Fréttablaðið - 01.09.2010, Síða 10
10 1. september 2010 MIÐVIKUDAGUR
NEYTENDUR Heimsmarkaðsverð
á kaffi hefur hækkað um 33 pró-
sent frá því í júní sökum uppskeru-
brests og breytinga á kaupháttum.
Kaffiverð hefur ekki verið hærra í
13 ár og segja íslenskir kaffifram-
leiðendur að verðhækkanir séu
óhjákvæmilegar hér á landi.
„Síðastliðin tvö og hálft ár hefur
hráefnisverð til okkar hækkað
um 123 prósent,“ segir Aðalheið-
ur Héðinsdóttir, stofnandi og eig-
andi Kaffitárs. „Við höfum frá árs-
byrjun 2008 hækkað verð um 39
prósent, sem þýðir að verulega er
gengið á framlegð fyrirtækisins.“
Aðalheiður gerir ráð fyrir enn
frekari hækkunum í september, en
þó aldrei meira en tíu prósent. Hún
segir ekki koma til greina að skipta
um birgja og kaupa ódýrara kaffi.
„Um 70 prósent af okkar kaffi eru
keypt frá bændum sem við höfum
verslað við í mörg ár. Þeirra afkoma
er háð okkar kaupum.“
Ólafur Ó. Johnson, fram-
kvæmdastjóri Ó. Johnson & Kaa-
ber ehf., tekur undir með Aðalheiði
og segir áframhaldandi verðhækk-
anir óumflýjanlegar og möguleiki
sé á allt að 30 prósenta hækkun.
Mest sé hækkunin á kaffi frá Kól-
umbíu sökum uppskerubrests þar
í landi en einnig hefur áhrif aukin
sala á hráefni umfram hlutabréf
í fyrirtækjum, sem gerir það að
verkum að skortur er á hrávöru.
Sigmundur Dýrfjörð, fram-
kvæmdastjóri hjá Te og kaffi,
segir hækkanirnar vera mismikl-
ar eftir löndum og fyrirtækið hafi
þurft að draga gífurlega úr sölu á
ýmsum gæðategundum. Þá tekur
hann undir með Ólafi að ein ástæð-
an fyrir hækkunum sé sala hráefn-
is umfram hlutabréf á markaðnum,
ofan á uppskerubrest.
„Við erum búin að rýna í þetta
og vonast til þess að sterkara gengi
komi til móts við okkur, en það er
því miður ekki raunin.“
Verðhækkanir á innkaupum hjá
Te og kaffi nema allt að 50 prósent-
um og hafa sumar tegundir alveg
dottið út. Sigmundur segist þó ekki
sjá fram á að hækkanirnar muni
skila sér inn á kaffihúsin í bráð.
„Kaffið er ódýrasti hlutinn af
kaffibollanum. Vélabúnaðurinn,
húsaleigan og laun starfsmanna
spila þar stærstan hlut,“ segir
hann. „Þó svo að kaffið hækki
verulega í verði hefur það ekki
gríðarleg áhrif á bollann sem
slíkan.“ sunna@frettabladid.is
Kaffi gæti hækkað
um allt að 30 prósent
Gífurleg hækkun á heimsmarkaðsverði á kaffi mun fyrr eða síðar skila sér í
innkaupakörfu Íslendinga. Uppskerubrestur og breytingar á markaðnum orsök.
Ekki lengur hægt að sitja á sér með hækkanir, segja kaffiframleiðendur.
KAFFIBOLLAR Kaffi gæti hækkað um allt að 30 prósent, að sögn framkvæmdastjóra
Ó. Johnson og Kaaber ehf. FRÉTTABLAÐIÐ/
SALTFISKVERKUN IFS bendir á að þótt
verð á saltfiski hafi hækkað lítillega sé
viðkvæmt efnahagsástand á mikilvægum
mörkuðum í S-Evrópu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SJÁVARÚTVEGUR Verð á íslenskum
sjávarafurðum í erlendri mynt
hækkaði um 1,5 prósent í júlí,
samkvæmt útreikningi IFS
Greiningar.
„Afurðaverð á erlendum mörk-
uðum hefur verið í hægu hækk-
unarferli síðustu mánuðina. Nú
hefur verðið hækkað um 6,6 pró-
sent síðustu 12 mánuði,“ segir í
umfjöllun IFS. „Tölurnar undan-
farna mánuði sýna að aðstæður
á mörkuðum erlendis hafa náð
ágætu jafnvægi. Þó er ástandið
innan einstakra afurðaflokka
misjafnt.“
Bent er á að mjölverð sé hátt í
sögulegu samhengi, sem og verð á
sjófrystum botnfiskafurðum. - óká
Sjávarafurðaverð hækkar enn:
Árshækkunin
er 6,6 prósent
Hávaði frá Players
Íbúar í nágrenni skemmtistaðarins
Players í Kópavogi vilja að reynt
verði að stemma stigu við hávaða frá
staðnum. Bæjarráð Kópavogs vísaði
málinu til umsagnar framkvæmda-
og tæknisviðs bæjarins. Ónæði mun
hafa magnast eftir að bannað var að
reykja innandyra auk þess sem meira
er um að vera á virkum kvöldum en
áður.
UMHVERFISMÁL
HANDTEKINN Þriðji fíkniefnabaróninn
sem tekinn er úr umferð á tíu mánuð-
um. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
MEXÍKÓ, AP Edgar Valdez Villar-
real, jafnan nefndur Barbie,
hefur verið handtekinn í Mexíkó.
