertu ánægð(ur) með endur-
komu Spaugstofunnar á Stöð 2?
Segðu skoðun þína á visir.is
KJÖRKASSINN