Fréttablaðið - 09.09.2010, Blaðsíða 58
9. september 2010 FIMMTUDAGUR42
golfogveidi@frettabladid.is
Margir hætta algjörlega að sveifla golfkylfu yfir vetrartímann
sem er ekki rétt að gera. Það tekur líkamann fyrsta mán-
uðinn á hverju sumri að venjast sveiflunni aftur og þeim
tíma megum við ekki tapa hérna á Íslandi því golftímabilið
er stutt. Að stunda líkamsrækt yfir vetrartímann er það
besta sem við getum gert til að viðhalda vöðvastyrk, þoli og
liðleika. En hvernig er best að byrja?
„Best er að tala við fagaðila sem er menntaður á þessu
sviði svo hann geri sér grein fyrir hvaða vöðvar eru mikil-
vægastir fyrir golfsveifluna þína. Mikilvægt er að læra réttar
æfingar sem henta þér og vinna að leiðréttingu frekar en að
stuðla að frekari óstöðugleika. Gott er að setja sér markmið
og setja upp æfingaáætlun yfir vetrartímann, blanda saman
æfingum fyrir stutta spilið og pútta ásamt líkamsrækt.
Breytingar eru gerðar á veturna, ekki á sumrin þegar við
viljum eyða tímanum á golfvellinum.“
Höfundur starfaði með PGA golf kennara, Justin Stout, í USA árið 2007
við að hreyfi- og styrktargreina nemendur hans ásamt því að nota
kírópraktískar aðferðir til að auka hreyfanleika iðkenda.
Vallarmet Birgis Leifs Hafþórssonar hefur verið staðfest en hann lék nýlega
sinn gamla heimavöll, Garðavöll á Akranesi, á 58 höggum, eða fjórtán
höggum undir pari vallarins. Í samtali við kylfing.is er haft eftir honum að
hann hafi stefnt að því að leika undir 60 höggum frá því hann var strákur.
Birgir Leifur bætti vallarmet Heiðars Davíðs Bragasonar frá árinu 2007 um
sjö högg.
Hér má sjá hvernig Birgir Leifur lék Garðavöll holu fyrir holu.
1. braut: 3 högg – fugl -1
2. braut: 3 högg – fugl -2
3. braut: 2 högg – fugl -3
4. braut: 4 högg – fugl -4
5. braut: 4 högg – par – 4
6. braut: 2 högg – örn -6
7. braut : 4 högg – fugl -7
8. braut: 3 högg – par -7
9. braut: 4 högg- par -7
= 29 högg en parið er 36.
10. braut: 3 högg – fugl -8
11. braut: 4 högg – par -8
12. braut: 4 högg – par -8
13. braut: 3 högg – örn -10
14. braut: 3 högg –par -10
15. braut: 3 högg – fugl -11
16. braut: 4 högg – fugl -12
17. braut: 3 högg – fugl -13
18. braut: 2 högg – fugl -14
= 29 högg en parið er 36
= 58 högg samtals eða 14 högg undir pari.
Besti hringur íslensks kylfings?
Á öllum golfvöllum finnast einhverjar merkingar og ekki úr vegi að fara yfir
hvað þær þýða. Hinrik Gunnar Hilmarsson, sem annast hefur eftirlit, vallar-
vörslu og dómgæslu hjá Golfklúbbi Reykjavíkur, útskýrir:
1. Hvítir hælar merkja vallarmörk og eru hluti vallar og því ekki lausn frá slík-
um hælum þótt þeir trufli stöðu eða sveiflusvið. Vissulega geta kylfingar
þá dæmt boltann ósláanlegan og tekið lausn samkvæmt þeirri reglu.
2. Gulir hælar merkja vatnstorfæru. Ef boltinn er í vatnstorfæru, eða það sé
vitað eða nánast öruggt að boltinn sé þar, má leikmaður gegn 1 vítahöggi:
a. leika aftur á þeim stað sem hann sló síðast.
b. láta boltann falla handan torfærunnar.
