Fréttablaðið - 01.09.2010, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 01.09.2010, Blaðsíða 48
Mest lesið DREIFING: dreifing@posthusid.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 VISIR.IS Ritstjórn: 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja FRÉTTIR AF FÓLKI Skárri eða verri? Eins og kom fram í fjölmiðlum í gær tók Björk Guðmundsdóttir við Polar-verðlaununum úr hendi Karls Gústafs Svíakonungs. Björk er að sjálfsögðu heimsfrægur listamaður og hefur þegar skapað sér ákveðinn orðstír með vali sínu á klæðnaði við opinberar athafnir líkt og í Svíþjóð í gær. Einhverjir erlendir fjölmiðlar voru efins um ágæti fjólu- bláa kjólsins og töldu hann jafnvel verri en svana- kjólinn fræga sem öðlaðist mikla frægð þegar íslenska söngkonan klæddist honum við Ósk- arsverð- launin. 1 Var með unnustu Hannesar um nóttina 2 Spaugstofan á Stöð 2 3 Barbie stungið í steininn í Mexíkó 4 Prestar grétu og báðust fyrirgefningar 5 Brasilísk djass-söngkona svipt atvinnuleyfi vegna atvinnuleysis 6 Síðbúin hitabylgja á leiðinni Brenglaður borgarstjóri býður góðan dag „Góðan daginn“-dagurinn er hald- inn hátíðlegur í Reykjavík í fyrsta sinn í dag. Dagurinn er hugarsmíð Jóns Gnarr og hann lýsir tilurð hans í grein í blaðinu í dag. Í tilefni dagsins sendi borgarstjór- inn samstarfsmönnum sínum í Ráðhúsinu myndskilaboð í gær, þar sem hann fer yfir hugmyndina að baki deginum og ólíkar leiðir til að bjóða góðan daginn. Hægt er að nálgast myndbandið á Youtube, og glöggir taka eftir því að líkast til hefur borgarstjórinn átt eitthvað við höfuðlagið á sér með hjálp tölvutækninnar. Fyrir áhugasama er slóðin á myndbandið http://www. youtube.com/ watch?v=Qnxu- YzIs_eY. - fgg, sh

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.