Fréttablaðið - 01.09.2010, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 01.09.2010, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 1. september 2010 Sá sem gengur inn á heimili vinar, sér þar dýrgrip sem hann ágirn- ist, stingur honum inn á sig þegar hann er einn í stofunni og fer með hann heim, er þjófur. Hann réttlætir það með sjálfum sér með því að hann sé svo veikur fyrir listaverkum, og enginn hafi séð til hans. Sá sem beitir barn kynferðislegri áreitni og ofbeldi, er líka þjófur. Hann rænir barn- ið sakleysi bernskunnar. Brýtur niður sjálfsöryggi þess og brengl- ar sjálfsmat sem er í mótun. Hægt er að endur heimta dýrgrip sem var stolið, en ekki heiðríkju bernskunn- ar. Þegar þjófurinn er foreldri eða náinn ættingi lokast öll sund í vitund barnsins. Hverjum er treystandi? Hvert getur það snúið sér? Sama gildir um unglinga sem verða fyrir slíkri reynslu á þrösk- uldi fullorðinsáranna. Heimur- inn hrynur. Með árunum geta þeir byggt sig upp aftur með stuðningi ástvina og fagmanna, en þetta fyrn- ist ekki. Algengt mun vera að börn og unglingar gangi með þessa sáru reynslu í brjóstinu árum saman án þess að tala um hana við nokkurn mann. Vita ekki hvaða afleiðingar það gæti haft, ekki síst þegar þjófur- inn er á heimilinu. Snúa þessu jafn- vel að sjálfum sér og fyllast sjálfs- fyrirlitningu. Glöggir kennarar og aðstandend- ur taka kannski eftir breytingu á þeim, og átta sig á að ekki er allt með felldu. Foreldrar eru hins vegar oft grandalausir. Góð og glöggskyn kona fékk áfall þegar hún komst að því að maðurinn hennar hafði mis- notað dóttur þeirra. Hún fór frá honum samdægurs. Sagðist eiga erfitt með að fyrirgefa sjálfri sér að hafa ekki áttað sig á því sem fram fór á heimilinu. Hún yrði að lifa með því, en það myndi hvíla á henni það sem eftir væri. Vinur minn sem ólst upp úti á landi man glöggt eftir fjölskyldu sem skar sig úr í byggðarlaginu. Faðirinn var stæðilegur maður og stundum ræðinn, en fjölskylda hans blandaði ekki geði við fólk í þorp- inu. Börnin tóku ekki þátt í leikj- um með öðrum krökkum. Stóðu oft álengdar álút og feimnisleg, gjarnan með krosslagðar hendur á brjóstinu. Konan var uppburðarlítil og forðað- ist að líta á fólk á förnum vegi þegar hún fór hjá. Þetta var dálítil ráðgáta fyrir vin minn á meðan hann var að vaxa úr grasi, en áratugum síðar fékk hann skýringu. Í ljós kom að faðirinn hafi kúgað alla fjölskylduna og misnot- að börn sín miskunnarlaust árum saman. Sannleikurinn gerir mann frjálsan Breyskur kirkjuleiðtogi sem lengst af naut óskoraðrar virðingar og vin- sælda varpar nú rýrð á þjóðkirkj- una og margir segja sig úr henni vegna málsins. Konurnar sem kröfð- ust viðurkenningar á breyskleika biskupsins eiga heiður skilinn, að ekki sé talað um dóttur hans. Það er tilfinningalegt afrek, sem mun gera öðrum fórnarlömbum auðveldara að stíga fram. Enda boðar kirkjan að sannleikurinn geri mann frjálsan, og það er mikið til í því. Það er hins vegar misskilningur að viðhafnarumbúðir geri menn almennt að heiðursmönnum á þessu sviði. Um það vitnar sagan. Biskup- inn er ekkert einsdæmi. Hvorki löng skólaganga né gott uppeldi tryggir virðingu fyrir per- sónuhelgi annarrar manneskju. Því miður. Einstaklingar úr þeim stétt- um sem við treystum á, prestar, læknar, kennarar og lögregla geta brugðist í þessum efnum, eins og hverjir aðrir. Hempa, einkennisbún- ingur og læknasloppur eru aðeins umbúðir. Þau eru bara manneskjur eins og við hin. En það breytir ekki því að það er áfall fyrir einstakling þegar þessar stoðir samfélagsins bregðast alvarlega trausti. En sárast af öllu er auðvitað þegar fjölskyldan bregst. Breyttir tímar Ekki eru margir mannsaldrar síðan stór hluti þjóðarinnar bjó á afskekktum bæjum þar sem bónd- inn átti kannski bæði börn með hús- freyjunni og vinnustúlkunum. Sjálfsagt að nota kvenmanns- kroppana úr því þeir voru þarna. Minnisstæð er unglingstúlkan sem var uppi í hlíð á ferð milli bæja þegar karl kom gangandi eftir veg- inum. Um leið og hann kom auga á hana, tók