3. Rauðir hælar merkja hliðarvatnstorfæru. Sem viðbót við þær lausnir sem
að ofan greinir má láta boltann falla utan torfærunnar innan tveggja
kylfulengda frá og ekki nær holunni en þar sem
boltinn síðast skar torfæruna eða innan
tveggja kylfulengda á stað hinum megin
við hana og jafnlangt frá holu.
4. Bláir hælar merkja grund í aðgerð og
þaðan fá leikmenn lausn samkvæmt
reglu 25-1 og þurfa að finna næsta stað á
vellinum fyrir lausn sem er ekki nær holu,
í torfæru eða á flöt. Þetta er vítislaust.
■ Innan vatnstorfæru eða grundar í
aðgerð má leikmaður slá boltann
sinn.
■ Ath. innan vatnstorfæru má
leikmaður ekki snerta
yfirborð torfærunnar.
■ Bláir hælar með
hvítum toppi merkja
að þarna sé grund í
aðgerð þaðan sem
leikur er bannaður.
■ Gulir, rauðir og
bláir hælar eru alla
jafna hreyfanleg
hindrun.
Hollráð Hinna: Merkingar á golfvöllum
G
O
LF
&
H
EI
LS
A Líkamsrækt
til að viðhalda
sveiflunni
Magni M. Bernhardsson,
kírópraktor með sérhæfingu í
golfmeiðslum og öðrum íþrótta-
meiðslum.
Mikil vakning hefur orðið
í golfíþróttinni á síðustu
árum en á þriðja þúsund
börn, átján ára og yngri,
eru skráð í golfklúbba
hér á landi. Þá hafa hátt í
þúsund börn verið skráð á
sumarnámskeið um land
allt svo óhætt er að segja að
framtíðin í íslensku golfi sé
björt.
Meðal nýjunga sem boðið hefur
verið upp á í sumar er US kids
golfmótaröðin sem er ætluð börn-
um tólf ára og yngri. „Við byrjuð-
um golfmótaröðina í fyrra og þá
einskorðuðum við okkur við Stór-
Reykjavíkursvæðið. Það gekk svo
vel að það var ákveðið að fara með
hana út á land líka,” segir Karl
Ómar Karlsson, verkefnisstjóri
barna- og unglingagolfs hjá Golf-
sambandi Íslands. Í fyrra voru á
milli fjörutíu til sextíu börn skráð
á mótaröðina en í ár hafa þau verið
hátt í hundrað.
Á US kids golfmótaröðinni er
völlurinn styttur. Brautirnar eru
um fimmtíu til þrjúhundruð metra
langar. „Tilgangurinn með móta-
röðinni er að krakkarnir þori
að fara út á völl og að það gangi
vel fyrir sig að spila brautirnar,“
útskýrir Karl Ómar. Auk þess að
keppa á vellinum er haldin pútt-
keppni og ýmsar þrautir leystar.
Allir fá síðan verðlaun í lok dags.
Karl Ómar segir að mikil fjölg-
un hafi orðið meðal yngstu kylfing-
anna, tólf ára og yngri. „Ég er til
dæmis að þjálfa uppi á Skaga og
það hefur verið stöðug fjölgun hér,“
segir hann og telur nokkrar ástæð-
ur liggja að baki „Það er tiltölu-
lega ódýrt að spila golf, að minnsta
kosti hér á Skaganum. Svo eigum
við Valdísi Þóru Íslandsmeistara,
Birgir Leifur Hafþórsson er héðan
og svo hefur verið aukin umfjöll-
un um golf. Þetta hefur allt sitt að
segja,“ segir verkefnisstjórinn.
Karl Ómar segir að Íslending-
ar eigi marga efnilega kylfinga.
