Fréttablaðið - 09.09.2010, Side 4
4 9. september 2010 FIMMTUDAGUR
Kostnaður við skiptastjóra Lands-
bankans í Hollandi var ranglega
færður með kostnaði skilanefndar og
slitastjórnar Landsbankans í Frétta-
blaðinu í gær. Kostnaður skilanefndar
og slitastjórnar nam 189 milljónum
króna á fyrstu sex mánuðum ársins
en ekki 406 milljónum króna.
LEIÐRÉTTING
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Sigmundur Halldórsson sigmundur@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is
SAMGÖNGUR Eyjamenn gátu keypt
mjólk í fyrsta sinn í marga daga
þegar Herjólfur kom til hafnar í
gær með vörur og farþega í fyrsta
sinn í fimm sólarhringa. Vöru-
skortur var farinn að hrjá íbúa á
meðan Herjólfur var bundinn við
bryggju sökum aðstæðna í Land-
eyjahöfn.
Siglt var til Þorlákshafnar og
verður svo gert að nýju í dag, en
athugað verður með ferð til Land-
eyjarhafnar síðdegis að því er
fram kemur á vef Herjólfs.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins hefur ekki orðið viðlíka
vöruskortur síðan nýr Herjólfur
var tekinn í gagnið árið 1976.
Ingimar Georgsson, kaupmaður
í Vöruvali í Eyjum, segir ástandið
hafa verið orðið „rússneskt“ áður
en sendingin kom. Skortur á nauð-
synjavörum eins og mjólk, kjöti og
grænmeti hafi sett strik í reikning
verslunarmanna. „Ætli við höfum
ekki selt um það bil tveggja daga
skammt í dag.“
Ekki er búist við að þetta ástand
komi upp að nýju. „Við vorum búnir
að útskýra fyrir fólki að við fáum
mjólk á morgun líka. Þannig að allt
lítur vel út núna,“segir Ingimar. - þj
NEYTENDAMÁL Toyotaeigandi sakar
Toyota á Íslandi um að bregðast
ekki við meintum galla í Land
Cruiser bifreiðum. Aubert Högna-
son segist hafa farið með bif-
reið sonar síns, af gerðinni Land
Cruiser 120, í smurningu hjá þjón-
ustuverkstæði Toyota á Selfossi
fyrir skemmstu. Þar kom í ljós
að grófsigti í smurpönnu var svo
stíflað að starfsmaður verkstæð-
isins sagði að hætta hafi verið á
að bíllinn bræddi úr sér nema úr
væri bætt. Orsökin liggi í galla í
þéttingum undir spíssum.
Aubert segist hafa sloppið fyrir
horn og verkstæðið hafi gert við
bílinn án endurgjalds, en hann
viti um tvo bíla á Selfossi sem hafi
brætt úr sér af þessum sökum og
viðgerðarkostnaður gæti numið 3-
4 milljónum króna. Toyota hafi þó
ekki viðurkennt gallann og ekki
gert neinar ráðstafanir, þrátt fyrir
ábendingu hans.
Fréttablaðið hafði samband við
fyrirtækið Framtak-Blossa ehf.
sem hefur umboð fyrir umrædda
spíssa. Þar fengust þær upplýsing-
ar að nokkuð hafi borið á þessum
bilunum og tengdust þær senni-
lega veðurfari og kulda hérlend-
is. Ekki væri þó hægt að slá neinu
föstu þar sem nú sé verið að skoða
þessi mál erlendis.
Aubert fullyrðir hins vegar að
Toyota bíði eftir að ábyrgðin á
bílunum renni út. „Það sem mig
undraði mest er að þeir hafa vitað
af þessum galla, eftir því sem mér
er sagt, í tvö, þrjú ár,“ sagði hann
og vildi því vara aðra við.
„Ég lofaði sjálfum mér því að
gera það sem ég gæti til að forða
fjölskyldum frá því að lenda í
svona tjóni.“
Páll Þorsteinsson, upplýsinga-
fulltrúi Toyota, vísar fullyrðing-
um Auberts á bug og segir um
afmarkað tilfelli að ræða sem
gefi ekki tilefni til innköllunar.
Tæplega 4.000 bílar af þessari
tegund séu í umferð hérlendis og
enginn þekktur galli sé til staðar.
Ákvörðun um innköllun liggi ekki
hjá þeim, heldur Toyota í Evrópu,
Ameríku eða Japan.
„Þetta er hluti af stóru og vel
ígrunduðu ferli og Toyota hefur
ekki séð ástæðu til að kalla inn
út af þessu. Toyota er þekkt fyrir
að kalla töluvert mikið inn, því
að fyrirtækinu er mjög annt um
öryggi og gæði framleiðslunnar og
ef ástaða er til innköllunar er það
einfaldlega gert. Þetta er ekkert
feimnismál.“
thorgils@frettabladid.is
ALÞINGI Alþingismaðurinn Þráinn
Bertelsson hefur gengið til liðs
við þingflokk Vinstrihreyfing-
arinnar græns framboðs. Þetta
var tilkynnt við
upphaf þing-
fundar í gær-
morgun.
Þráinn var
kosinn á þing
fyrir Borgara-
hreyfinguna
vorið 2009 en
sagði sig úr
henni þremur
og hálfum mán-
uði síðar eftir
ósætti við félaga sína í þing-
flokknum. Síðan í ágúst í fyrra
hefur hann verið þingmaður utan
flokka.
Með þessum tilflutningi hafa
ríkisstjórnarflokkarnir sjö
manna meirihluta á þingi, í stað
fimm áður, með 35 þingmenn á
móti 28 þingmönnum stjórnar-
andstöðunnar. - sh
GENGIÐ 08.09.2010
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
204,9937
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
118,18 118,74
182,64 183,52
150,12 150,96
20,160 20,278
19,007 19,119
16,197 16,291
1,4091 1,4173
178,59 179,65
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
PI
PA
R\
TB
W
A
S
ÍA
9
26
03
-5kr.
