Fréttablaðið - 05.10.2010, Blaðsíða 31

Fréttablaðið - 05.10.2010, Blaðsíða 31
ÞRIÐJUDAGUR 5. október 2010 19 Átta guðfræðingar hafa birt athyglisverðan pistil á vefsíð- unni tru.is þar sem þeir áfellast Alþingi Íslendinga í svokölluðu „Landsdómsmáli“. Guðfræðing- arnir ræða þá óvæntu niður- stöðu að Geir H. Haarde skuli einn kallaður til ábyrgðar fyrir landsdómi á grundvelli laga um ráðherraábyrgð. Telja þeir að þingið hafi ekki reynst þeim vanda vaxið að kalla ráðherra til ábyrgðar á grundvelli 14. greinar stjórnarskrár sem segir: „Ráð- herrar bera ábyrgð á stjórnar- framkvæmdum öllum. Ráðherra- ábyrgð er ákveðin með lögum. Alþingi getur kært ráðherra fyrir embættisrekstur þeirra. Landsdómur dæmir þau mál.“ Ég tek undir með pistlahöf- undunum að það hefur verið átakanlegt að horfa upp á ráða- leysi þingmanna gagnvart því ábyrgðarhlutverki sem þeir hafa í umboði almennings: Að skapa framkvæmdarvaldinu raunveru- legt aðhald. En hvað var það sem brást? Þegar sprungur myndast, þá verður einhvers staðar brestur undan þrýstingi og út frá honum rifnar stærri sprunga sem getur kvíslast og teygt sig bæði djúpt og langt. Brestur þessa máls varð í úrvinnslunni á niðurstöðum rannsóknarnefndar Alþingis (RNA). Skýrsla rannsóknarnefnd- arinnar var áfellisdómur yfir stjórnvöldum og stjórnsýslu landsins. Þinginu bar að bregð- ast við niðurstöðum nefndarinn- ar og gera ráðstafanir til úrbóta í því efni. Skipuð var sérstök þing- mannanefnd undir forystu Atla Gíslasonar, alþingismanns og lögmanns. Atla-nefndinni svo- kölluðu var falið með sérstakri samþykkt á Alþingi að vinna úr niðurstöðum rannsóknar- nefndarinnar. Það tókst að hluta til. Tillögur nefndarinnar um almennar úrbætur á stjórnar- fari okkar hlutu góðan hljóm- grunn í þinginu og um þær var einhuga sátt. Öðru máli gegnir um þann þátt sem snýr að lands- dómi – þar mistókst úrvinnslan hrapallega. Ástæðan er einfaldlega sú að Atla-nefndin lét sér ekki nægja niðurstöðu Rannsóknarnefndar Alþingis þegar kom að spurn- ingunni um að ákæra fyrrver- andi ráðherra. RNA hafði kom- ist að þeirri niðurstöðu að þrír fyrrverandi ráðherrar, Geir H. Haarde, Árni Mathiesen og Björgvin G. Sigurðsson hefðu brugðist starfsskyldum sínum sem ráðherrar efnahags- og fjármálakerfis með aðgerðaleysi og/eða vanrækslu sem þyrfti frekari rannsóknar við á réttum vettvangi. Rannsóknarnefnd- in undanskildi hins vegar Ingi- björgu Sólrúnu Gísladóttur þar sem hlutverk hennar sem utan- ríkisráðherra væri ekki hægt að heimfæra á það sem gerðist í bankahruninu. Þar með var ekki dregið úr pólitískri ábyrgð henn- ar sem formanns Samfylkingar- innar á þeim tíma, heldur horft til ákvæða stjórnarskrár og laga um ráðherraábyrgð. Alþingi getur samkvæmt fyrrnefndu stjórnarskrárákvæði aðeins kært ráðherra fyrir embætt- isrekstur þeirra á viðkomandi málasviði, þ.e. því málasviði sem undir ráðuneytið heyra. Ég er sammála niðurstöðu rannsóknarnefndar Alþingis og greiddi atkvæði í samræmi við það þegar málið kom til kasta Alþingis í síðustu viku. Ég tel einnig að ef þingmannanefnd- in hefði haldið sig við niðurstöðu RNA hefði atkvæðagreiðslan í þinginu farið á annan veg en varð, og línur orðið mun skýrari. En þingmannanefndin gekk lengra. Meirihluti Atla-nefnd- arinnar vildi koma lögum yfir fleiri en þá sem skýrsla RNA gaf ástæðu til. Sá þrýsting- ur varð aftur til þess að nefnd- in þrí klofnaði þar sem tveir vildu engan ákæra, tveir vildu ákæra þrjá, fimm vildu ákæra fjóra. Þarna varð sá þverbrest- ur í starfi nefndarinnar sem nú hefur teygt sig inn í þingið og dregið dilk á eftir sér. Þrýsting- urinn sem þetta olli varð nefnd- inni og þinginu ofraun. Afleið- ingin er sú að Alþingi Íslendinga hefur nú heykst á því að veita framkvæmdarvaldinu raunveru- legt aðhald og láta fara fram viðhlítandi rannsókn fyrir dóm- stólum á hlut stjórnvalda í hrun- ferlinu 2008. Nú verður það einungis einn maður sem mun standa skil á gjörðum sínum frammi fyrir landsdómi – þegar hið rökrétta hefði verið að fagráðherrarnir í ríkisstjórn hans hefðu einnig sætt rannsókn á sömu forsend- um og átt þess kost að verjast fyrir dómi. Þeir síðarnefndu verða nú lykilvitni í málaferl- unum. Þeirra hlutskipti er orðið það að fá aldrei endanlegar lykt- ir síns máls á opinberum vett- vangi, hvorki til sektar né sýknu. Eftir situr þjóðin höggdofa yfir niðurstöðunni, en þingheim- ur ráðvilltur, reiður og marg klofinn í afstöðu sinni. Afleit niðurstaða fyrir alla sem hlut eiga að þessu máli. Þverbrestur þingsins Landsdómur Ólína Þorvarðardóttir alþingismaður Samfylkingarinnar L E Y N IV O P N IÐ Fæst í verslunum Hagkaups og 10-11 · www.lífrænt.is Helvíti gott Ástæðan er einfaldlega sú að Atla- nefndin lét sér ekki nægja niðurstöðu rannsóknarnefndar Alþingis þegar kom að spurningunni um að ákæra fyrrverandi ráðherra.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.