Fréttablaðið - 09.09.2010, Qupperneq 34
9. SEPTEMBER 2010 FIMMTUDAGUR6 ● fréttablaðið ● húð, hár og heilsa
Kynfæragötun tröllríður nú
tískustraumum í líkamsgötun,
en ávinningurinn af henni ku
felast í meiri ánægju kvenna í
ástalífinu.
„Stelpur elska naflagöt, og gat í
tungu er enn hæstmóðins, en lang-
mest aukning er í kynfæragötun
kvenna. Þá er settur lóðréttur pinni
í gat ofan við snípinn sem eykur
kynferðislegan unað,“ segir Sesel-
ía Guðmundsdóttir, gatari hjá Tatt-
oo og skarti á Hverfisgötu, spurð um
helstu tískustrauma í líkamsgötun.
„Í Svíþjóð og Danmörku er varla
neitt að gera lengur í götun en hér
heldur eftirspurn áfram sem aldrei
fyrr enda Íslendingar sjálfstæðir og
gera það sem þeir vilja,“ segir Ses-
elía sem telur klámvæðingu síðustu
missera líklegustu skýringuna á
stóraukinni kynfæragötun, en aukn-
ing er 800 prósent milli ára.
„Kynfæragötun hefur sótt mjög
í sig veðrið á aðeins einu ári, en í
fyrra gataði ég tvær konur í mán-
uði miðað við sextán konur í mán-
uði nú. Flestar eru á aldrinum 18 til
40 ára og með öllu ófeimnar, en ég
spyr þær aldrei um ástæður því enn
viðurkenna fæstar konur að horfa á
klám.
Hins vegar þykir mér líklegt að
klámstjörnur séu margar gataðar
og þaðan sé tískan að mestu upp-
runnin,“ segir Seselía. „Götun-
in sjálf tekur ekki nema tíu mínút-
ur og engin hætta á ferðum ef farið
er eftir leiðbeiningum um umhirðu
eftir á, en það er eins með götun og
tattú að sniðgangi fólk allar reglur
er voðinn vís, og sá sem það gerir
einu sinni gerir það ekki aftur,“
segir Seselía.
Bæði Fjölnir Bragason tattú-
meistari og Berglind Rós Ragnars-
dóttir, gatari á Íslenzku húðflúrstof-
unni við Hverfisgötu, staðfesta orð
Seselíu.
„Kynfæragötun er mun algeng-
ari en fólk heldur og eftirspurnin
mikil, en aukning er mest hjá yngri
konum,“ segir Berglind. „Oftast er
settur boginn pinni eða hringur í
gatið, og alltaf í því augnamiði að
auka unað. Flestar eru ófeimnar, en
nefna þó að þær hefðu frekar hikað
með kynfæragötun ef karlmaður sæi
um verkið. Að mínu áliti hefur klám-
væðingin gert konur meðvitaðri um
þennan möguleika í kynlífinu, en
vitaskuld spyrst þetta líka út meðal
kvenna og smitar út frá sér,“ segir
Berglind. Önnur tíska sem nú nær
aukinni útbreiðslu í líkamsgötun eru
svokölluð „tunnels“ eða göng sem
eru stór göt í eyrnasnepla þar sem
komið er fyrir hvers kyns hringjum
og hnöppum. „„Tunnels“ er að fær-
ast niður í aldri og foreldrar eru ekk-
ert voðalega sáttir, en þetta er aðal
eyrnatískan í dag og að verða jafn
vinsælt hjá báðum kynjum. Ferlið
tekur um tvo mánuði og er þá komið
á tveggja vikna fresti til að stækka
gatið. Tískan kemur upprunalega frá
Lundúnum og byrjaði sem pönk, en
hér á Íslandi fylgir hún tattú-menn-
ingu og rokki, og gefur í skyn svo-
litla uppreisn þegar reynt er á þol-
rifin hjá afa og ömmu,“ segir Sesel-
ía og brosir í kampinn. „Ég geri þó
aldrei „tunnels“ nema hringja fyrst
í mömmu viðkomandi til að fá leyfi
því eyrnasnepill verður aldrei samur
í útliti ef farið er út í víðari göng en
8 millimetra, en dæmi er um að fólk
hafi fengið sér 30 millimetra „tunn-
els“.“ - þlg
Kynfæragötun aldrei meiri
Glitrandi steinn í gegnum naflagat nýtur sem fyrr gífurlegra vinsælda kvenna.