hann á rás upp hlíðina. Hún vissi hvað vakti fyrir honum og hljóp hann af sér. Sagðist aldrei ganga ein á veginum, því að körl- um hefði þótt sjálfsagt að grípa til kvenna og nota þær, rétt eins og þær væru húsdýr. Nú eru aðrir tímar. Réttindabar- átta kvenna og almenn þátttaka í atvinnulífi hefur styrkt sjálfsmynd þeirra. Þær geta verið eigin herr- ar í sínum málum og standa jafnt körlum í hvaða stöðu sem er. Þegar brotið er alvarlega á þeim verður því mætt. Jónína Michaelsdóttir blaðamaður Í DAG Þjófar sakleysisins lÍs en ku ALPARNIR s Úlpur 50% afsláttur Krakkaúlpur 50% afsláttur Útivistarjakkar 30% til 60% afsláttur og fleira og fleira... Ekki missa af þessu Takmarkað magn! Meginsamstarfsaðilar Innovit Nýsköpun | Tengs lanet | Athafnasemi Innovit, nýsköpunar- og frumkvöðlasetur, býður þér til haustfundar miðvikudaginn 1. september kl. 12:00 – 13:30 í Háskólanum í Reykjavík, Nauthólsvík. Á fundinum verða haldin nokkur stutt og skemmtileg erindi þar sem fjallað verður um það sem efst er á baugi í nýsköpun í dag. Dagskrá: 12:00: Ari Kristinn Jónsson, rektor HR, flytur stutt ávarp. 12:10: Andri Heiðar Kristinsson, framkvæmdastjóri Innovit, fjallar um frumkvöðla- umhverfið í Kísildalnum í Bandaríkjunum og samanburð við umhverfið á Íslandi. 12:30: Kristján Freyr Kristjánsson, verkefnastjóri hjá Innovit, fjallar um niðurstöður meistararitgerðar sinnar sem bar yfirskriftina „Einkenni árangursríkra frumkvöðla“. 12:50: Andri Heiðar Kristinsson birtir nýsköpunarvísitölu Innovit í fyrsta sinn og kynnir viðburðarríkan vetur sem framundan er. 13:15: Helga Valfells, framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins flytur stutt ávarp og slítur fundi. Fundarstjóri er Þórhildur Birgisdóttir, verkefnastjóri hjá Innovit. Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins býður fundargestum upp á léttar veitingar. Aðgangur ókeypis en vinsamlegast tilkynnið mætingu á skraning@innovit.is eða á Facebook.H au st fu nd ur I nn ov it 2 01 0 Hvatningarverðlaun ÖBÍ verða veitt í fjórða sinn 3. desem- ber nk. Þá verðlaunar Öryrkja- bandalag Íslands þá sem þykja hafa skarað fram úr og endur- speglað nútímalegar áherslur um jafnrétti, sjálfstætt líf og þátt- töku fatlaðs fólks í samfélaginu. Megintilgangur verðlaunanna er að varpa ljósi á þá sem hafa með jákvæðum hætti stuðlað að einu helsta baráttumáli Öryrkjabanda- lags Íslands: einu samfélagi fyrir alla. Það er grundvallaratriði að fatlað fólk standi að því að veita verðlaun sem þessi. Það er okkar, sem á einhvern hátt erum fötluð, að gefa tóninn, leggja línurnar og vera í fararbroddi við að meta það sem vel er gert í okkar mála- flokki. Verðlaunin eru í senn hrós fyrir vel unnin störf og hvatning til áframhaldandi góðra verka. Til þess að gefa sem flestum færi á því að taka þátt í að velja verðlaunahafana leitar undirbún- ingsnefnd Hvatningarverðlauna ÖBÍ til allra sem þekkja til og áhuga hafa á þessum vettvangi og hvetur þá til að stinga upp á verðugum fulltrúum. Verðlaunin eru veitt í þrem- ur flokkum: flokki einstaklinga, flokki fyrirtækis/stofnunar og flokki umfjöllunar/kynning- ar. Þekkir þú einhvern sem þér finnst hafa staðið sig sérstaklega vel þegar kemur að málefnum fatlaðs fólks? Manstu eftir ein- hverju fyrirtæki eða stofnun þar sem aðgengismál eru til fyrir- myndar eða starfsmannastefnan tekur mið af því að fólk er marg- breytilegt? Varð einhver bók, tímaritsgrein eða kvikmynd til þess að þú öðlaðist betri skilning og þekkingu á málefnum fatlaðs fólks? Þessi atriði og ótal mörg önnur gætu legið tilnefningum til grundvallar. Allar upplýsingar um hvernig skila skal inn tilnefningum má finna á vef Öryrkjabandalags- ins, www.obi.is, en skilafrestur er til 15. september. Taktu þátt í því með okkur að veita þeim við- urkenningu sem lagt hafa sitt af mörkum til þess að hér verði eitt samfélag fyrir alla. Samfélag fyrir alla Samfélagsmál Steinunn Þóra Árnadóttir formaður undirbún- ingsnefndar Hvatningar- verðlauna ÖBÍ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.