Fréttablaðið - 09.09.2010, Síða 50
34 9. september 2010 FIMMTUDAGUR
bio@frettabladid.is
> BERST VIÐ VINDMYLLUR
Terry Gilliam hyggst kvikmynda Don Kíkóta þrátt
fyrir að flestir hafi afskrifað hana eftir hörmung-
arnar 2002 þegar allt fór úrskeiðis á
tökustað. Robert Duvall
og Ewan McGregor
munu leika aðal-
hlutverkin í mynd-
inni að sögn Gilli-
am þótt tökudag-
ar hafi ekki verið
ákveðnir.
Framleiðendurnir Mark Joseph og Ralph Winter vinna
nú hörðum höndum að því að koma af stað kvikmynd
um ævi og starf Ronalds Reagan. Samkvæmt Emp-
ire-kvikmyndavefnum er Jonas McCord að skrifa
handrit eftir tveimur ævisögum Pauls Kengor um
þennan umdeilda Bandaríkjaforseta. Myndin á að
fylgja eftir lífi Reagans sem ungs drengs og for-
setatímabili hans en aðalfókusinn verður á árið 1981
þegar John Hinckley reyndi að myrða hann til að
fanga athygli Jodie Foster.
McCord sagði við Hollywood Report-
er að hann hefði aldrei verið mikill
aðdáandi Reagan. „Í mínum huga
var hann annaðhvort vondur leik-
ari eða trúður,“ sagði McCord. En
sú skoðun breyttist snarlega eftir
að hafa kynnt sér ævi Ronalds
sem var alinn upp af strangkaþólskum áfengissjúkum
föður og heittrúaðri móður. Reagan hefur hins vegar
aldrei notið sannmælis hjá Hollywood. Og framleið-
andinn Mark Joseph segir að það sé eflaust leitun að
jafn illa innrættri kvikmyndagerð og hjá þeim sem
gerðu The Reagans með James Brolin í hlutverki Ron-
alds. „Aðeins í Hollywood gætu menn gert kvikmynd
sem væri móðgun við svona vinsæla manneskju, ráðið
leikara sem augljóslega hataði sína pers-
ónu, horft á myndina fara til fjandans
og ákveðið að enginn vildi sjá kvikmynd
um Ronald Reagan,“ sagði Joseph.
Unnið að gerð kvikmyndar um Ronnie
UMDEILDUR Ronald Reagan var síður en svo
allra. Ný kvikmynd um forsetann er í burðar-
liðnum í Hollywood.
Svo virðist sem Hollywood ætli að veðja
á Liam Neeson. Hann er sagður vera í
viðræðum við leikstjórann Joe Carna-
han um að leika í spennutryllinum The
Grey en þeir tveir gerðu saman A-
Team. Hann er einnig orðaður við aðal-
hlutverkið í þremur öðrum myndum.
Neeson er búinn að samþykkja að leika
í hasarmyndinni Battleship. Þar mun
Neeson bregða sér í hlutverk aðmír-
álsins Shane en honum hefur verið falið
það erfiða hlutverk að vernda hafsvæði
jarðarinnar gegn illskeyttum geimver-
um. Til að bæta gráu ofan á svart þá er
dóttir hans á föstu með helstu hetjunni
úr liði hans en parið leika fyrirsætan
Brooklyn Decker og Taylor Kitsch.
Kvikmyndavefur Empire grein-
ir frá þessu og bætir því við að Alex-
ander Skarsgaard muni leika
son Liams Neeson og söngkon-
an Rihanna verði í hlutverki
vopnasérfræðings. Blaða-
menn Empire eru raunar
mjög skeptískir á valið
á Rihönnu enda hefur
hún ákaflega takmark-
aða reynslu af leik í
kvikmyndum. Battle-
ship verður frumsýnd
árið 2012.
Veðjað á Liam Neeson
GÓÐ SAMAN Rihanna og
Liam Neeson leika í Battle-
ship sem verður frumsýnd
2012.
George Clooney hefur augljóslega
mikið aðdráttarafl því nýjasta
kvikmynd hans, The American,
fór rakleiðis á toppinn í Banda-
ríkjunum um síðustu helgi. Þetta
verður að teljast nokkuð góður
árangur því Clooney er hugsan-
lega eini leikarinn sem hið venju-
lega meðaljón kannast við úr
leikaralistanum. Þar að auki er
leikstjórinn Anton Corbijn blaut-
ur á bak við eyrun þegar kemur
að kvikmyndagerð; er hugsanlega
þekktastur fyrir að gera mynd-
bönd hljómsveita á borð við U2,
Metallicu og Dep-eche Mode.
