Fréttablaðið - 09.09.2010, Síða 24
9. september 2010 FIMMTUDAGUR24
timamot@frettabladid.is
Hjartans þakkir færum við öllum sem
sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu
vegna andláts og útfarar elskulegs föður
okkar, afa og langafa,
Gísla Jónssonar
frá Norðurhjáleigu,
Markholti 1, Mosfellsbæ.
Eygló Gísladóttir Þórunn Gísladóttir
Guðlaug Gísladóttir Eygló Svava Gunnarsdóttir
Gísli Páll Davíðsson Þórey Una Þorsteinsdóttir
Loftur Þór Þórunnarson Sigrún R. Guðlaugardóttir
Grétar Snær Hjartarson Alex Gíslason
Þorsteinn Einar Gíslason Sóley Rós Gísladóttir
Ingunn Sara Loftsdóttir
Hjartans þakkir til þeirra fjölmörgu
sem auðsýndu samúð, hlýhug og
virðingu vegna andláts eiginmanns
míns, föður okkar, tengdaföður, afa
og langafa,
Sigmars Grétars
Jónssonar,
Núpalind 8, Kópavogi.
Einnig þökkum við starfsfólki á deild 14E á
Landspítalanum einstaka alúð í allri umönnun svo og
hlýhug og nærgætni við aðstandendur.
Guð veri með ykkur öllum.
Gróa Sigfúsdóttir
Brynhildur Sigmarsdóttir Bragi Sveinsson
Halla Sigmarsdóttir
Grétar Örn Bragason Eva Hrönn Jónsdóttir
Karen Íris Bragadóttir Ingvi Björn Bergmann
Íris Blöndal Magnús Magnússon
Ingunn Blöndal Leó Kristberg Einarsson
Rebekka Blöndal
og langafabörn.
Markús Ármann Guðjónsson, sem
ávallt er kallaður Ármann, er fæddur
í Vestmannaeyjum 9. september 1910
og fagnar því hundrað ára afmæli í
dag. Faðir hans var Guðjón Jónsson
frá Kjalarnesi sem lengi var formaður
á bátum og seinna fiskmatsmaður og
bóndi, en móðir hans hét María Ingi-
mundardóttir húsmóðir, ættuð austan
úr Landeyjum.
Kona Ármanns var Ólafía Ástríður
Þórðardóttir sem ávallt var kölluð Lóa.
Þau Ármann hófu búskap kringum árið
1940 en fjórum árum síðar fluttu þau í
sitt eigið hús við Brekkustíg 13 í Sand-
gerði sem þau nefndu Lyngholt en þau
voru æ síðan kennd við það hús. Húsið
vekur enn í dag sérstaka eftirtekt enda
er allt umhverfi þess snyrtilegt og sér-
staklega garðurinn sem Ármann hefur
ræktað af mikilli alúð og þar dundar
hann sér enn í dag.
Lóa og Ármann eignuðust tvö börn,
þau Maríu og Helga og á Ármann sam-
tals sex barnabörn og nítján barna-
barnabörn og það tuttugasta á leiðinni.
Þegar Ármann kom fyrst í Sand-
gerðisvík árið 1913 aðeins þriggja ára,
var lítið sem minnti á bæjarfélag. Vél-
bátaútgerðin var enn á byrjunarstigi
og lítið sem gaf til kynna það samfé-
lag sem átti eftir að vaxa upp næstu
árin. Fjölskyldan settist að í verbúð í
svokölluðu Loftshúsi sem byggt hafði
verið 1907, árið sem vélbátaútgerð
hófst í Sandgerði. Seinna var byggt við
húsið og fluttist þá fjölskyldan þang-
að. Árið 1928 fluttu þau í Endagerði
sem er lítið bóndabýli rétt norðan við
Sandgerði.
Ármann gekk í barnaskóla Sandgerð-
is en fór fljótlega eftir skólaskylduna á
sjóinn, þá fimmtán, sextán ára gamall,
með Guðjóni föður sínum, en þeir réru
frá Reykjavík yfir sumarmánuðina.
Ármann byrjaði átján ára sem land-
maður á mótorbátnum Ingólfi, 32 tonna
bát frá Akranesi og síðan á ýmsum
bátum allt til ársins 1934 þegar hann
fór að læra til stýrimanns sem þá
var þriggja mánaða námskeið kennt í
Reykjavík.
Hann var lengst af stýrimaður hjá
Guðna Jónssyni frá Flankastöðum.
Árið 1965 réði Ármann sig á milli-
landaskip og stundaði næstu árin utan-
landssiglingar á skipum Eimskipafé-
lags Íslands, fyrst á Dettifossi og síðar
á Laxafossi, Tungufossi og fleiri skip-
um.
