Fréttablaðið - 12.10.2010, Síða 12
12 12. október 2010 ÞRIÐJUDAGUR
SAMKEPPNI Samkeppniseftirlitið
hefur sektað einkahlutafélagið
Ívar um tólf milljónir króna
vegna samruna félagsins við Lýsi
fyrir tveimur árum. Í úrskurði
eftir litsins segir að félagið hafi
brotið gegn banni samkeppn-
islaga þar sem samruninn
kom til framkvæmda áður en
Samkeppnis eftirlitið heimilaði
hann.
Ívar er í eigu útgerðarkon-
unnar Guðbjargar Matthíasdótt-
ur, helsta eiganda Ísfélags Vest-
mannaeyja.
Félag Guðbjargar keypti Lýsi
á 235 milljónir króna af Katrínu
Pétursdóttur, framkvæmdastjóra
Lýsis, og Gunnlaugi Sævari
Gunnlaugssyni, sem jafnframt er
stjórnar formaður Ísfélagsins.
Í úrskurði Samkeppniseftirlits-
ins segir að forsvarsmenn fyrir-
tækjanna ekki hafa leitað heim-
ilda fyrir samrunanum áður en
hann gekk í gegn líkt og kveðið
er á um. Sátt var gerð í málinu
eftir að forsvarsmenn Ívars ját-
uðu á sig sök í málinu. - jab
Félag Guðbjargar Matthíasdóttur sektað um tólf milljónir vegna kaupa á Lýsi:
Ívar beið ekki eftir grænu ljósi
GUÐBJÖRG MATTHÍASDÓTTIR
SVÍÞJÓÐ, AP Tveir bandarískir
hagfræðingar, Peter Diamond
og Dale Mortensen, deila Nób-
elsverðlaunum í hagfræði þetta
árið með Christopher Pissarides,
sem er breskur og kýpverskur.
Þeir fá verðlaunin fyrir að
hafa þróað hagfræðikenningar
sem útskýra hvernig efnahags-
stefna stjórnvalda getur haft
áhrif á atvinnuleysi. Meðal ann-
ars útskýra kenningar þeirra
hvernig á því stendur, að þótt
nýjum störfum fjölgi mjög
geta margir samt áfram verið
atvinnulausir.
Nóbelsverðlaunin verða að
venju afhent í Stokkhólmi 10.
desember. - gb
Nóbelsverðlaun í hagfræði:
Útskýra innviði
atvinnuleysis
Þau Katrín Pétursdóttir og
Gunnlaugur Sævar, sem áttu 83
prósenta hlut í Lýsi, komu illa út
úr bankahruninu. Eina eign þeirra
í einkahlutafélaginu Hnotskurn var
stór hlutur í FL Group, sem varð
verðlaus í bankahruninu. Félagið
tapaði tæpum tveimur milljörðum
króna árið 2008. Á sama tíma
skuldaði félagið tæpa 2,4 milljarða
króna, þar af voru rétt rúmir tveir
milljarðar á gjalddaga í fyrra.
Eigendur Lýsis
STYTTA AF GÓRILLU Starfsmenn Óperu-
gallerísins við Bond Street í London
bisa við að koma styttu af górillu eftir
listamanninn David Mach inn í húsið.
NORDICPHOTOS/AFP
BROSIR ÚT AÐ EYRUM Christopher
Pissarides ánægður með tíðindin.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
STJÓRNMÁL Svo getur farið að
innan nokkurra ára verði fjórir
ríkisháskólar sameinaðir í einn.
Katrín Jakobsdóttir, mennta- og
menningarmálaráðherra, hefur
sett á fót samstarfsnet skólanna,
„með hugsanlega sameiningu í
huga“, eins og segir í greinargerð
fjárlagafrumvarps næsta árs.
Skólarnir sem um ræðir eru
Háskóli Íslands, Háskólinn á
Akureyri, Landbúnaðarháskóli
Íslands og Hólaskóli – Háskólinn
á Hólum.
Til viðbótar þessum eru starf-
ræktir þrír háskólar í landinu.
Eignar- og rekstrarform þeirra
er með öðrum hætti en ríkis-
skólanna en samt sem áður njóta
þeir talsverðra framlaga úr ríkis-
sjóði.
Háskólanetinu er ætlað að bjóða
upp á fjölbreytt háskólanám á
öllum helstu fræðasviðum. Skipu-
lag náms og rannsókna á að mið-
ast við að háskólarnir vinni náið
saman og njóti krafta allra núver-
andi skóla sem starfi áfram undir
eigin nafni. Gert er ráð fyrir að
nemendur hafi aukin tækifæri til
samsetningar náms með því að
sækja námskeið í fleiri en einum
skóla. Nota á fjarkennslu í aukn-
um mæli til að bjóða upp á fjöl-
breytt nám víða á landinu með
samstarfi við þekkingarsetur og
símenntunarmiðstöðvar.