Hann er þriðji fíkniefnabaróninn
sem handtekinn er eða felldur á
tíu mánuðum í allsherjarstríði
Mexíkóstjórnar við voldugustu
fíkniefnahringi landsins.
Valdez er talinn hafa reynt að
ná völdum í öðrum fíkniefna-
hring eftir að leiðtogi hans, Art-
uro Beltran Leyva, lést í desem-
ber síðastliðnum í átökum við
lögreglu og her.
Valdez er sakaður um stórfellt
fíkniefnasmygl og margvísleg
ofbeldisbrot. - gb
Fíkneifnaleiðtogi handtekinn:
Mexíkóstjórn
hrósar sigri
Urðunarsvæði í ólestri
Umhverfisstofnun hefur kvartað
undan því við sveitarstjórn Mýrdals-
hrepps að urðunarsvæði við Uxafót-
arlæk sé enn ógirt og að umgengni
þar sé ábótavant. Sveitarstjórn hyggst
setja girðingu umhverfis svæðið á
næstu fjárhagsáætlun.
MÝRDALSHREPPUR
FYRIRTÆKI Bráðabirgðastjórn fjár-
mögnunarfyrirtækisins Avant
sagði í fyrradag upp öllum starfs-
mönnum fyrirtækisins, 29 að tölu.
Þeir vinna allir á þriggja mánaða
uppsagnarfresti.
Friðjón Örn Friðjónsson, for-
maður bráðabirgðastjórnar
Avant, sem tók við félaginu um
miðjan júlí, segir enga breytingu
hafa orðið á starfsemi fyrirtæk-
isins. Framtíð þess sé þó sveip-
að mikilli óvissu, sem hafi valdið
því að ákveðið hafi verið að segja
starfsfólkinu upp. Friðjón vinnur
nú að drögum að nauðasamning-
um sem lagðir verða fyrir kröfu-
hafa félagsins. Reiknað er með að
þeir verði lagðir fyrir Héraðsdóm
Reykjavíkur innan þriggja vikna.
Friðjón reiknar með að hluti
starfsfólks verði ráðinn aftur.
Á meðal helstu óvissuþátta í
rekstri Avant er væntanlegur
dómur Hæstaréttar hvað varðar
vaxtaviðmið gengistryggðra lána.
Verði ákveðið að miða útreikninga
lána við samningsvexti horfi til
betri vegar. Ekki er reiknað með
að málin skýrist fyrr en dómur
Hæstaréttar liggur fyrir, hugsan-
lega innan mánaðar. „Við treyst-
um okkur ekki til annars en að
segja öllum upp,“ segir Friðjón.
- jab
Óvissa um framtíð fjármögnunarfyrirtækisins Avant:
Öllu starfsfólki Avant
var sagt upp störfum
BÍLAR Formaður bráðabirgðastjórnar
Avant segir óvíst með framtíðarhorfur
félagsins. Ákveðið hafi verið að segja
upp öllu starfsfólki. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
MYNDASTYTTULEIKUR Um helgina
var haldin í Arnhem í Hollandi
heimsmeistarakeppni í þeirri íþrótt
að þykjast vera myndastytta. Sumir
þátttakendanna unnu saman.
NORDICPHOTOS/AFP
KJARAMÁL Kjarasamningur Landssambands
slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS)
og launanefndar sveitarfélaga (LN) var
samþykktur í almennri atvæðagreiðslu í
fyrradag. Einungis munaði níu atvæðum,
en 100 manns voru ósamþykkir samningum
og 109 samþykkir. Talningu lauk laust fyrir
hádegi í gær.
Undirritun samningsins fór fram þann
20. ágúst síðastliðinn og byggði hann á til-
lögu frá ríkissáttasemjara. „Það er ástæða
til að fagna þessari góðu kjörsókn en að
sama skapi ber að túlka þennan nauma mun
sem skýr skilaboð til forsvarsmanna LSS
um að grípa miklu fyrr til aðgerða,“ segir
Valdimar Leó Friðriksson, framkvæmda-
stjóri LSS.
„Þá er ljóst í mínum huga að andstaða
félagsmanna við nýgerðan kjarasamning
skýrist meðal annars af því að samningur-
inn er ekki afturvirkur en eldri samnningur
rann út 31. ágúst 2009 eða fyrir réttu ári,“
segir hann.
Samningurinn gildir til 30. nóvember
þessa árs og hefst undirbúningur fyrir gerð
nýs kjarasamnings á næstu dögum. Öllum
frekari verkfallsaðgerðum hefur nú verið
aflýst af hálfu LSS, en allsherjarverkfall
hafði verið boðað þann 3. september næst-
komandi, hefðu samningar ekki náðst. - sv
Kjaradeilu Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna lokið:
Einungis munaði níu atkvæðum
SLÖKKVILIÐSMENN Frekari verkfallsaðgerðum hefur nú
verið aflýst eftir að samið var. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
EFTIR FRANZ KAFKA
LEIKSTJÓRN: GÍSLI ÖRN GARÐARSSON OG DAVID FARR
TÓNLIST: NICK CAVE OG WARREN ELLIS
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Miðasala 551 1200 leikhusid.is midi.is
HAMSKIPTIN
“An 85 minute masterpiece” The Daily Mail
Einstakt tækifæri,
aðeins örfáar sýningar!
Sýningar: Fim. 2/9 - Fös. 3/9 - Lau. 11/9 - Sun. 12.9