Ármann hefur ávallt verið við hesta-
heilsu og þakkar það því að hann
hefur aldrei tekið bílpróf og lengi vel
fór hann allar ferðir sínar um bæinn
á reiðhjóli. Til dæmis fékk hann nýtt
reiðhjól þegar hann var 85 ára í stað
þess gamla sem hann fékk á áttræð-
isafmælinu. Þegar Lóa kona hans lá á
Sjúkrahúsi Suðurnesja síðustu þrjú ár
ævi sinnar hjólaði Ármann til Kefla-
víkur átta kílómetra hvora leið hvern
einasta dag þegar veður leyfði, kominn
yfir áttrætt.
Í tilefni af aldarafmæli Ármanns
munu ættingjar hans ásamt Sandgerð-
isbæ efna til samsætis honum til heið-
urs í Samkomuhúsinu Sandgerði frá
klukkan 16 til 19 í dag.
ÁRMANN GUÐJÓNSSON Í LYNGHOLTI: HUNDRAÐ ÁRA
Á reiðhjóli langt yfir áttrætt
HRESS Í BRAGÐI Ármann Guðjónsson er hundrað ára í dag og af því tilefni efna ættingjar hans og Sandgerðisbær til samsætis honum til heiðurs
í Samkomuhúsinu Sandgerði í dag frá klukkan 16 til 19. MYND/ÚREINKASAFNI
LEÓ TOLSTOJ (1828-1910) fæddist þennan dag.
„Allar hamingjusamar fjölskyldur líkjast hver annarri en allar
óhamingjusamar fjölskyldur eru óhamingjusamar á sinn hátt.”
Háhyrningurinn Keikó sem frægur varð
fyrir hlutverk sitt sem Willy í kvikmyndun-
um Free Willy, fæddist við Íslandsstrend-
ur árið 1976. Tveimur árum síðar var
hann fangaður og seldur til þjálfunar hjá
bandaríska sjóhernum.
Árið 1993 sló hann í gegn í Free Willy
og síðar í framhaldsmyndunum tveimur
árin 1995 og 1997.
9. september árið 1998 var hann
fluttur til Íslands þar sem hann átti að
fá tækifæri til að lifa frjáls. Þjálfun hans
fyrir frelsið fór fram við Vestmannaeyjar
en árið 2002 var honum sleppt lausum.
Vart varð við hann við Helsa í Noregi í
september það ár, en íbúar sáu til hans
og léku jafnvel við hann.
Í desember 2003 greindist hann með
lungnasjúkdóm sem varð honum að
aldurtila 12. desember 2003.
ÞETTA GERÐIST: 9. SEPTEMBER 1998.
Keikó fluttur til Íslands
Merkisatburðir
1000 Svoldarorrusta á sér stað í Eystrasalti þar sem Ólafur
Tryggvason lætur lífið.
1087 Vilhjálmur rauður verður konungur Englands.
1208 Víðinesbardagi er háður í Hjaltadal, en þó getur hann hafa
verið daginn áður. Höfðingjar sækja með mikinn her að
Guðmundi góða Arasyni, biskupi á Hólum. Í þessum bar-
daga fellur Kolbeinn Tumason.
1877 Þingeyrakirkja, sem Ásgeir Einarsson alþingismaður lét
reisa, er vígð.
1905 Sogsbrú, 38 metra löng og 2,5 metra breið hengibrú, er
vígð. Um 1000 manns eru viðstödd vígsluna.
1914 Orrustunni við Marne lýkur.
1942 Breskum flugmanni tekst á síðustu stundu að beina flug-
vél sinni frá húsi í Elliðaárdalnum er hann brotlendir þar í
kartöflugarði.
AFMÆLI
ADAM
SANDLER
leikari er 44
ára í dag.
MICHELLE
WILLIAMS
leikkona er
þrítug í dag.
HUGH
GRANT
leikari er
fimmtugur í
dag.
MICHAEL
BUBLÉ
söngvari er
35 ára í dag.
Kristján Kristjánsson, öðru nafni
KK, fagnar á þessu ári 25 ára starfs-
afmæli. Af því tilefni efnir hann til
tónleika í Háskólabíói 11. september
næstkomandi ásamt góðum gestum
og mun fara yfir tónlistarferilinn í
tali og tónum.
Kristján kom á sínum tíma sem
ferskur blær inn í íslenskt tónlistarlíf
og árið 1991 vakti hann mikla athygli
með plötu sinni Lucky One. Allar
götur síðan hefur Kristján verið eitt
af stærri nöfnunum í íslenskri tónlist.
Kristján hefur á tónlistarferli sínum
gert átta plötur í sínu nafni, fimm
plötur í samstarfi við Magnús Eiríks-
son, tvær plötur með hljómsveit sinni
KK Band, eina jólaplötu með systur
sinni Ellen auk tónlistar fyrir leikhús
og kvikmyndir. Það er því af nógu að
taka og má ætla að Kristján fari vítt
og breitt um feril sinn sem laga- og
textasmiður.
Tónleikarnir á laugardaginn hefj-
ast klukkan 21 en miðasala fer fram á
www.midi.is. - jbá
KK fagnar 25 ára starfsafmæli
FER VÍTT OG BREITT Kristján mun fara yfir
tónlistarferilinn í tali og tónum.