Verja á samtals 300 milljónum
króna til starfsemi samstarfsnets-
ins á næsta og þar næsta ári, að
því er fram kemur í fjárlagafrum-
varpinu. Þar segir einnig að sam-
dráttur í framlögum til opinberu
háskólanna verði heldur minni en
til þeirra háskóla sem eru reknir
af öðrum og hafa einnig umtals-
verðar tekjur af skólagjöldum.
Samhliða stofnun samstarfs-
netsins á að breyta lögum um
opinbera háskóla svo að þeir starfi
allir samkvæmt sömu lögum.
Þá á að skipuleggja stjórnsýslu
og stoðþjónustu skólanna sem
eina heild þótt starfsmenn verði
staðsettir víða. Hluti af viðfangs-
efnum sameigin legrar stjórn-
sýslu verður skipulag kennslu og
rannsókna og verkaskipting skól-
anna.
bjorn@frettabladid.is
Grunnur lagður að samein-
ingu fjögurra ríkisháskóla
Með stofnun samstarfsnets fjögurra ríkisháskóla er lagður grunnur að sameiningu þeirra. 300 milljónir
króna fara í samstarfið á tveimur árum. Framlög til ríkisháskólanna lækka minna en til annarra háskóla.
Háskóli Fjárlög ´10 Fjárlög ´11 Breyting
Háskóli Íslands 10.096,4 9.434,0 -6,6%
Háskólinn á Akureyri 1.376,5 1.287,0 -6,5%
Landbúnaðarháskóli Íslands 596,5 559,5 -6,2%
Hólaskóli – Háskólinn á Hólum 257,6 238,7 -7,3%
Háskólinn á Bifröst 332,9 306,4 -8,0%
Háskólinn í Reykjavík 2.089,0 1.918,0 -8,2%
Listaháskóli Íslands 641,8 616,6 -3,9%
Samtals 15.390,7 14.360,2 -6,7%
Framlög til háskólanna sjö
SAMEINAÐIR HÁSKÓLAR Með samstarfsnetinu er lagður grunnur að sameiningu
Háskóla Íslands, Háskólans á Akureyri, Hólaskóla - Háskólans á Hólum og Land-
búnaðarháskóla Íslands.
GAZA Sveinn Rúnar Hauksson læknir
átti fund með Ismael Haniyeh, for-
sætisráðherra Palestínu, í gærdag.
Sveinn segir fundinn hafa verið
ánægjulegan og þeir hafi meðal ann-
ars rætt um samskipti Íslands, Pal-
estínu og Ísraels.
Haniyeh lýsti yfir þakklæti sínu
á fundinum til forsvarsmanna sam-
takanna Ísland-Palestína fyrir að
koma til landsins og styðja við íbúa
þess. Einnig þakkaði Hanieyh Össuri
Skarphéðinssyni utanríkisráðherra
sérstaklega fyrir stuðninginn við
palestínsku þjóðina og bauð honum
formlega til landsins í kjölfarið.
Sveinn Rúnar hefur dvalið á Gaza-
ströndinni í tvær vikur þar sem
hann heimsækir geðhjálparstofn-
anir, sjúkrahús, heilsugæslustofn-
anir og fleira.
Sveinn segir Hanieyh, sem er einn
af formönnum Hamas-samtakanna,
enn lýsa ástandi landsins sem mjög
alvarlegu, með áframhaldandi hern-
aðarárásum, aftökum og pólitískri
einangrun. Hann segir að þó að
Ísrael og Ísland hafi löngum verið
vinaþjóðir þýði það samt sem áður
ekki að Ísland eigi ekki að gagnrýna
störf Ísraels á nokkurn hátt.
„Sannur vinur er ekki sá sem
gefur þér peninga og vopn til þess að
drepa nágranna þína,“ segir Sveinn
Rúnar í fréttatilkynningu. „Vinur
er sá sem lætur þig vita þegar þú
breytir rangt.“
- sv
Forsætisráðherra Palestínu þakkar Íslandi stuðning við þjóðina:
Býður Össuri í heimsókn til Gaza
SVEINN RÚNAR FUNDAR Í PALESTÍNU Sveinn Rúnar Hauksson, forsætisráðherra
Palestínu, ráðherra, borgarstjórinn í Gaza og varaborgarstjóri.
BRETLAND, AP Rannsókn verður
gerð á því hvort bandarískir her-
menn hafi valdið dauða breskrar
konu, Lindu Norgrove, þegar þeir
hugðust bjarga henni frá mann-
ræningjum í Afganistan í síðustu
viku.
Norgrove vann hjá hjálpar-
samtökum í Afganistan. Hún hafði,
ásamt þremur félögum sínum,
verið í haldi uppreisnar manna í
hálfan mánuð þegar bandarísk
hersveit hugðist frelsa þá.
Bandaríkjaher hafði fullyrt að
hún hefði látið lífið vegna þessa að
mannræningjarnir hefðu sprengt
sprengju þegar reynt hefði verið
að frelsa hana. Nú er hins vegar
talið hugsanlegt að handsprengja
frá bandarískum hermanni hafi
orðið henni að bana. - gb
Bresk kona féll hugsanlega fyrir hendi bandarískra hermanna í Afganistan:
Grunur um mistök hermanna