MYND/TATTOO OG SKART
Seselía með glitrandi eyrnahnapp í „tunnel“ eða gangna-eyrnagati.
„Fólk er farið að vinda sér beint
í stærri verk og orðið baldnara
að leyfa listamanninum að leika
sér,“ segir Fjölnir Bragason tatt-
úmeistari á Íslenzku húðflúrstof-
unni um tíðarandann í tattúmenn-
ingu Íslendinga nú. „Það er áber-
andi að fólk leitar nú meira inn á
við og í gömlu gildin, velur sér trú-
arleg tákn og Jesúmyndir, eða nöfn
og myndir af sér nákomnum. Regl-
an var sú að fá sér fyrst lítið tattú,
en nú er fólk orðið djarfara að biðja
strax um heila ermi eða heilt brjóst-
stykki. Á sýningu ytra á dögunum
sáum við svo stelpur með lítil akk-
eri undir augunum, en hér tölum
við fólk ofan af slíkum hugmynd-
um nema það sé komið yfir þrí-
tugt,“ segir Fjölnir.
Sömu sögu hefur Svanur Guð-
rúnarson, tattúmeistari í Tattoo og
skarti, að segja.
„Eftir kreppuna breyttist gjörhugs-
unarháttur fólks og nú kemur eng-
inn til að fá sér eitthvað ljótt. Trú-
arleg stef eru áberandi, sem og
myndir af börnum eða átrúnaðar-
goðum fólks,“ segir Svanur og upp-
lýsir að lítil tattú heyri að mestu
sögunni til.
„Nú vill fólk láta tattúvera á sig
stór portrett og margir sem
kjósa hönnun í ákveðnum
stíl, en þar er japanski stíll-
inn vinsælastur. Þessu hafa
sjónvarpsþættir á borð
við Miami Ink á Discov-
ery breytt, sem og átrún-
aðargoð eins og David
Beckham sem er með
allan handlegginn
tattúveraðan, en það
köllum við ermar,“
segir Svanur
og bætir við
að núorðið
láti enginn
húðflúra sig
nema að vel
ígrunduðu
máli.
„Fólk
gerir sér grein fyrir því að tattú er
langtímaskuldbinding og kemur í
mörg viðtöl og marga mánaða for-
vinnu áður en látið er til skarar
skríða með ermar eða stærri tattú.
Virðing fyrir tattú er orðin meiri,
það er álitið listgrein og þeir sem
láta tattúvera sig nú gera það af
meiri alvöru en áður, enda með-
vitaðir um líkama sinn og kjósa að
vera flottir.“ - þlg
Með Jesú á handleggnum
Hjónin Svanur Guðrúnarson tattúmeistari og Seselía Guðmundsdóttir gatari á stofu
sinni Tattoo og skarti á Hverfisgötu, þangað sem margir sækja sér innblástur og láta
drauma sína rætast. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Eftir að kreppti að hafa margir sóst eftir biblíumyndum á líkama sinn, eins og hér má
sjá í síðustu kvöldmáltíð Jesú og lærisveinanna. MYND/TATTOO OG SKART
Engin ást er einlægari en ást foreldra til barna sinna, eins og sjá má á
þessu tattúi, en aukin aðsókn er í tattú af börnum. MYND/TATTOO OG SKART
Fjölnir Bragason
tattúmeistari
á Íslenzku
húðflúrstofunni.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Þú færð Fréttablaðið á kostnaðarverði
á 90 stöðum um land allt. Nánari
upplýsingar á visir.is/dreifing
Þú getur alltaf lesið Fréttablaðið frítt
á Vísi eða fengið sendan daglegan
tölvupóst með blaði dagsins. Nánari
upplýsingar á: visir.is/dreifing
FRÉTTABLAÐIÐ Á NETINU