VIÐ FYR
STU NO
TKUN Ó
B-LYKIL
SINS
SÍÐAN A
LLTAF -2kr
.
Sæktu um ÓB-lykilinn á www.ob.is eða í síma 515 1141
ÓB-lykilhafar geta safnað Vildarpunktum Icelandair.
Skella skollaeyrum
við meintum galla
Ósáttur eigandi sakar Toyota á Íslandi um að skella skollaeyrum við þekktum
galla í Land Cruiser 120. Talsmaður Toyota segir ekki tilefni til innköllunar.
LAND CRUISER 120 Ósáttur Land Cruiser-eigandi segir Toyota á Íslandi neita að viður-
kenna galla í bílunum. Forsvarsmenn Toyota vísa ásökunum á bug. Myndin tengist
fréttinni ekki beint. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
ÞRÁINN
BERTELSSON
Ekki lengur utan flokka:
Þráinn gengur
til liðs við VG
Vöruskortur í Vestmannaeyjum vegna vandræða í Landeyjahöfn:
Loks mjólk til Vestmannaeyja
MJÓLKURSENDING Eftir fimm daga bið
bárust loks mjólk og fleiri nytjavörur til
Vestmannaeyja. Hér sést Ingimar kaup-
maður með sendinguna.
FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR
Samdráttur í ýsuútflutningi
Útfluttur óunninn ýsuafli á nýliðnu
fiskveiðiári var 10.736 tonn á
móti 22.312 tonnum fiskveiðiárið
2008/2009. Í verðmætum nam sam-
drátturinn 2,8 milljörðum. Meðalverð
á hvert kíló nú var 344 krónur en 291
í fyrra. Heildarútflutningur óunnins
ísaðs fiskafla nam 38.201 tonn en
tæpum 59 þúsund tonnum fiskveiði-
árið á undan.
SJÁVARÚTVEGSMÁL
SJÁVARÚTVEGUR Fiskvinnsla í
frystihúsinu á Þingeyri hefst að
nýju á mánudaginn eftir fjórtán
vikna vinnslustöðvun. Það er
Vísir hf. í Grindavík sem rekur
vinnsluna en hún er langstærsti
atvinnurekandinn á staðnum. Þar
störfuðu 25 til 30 manns síðasta
vetur. Frá þessu segir feykir.is.
Fréttavefurinn getur þess að
vinna hafi verið dregin saman
síðastliðinn vetur vegna hráefnis-
skorts, sem var einnig ástæða
vinnustöðvunar í sumar. - shá
Fjórtán vikna stoppi lokið:
Vinnsla hefst
aftur á Þingeyri
STJÓRNMÁL Anna Sigrún Bald-
ursdóttir hefur verið ráðin
aðstoðarmaður Guðbjarts Hann-
essonar, heilbrigðis-, félags- og
tryggingamála-
ráðherra. Anna
Sigrún var áður
aðstoðarmaður
Árna Páls Árna-
sonar á meðan
hann gegndi
embætti félags-
og trygginga-
málaráðherra.
Árni Páll
hefur nú flutt
sig um set yfir
í efnahags- og viðskiptaráðu-
neytið og hefur ráðið Kristrúnu
Heimisdóttur sér til aðstoðar
þar. Kristrún hefur einnig
reynslu af því að aðstoða ráð-
herra, en hún var aðstoðarmaður
Ingibjargar Sólrúnar Gísladótt-
ur í utanríkisráðuneytinu frá
2006 til 2009. - sh
Ráðherrar fá aðstoðarmenn:
Kristrún og
Anna ráðnar
KRISTRÚN
HEIMISDÓTTIR
FÓLK Félagsskapur til eflingar
konum á Suðurnesjum mun hefja
störf 14. september næstkom-
andi.
Upphafskonur að félagsskapn-
um eru þær Anna Lóa Ólafsdótt-
ir, náms- og starfsráðgjafi hjá
MSS, og Þóranna K. Jónsdótt-
ir, verkefnastjóri Frumkvöðla-
setursins á Ásbrú. Yfir 40 konur
hafa boðað þátttöku sína og segir
Anna Lóa hugmyndina að félag-
inu hafa kviknað fyrir löngu.
„Mig langaði til að hvetja
konur hér á svæðinu til frekari
dáða í námi og starfi og efla
tengslanet hér á svæðinu,“ segir
hún. - sv
Nýr félagsskapur Suðurnesja:
Konum til afls
og hvatningar
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
30°
18°
15°
18°
18°
17°
18°
18°
24°
21°
29°
23°
33°
15°
20°
18°
17°Á MORGUN
Suðaustan 3-8 m/s,
dregur úr vætu.
LAUGARDAGUR
Hæg suðvestlæg átt.
12
14
14
14
14
14
15
15
15
17
10
8
7
8
7
8
7
6
7
6
6
5
16
15
15
15
14
12
14
13
15
11
MILT EN BLAUTT
veður á landinu í
dag einkum suð-
austanlands en
skúraveður vestan
til. Á morgun verð-
ur hægur vindur af
suðri með skúrum
víða um land en
það lítur út fyrir
fremur þurrt og
bjart veður norðan
til. Helgarveðrið
lofar nokkuð góðu
en þá kólnar lítið
eitt.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
Ég lofaði sjálfum mér
því að gera það sem
ég gæti til að forða fjölskyld-
um frá því að lenda í tjóni.
AUBERT HÖGNASON
TOYOTA-EIGANDI