Fréttablaðið - 12.10.2010, Page 25
ÞRIÐJUDAGUR 12. október 2010 17
Hún var 28 ára þegar hún fékk nóg. Hún var búin að vera
með honum síðan hún var 16 og
hann 18. Það voru næstum þrjú ár
síðan hana hafði langað til þess að
sofa hjá honum. Hann var góður
maður. Hann hafði alltaf reynst
henni vel. Hún gat bara ekki elsk-
að hann lengur. Það versta var að
hún hafði enga afsökun. Hún ósk-
aði þess stundum að hann héldi
framhjá henni eða gerði eitthvað
sem gæti réttlætt ákvörðunina.
Hún var með svo mikla sektar-
kennd. Ekki bætti úr skák að allir
vinirnir og fjölskyldan höfðu skoð-
un á þessu. Öllum fannst svo leiðin-
legt að þau væru að skilja. Öllum
fannst þau svo frábær saman
og fannst að hún gæti alveg lagt
aðeins meira á sig. Enginn skildi
hennar tilfinningar. Enginn setti
sig í hennar spor. Hún fékk engan
stuðning þegar hún tók erfiðustu
ákvörðun lífs síns.
Hann var 36 ára þegar hann gat
ekki lengur lokað augunum fyrir
staðreyndunum sem blöstu við.
Það var augljóst að hún hélt fram-
hjá honum. Þegar hann hafði safn-
að í sig kjarki og spurt hana beint
út fékk hann öll svörin sem hann
hafði óttast mest. Hún hafði verið
í sambandi við annan mann í þrjú
ár. Hún var þó ekki viss hvort hún
vildi hann eða hinn. Hún stakk
upp á fjölskylduráðgjöf og þau
fóru í tvo tíma. Í öðrum tímanum
var ljóst að hún vildi bara halda
þeim báðum. Hún vildi ekki skilja
en hún vildi ekki heldur hætta með
hinum. Þetta voru myrkustu mán-
uðir lífs hans. Hann vissi varla
mun á nóttu og degi. Hann hætti
að geta borðað. Hann bara grét.
Hann skildi hana samt svo vel
að vilja einhvern annan en hann.
Hann var svo sem ekki merkilegur
pappír. En hann hafði alltaf elsk-
að hana. Það hafði ekkert breyst.
Oft langaði hann mest að láta bara
sem ekkert hefði í skorist og horfa
í hina áttina. Það var svo erfitt að
skilja, að rífa sig upp frá öllu sem
var kunnuglegt og halda út í óviss-
una.
Að lokum gat hann ekki annað
en farið. Hann gat ekki látið koma
svona fram við sig. Þegar hann
loksins skildi kom í ljós hverjir
voru virkilegir vinir hans.
Hún var 42 ára þegar hún loks-
ins fór frá honum. Þau höfðu verið
saman frá því bæði voru 25 ára.
Hún varð ólétt nánast um leið
og þau kynntust og þá giftu þau
sig, keyptu hús og byrjuðu í basl-
inu. Fljótlega kom annað barn en
síðan liðu fimm ár þar til litli kút-
urinn fæddist. Það var þegar hún
var ólétt af honum sem hann sló
hana fyrst. Hún fékk svo sem ekki
mikið áfall. Hann hafði alltaf verið
ógnandi í framkomu þegar hann
drakk og oft hafði hann hótað að
leggja hendur á hana. Þetta var
bara sjálfsagt framhald af öllu
saman.
Það tók hana tíu ár, frá fyrsta
högginu, að koma sér í burtu. Hún
vildi alltaf gera það sem börnun-
um var fyrir bestu og hún vildi
líka svo gjarnan hjálpa honum.
Það tók hana tíu ár að átta sig á því
að hún gæti aldrei hjálpað honum.
Það tók hana líka tíu ár að viður-
kenna að hjónabandið væri ekki
það besta fyrir börnin.
En það var svo erfitt þegar vin-
irnir og vinkonurnar virtust ekki
almennilega trúa henni. Þau létu
stundum í það skína að hún væri
bara að búa þetta til. Meira að
segja mamma hennar og pabbi
voru lengi vel á hans bandi. Hann
hafði nú alltaf verið svo góður
þrátt fyrir allt.
Þessar sögur gætu allar verið
sannar.