Í öðru sæti varð síðan blóðbaðs-
tryllirinn Machete í leikstjórn
Robert Rodriguez en fast á hæla
hennar komu Takers með Matt
Dillon og hryllingsmyndin The
Last Exorcism. Rómantíska kvik-
myndin Going the Distance með
Drew Barrymore olli hins vegar
miklum vonbrigðum og náði ein-
göngu fimmta sætinu.
Vinsæll Clooney
VINSÆLL The American með George Clooney í aðalhlutverki fór rakleiðis á topp-
inn í Bandaríkjunum. Bragi Þór Hinriksson er
sannkallaður kvikmynda-
njörður. Þegar hann var níu
ára sá hann Indiana Jones
á Akureyri og eftir það
varð ekki aftur snúið. Hann
frumsýnir í dag fyrstu
íslensku þrívíddarkvik-
myndina, Algjör Sveppi og
dularfulla hótelherbergið.
„Það er óðs manns æði að gera
íslenska þrívíddarmynd. Ég myndi
ekki mæla með því fyrir nokkurn
mann. Þetta er vesen en alveg ótrú-
lega gaman,“ segir Bragi Þór Hin-
riksson kvikmyndaleikstjóri. Í dag
mun eiga sér stað sögulegur við-
burður þegar fyrsta íslenska þrí-
víddarkvikmyndin verður frum-
sýnd, Algjör Sveppi og dularfulla
hótelherbergið. Þrívíddartækn-
in hefur tröllriðið bandarískum
kvikmyndaiðnaði eftir að Avatar
James Cameron feykti öllum miða-
sölumetum um koll og nú er komið
að Íslandi.
Bragi segir þetta vissulega vera
dýrt en þeir félagar fjárfestu í
þrívíddarbúnaði fyrir sex millj-
ónir. „Við ákváðum bara að láta
slag standa eftir að hafa kann-
að málið. Þetta er auðvitað engin
Avatar-þrívídd en engu að síður
mjög fín.“ Bragi segir ekki ákveð-
ið hvað verði um þennan búnað,
hann vonast til að hann verði nýtt-
ur fyrir íslenska kvikmyndagerð
enda áhugaverður kostur fyrir
auglýsinga- og stuttmyndagerð.
Leikstjórinn viðurkennir að Avat-
ar-æðið hafi kveikt í honum. „Það
kom síðan Breti á vegum Nýherja
og hélt námskeið um þrívídd. Ég
fór á það, fékk aðeins að þreifa
á þessu og hringdi síðan í Sverri
Þór og sagði honum að þetta væri
eitthvað sem við gætum auðveld-
lega gert.“ Og þar með fór bolt-
inn að rúlla. Félagarnir fjárfestu
í græjunum og æfðu sig síðan í
heilan mánuð. „Við vorum alveg
tilbúnir þegar að stóra tökudegin-
um kom.“
Eins og flestir hafa eflaust tekið
eftir eru fjölmargar tilvísanir
í þekktar kvikmyndir í Algjör-
um Sveppa-myndunum tveim. Og
Bragi fer ekkert í felur með að
hann sé algjör kvikmyndanjörður.
„Ég hef alltaf haft áhuga á kvik-
myndum, alveg frá því að ég sá
Indiana Jones, níu ára gamall. Það
bara gerðist eitthvað þá. Mér hefur
alltaf fundist að fólk eigi að hafa
gaman í bíó.“ freyrgigja@frettabladid.is
Á að vera gaman í bíó
KVIKMYNDANJÖRÐUR Bragi Þór Hinriksson kveðst vera mikill kvikmyndanjörður en fjölmargar vísanir í þekktar kvikmyndir er að
finna í Algjörum Sveppa-myndunum tveim. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Baltasar Kormákur og Sögn ehf kynna
KJARTAN GUÐJÓNSSON
ÓLAFÍA HRÖNN JÓNSDÓTTIR
Kvikmynd eftir Grím Hákonarson
FRUMSÝND 17. SEPTEMBER