„Það er fullt af flottum efnivið hjá
okkur. Stóru klúbbarnir hafa verið
að reyna að breyta golfinu í heil-
sársíþrótt. Áður var það þannig
að golfið tók við þegar skólinn
var búinn en nú eru fleiri og fleiri
krakkar sem stunda golf sem heil-
sársíþrótt. Á veturna æfum við
í íþróttahúsi og notum sérstakar
kúlur sem hægt er að slá þar og í
bland förum við í alls konar leiki.“
Karl Ómar segir að meginregl-
an sé að krakkarnir hafi gaman
af íþróttinni. „Númer eitt, tvö og
þrjú er að krakkarnir hafi gaman
af þessu. Það skiptir ekki máli
hvernig þau standa eða hvernig
þau halda á kylfunni, heldur að þau
hafi gaman af. Foreldrar mættu
stundum passa sig, það er of mikið
verið að skammast og vesenast en
það verður ekki til að vekja áhuga
krakkanna á íþróttinni. Krakkarn-
ir verða að hafa gaman af þessu, þá
fá þau áhugann og þegar hann er
kominn er hálfur sigur unninn.“
-kh
Á þriðja þúsund börn
skráð í golfklúbba
KARL ÓMAR KARLSSON Hann er
verkefnisstjóri barna- og unglingastarfs
Golfsambands Íslands.
KPMG-bikarinn 2010 fer fram á Korpúlfsstaðavelli
hjá Golfklúbbi Reykjavíkur. Í KPMG-bikarnum keppir
úrvalslið höfuðborgar gegn úrvalsliði landsbyggðar,
ekki ósvipað og er í Ryder-bikarnum. Eimskipsstiga-
listinn ræður mestu um það hverjir spila í bikarnum
en liðsstjórar velja kylfinga í tvö síðustu sætin.
Úrvalslið landsbyggðarinnar vann öruggan sigur
á úrvalsliði höfuðborgarinnar í viðureigninni í fyrra.
Eftir fyrstu og aðra umferð leiddi lið landsbyggð-
arinnar með 9 vinningum gegn 3 vinningum. Það
var því ljóst að á brattann var að sækja fyrir lið
höfuðborgarinnar.
Höfuðborg gegn landsbyggð
Á ÁTJÁNDU Á HVALEYRINNI Á
þriðja þúsund börn eru skráð sem
meðlimir í golfklúbbi samkvæmt
upplýsingum frá GSÍ.
Lið höfuðborgarsvæðisins:
Andri Már Óskarsson
Björgvin Sigurbergsson
Helgi Birkir Þórisson
Hlynur Geir Hjartarson
Magnús Lárusson
Rúnar Arnórsson
Örn Ævar Hjartarson
Nína Björk Geirsdóttir
Þórdís Geirsdóttir
Davíð Gunnlaugsson
Ólafur Hreinn Jóhannesson
Sigurpáll Geir Sveinsson
Lið landsbyggðarinnar:
Sigmundur Einar Másson
Guðmundur Ág. Kristjánsson
Tryggvi Pétursson
Arnar Snær Hákonarson
Haraldur Franklín Magnús
Guðjón Henning Hilmarsson
Stefán Már Stefánsson
Alfreð Brynjar Kristinsson
Nökkvi Gunnarsson
Andri Þór Björnsson
Berglind Björnsdóttir
Hansína Þorkelsdóttir
6328 VORU PÚTTIN sem Birgir Leifur Hafþórsson notaði þegar hann setti nýtt vallarmet á Garðavelli. HÖGG sló Heiðar Davíð Bragason úr GHD þegar hann setti nýtt vallarmet á Lundsvelli í Fnjóskadal.
173.800 kr.Verð á manní tvíbýli, frá:
Nánar á expressferdir.is
eða í síma 5 900 100
Golf á Spáni
La Sella 7, 9, 12 eða 14 daga ferðir
Góðir rástímar, íslensk fararstjórn
Innifalið: Flug með sköttum
og öðrum greiðslum, frítt fyrir
golfsettið í flug, ótakmarkað
golf, gisting á 5* lúxushóteli
með hálfu fæði, frí afnot af
golfkerru, fríir æfingaboltar og
akstur til og frá flugvelli.