Munur á sorg vegna dauðsfalls
annars vegar og skilnaðar hins
vegar getur falist í afleiðingum
og viðbrögðum umhverfis. Við frá-
fall maka fær eftirlifandi jafnan
samúð og umhyggju. Sá sem lést
er horfinn að eilífu. Við dauðsfall
eru fyrir hendi skýrar reglur og
hefðir um það hvernig hinn látni
eða hin látna er kvödd. Það undir-
strikar missinn og veitir farveg
fyrir sorgarúrvinnslu og samúð
til eftirlifandi. Oft verða margir
til þess að veita hjálparhönd, bæði
fagaðilar, ættingjar og vinir.
Við skilnað geta viðbrögð
umhverfis verið afar breytileg.
Margir mæta skilningi og hlýju,
aðrir geta mætt andúð og jafnvel
fordæmingu. Sumir missa sam-
band við fyrrverandi tengdafjöl-
skyldu og vini, jafnvel börn sín.
Mikill söknuður og sorg getur
fylgt í kjölfarið. Það að horfa upp á
fyrrverandi maka með nýjum lífs-
förunaut getur valdið óbærilegri
þjáningu. Sorgin og sorgarferlið
verður oft blandin reiði og höfn-
unartilfinningu sem erfitt getur
reynst að vinna úr og jafna sig á.
Þetta getur leitt af sér beiskju og
einmanaleika. Þá getur þjóðfélags-
staða og efnahagur breyst mikið
og skipting eigna raskað fjárhag
illilega.
Stór hluti af daglegu lífi í söfn-
uðum landsins gengur út á að
ganga með fólki sem hefur misst.
Þetta á jafnt við um fólk sem hefur
misst vegna andláts og skilnaðar.
Bæði er unnið með fólki í einstakl-
ingsviðtölum og í sjálfshjálparhóp-
um en það form hefur reynst vel
þegar kemur að sorgarúrvinnslu.
Í sorgarhópum og sjálfstyrkingar-
hópum fyrir fráskilda gefst ein-
staklingum tækifæri til þess að
kynnast öðrum sem hafa svip-
aða reynslu að baki, deila reynslu
sinni og styðja hvert annað í því að
ná áttum og sáttum.
Að ná áttum og sáttum
Hjónaskilnaðir
Guðrún
Karlsdóttir
prestur í
Grafarvogskirkju
Það tók hana líka tíu ár að viður-
kenna að hjónabandið væri ekki það
besta fyrir börnin.
Hverfisgata 56, 101 Reykjavík
Sími: 552 1630
Opið:
sun.-fim. 18:00 - 22:00
fös. og lau. 18:00 - 23:00 www.austurindia.is
Indverjum duga ekki færri en fimm dagar til að
halda upp á hátíð ljóssins, Diwali, sem nú á hug
þeirra og hjörtu.
Við hjá Austur-Indíafjelaginu viljum færa örlitla
birtu inn í byrjun vetrar og bjóðum því upp á
sérstakan fimm rétta Diwali-hátíðarmatseðil í
október á afar góðu verði: 4.990 kr. alla daga.
Borðapantanir í síma 552 1630.
Hátíð ljóssins hjá
Austur-Indíafjelaginu
Chandrika Gunnarsson eigandi
Austur-Indíafélagsins býður gesti velkomna
á Diwali, hátíð ljóssins.
DIWALI
hátíðarmatseðill
4.990 kr.
FORRÉTTUR
Malabari Machli
Pönnusteiktur lax í kókos með
karrýlaufum og garam masala
AÐALRÉTTIR
Peshwari Gosht
Grillað lambafillet marinerað
í kasjúhnetum, engiferi,
chillí og hvítlauk
og
Murgh Korma
Kjúklingalundir á hægum eldi í blöndu
af kókosmjólk, birkifræjum, kanil
og kardemommum
og
Channa Masala
Kjúklingabaunir eldaðar með tómötum,
kúmeni, chilí og kóríander
MEÐLÆTI
Raitha
Heimalöguð jógúrtsósa með
gúrkum og kryddblöndu
og
Basmati hrísgrjón
og
Naan brauð
Garlic Naan með hvítlauk
Masala Kulcha með kúmeni, lauk
og kóríander
EFTIRRÉTTUR
Kahjoor Halwa
Indverskur eftirréttur með
döðlum, súkkulaði,
hesilhnetum og kókos
Fimm rétta