Fréttablaðið


Fréttablaðið - 13.10.2010, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 13.10.2010, Qupperneq 6
6 13. október 2010 MIÐVIKUDAGUR ERTU MEÐ VIÐKVÆMA HÚÐ? Finnur þú fyrir þurrki í leggöngum, kláða, sveppasýkingu eða færðu sár við notkun dömubinda? Prófaðu þá Natracare lífrænar hreinlætisvörur, án klórs, ilm- og plastefna. www.natracare.is LÍFRÆNAR HREINLÆTISVÖRUR Nàttúruleg vellíðan Asphalia - Náttúrulegur svefn Fæst í apótekum og heilsubúðum 220 MILLJARÐAR Í AFSKRIFTIR Ef farið verður í flatar lánaafskriftir kostar það 220 milljarða. SAMSETT MYND Horfðir þú á U-21 leik Íslands og Skotlands? Já 46% Nei 54% SPURNING DAGSINS Í DAG: Bindur þú miklar vonir við komandi stjórnlagaþing? Segðu skoðun þína á visir.is EFNAHAGSMÁL Ríkissjóður gæti þurft að leggja allt að 130 millj- arða króna til Íbúðalánasjóðs, verði höfuðstóll íbúðalána lækkaður um átján prósent. Að öðrum kosti gætu lífeyrissjóðirnir þurft að taka á sig skell. Fram kom í kvöldfréttum Ríkis- útvarpsins í gær að verðtryggð húsnæðislán næmu 1.230 milljörð- um króna. Flöt átján prósenta nið- urfærsla á fasteignalánum kostaði 220 milljarða króna. Sé upphæðinni deilt niður á lánveitendur Íbúða- lánasjóðs myndi það kosta bankana sextíu milljarða króna, lífeyrissjóð- ina þrjátíu og Íbúðalánasjóð 130. Hjá Íbúðalánasjóði er verið að skoða tvær leiðir til að lækka höf- uðstól íbúðalána og hvað þær muni kosta. Ásta H. Bragadóttir, forstjóri Íbúðalánasjóðs, segir sjóðinn ekki geta tekið niðurfærsluna á sig. Sjóðurinn hafi engan afskriftasjóð sem geti tekið við skellinum. Annað hvort verði ríkið að leggja honum til það fjármagn sem upp á vanti eða að afskrifa skuldir sjóðsins á móti. Helstu lánardottnar Íbúðalánasjóðs eru lífeyrissjóðir landsins. „Endan- legir útreikningar liggja ekki fyrir, enda útfærslan ekki komin,“ segir Ásta. - jab Tvær leiðir ræddar um 18 prósenta afskrift á fasteignalánum en báðar eru dýrar: Flatar afskriftir kosta 220 milljarða STJÓRNMÁL Fundur um 30 þing- manna úr öllum flokkum í þjóð- menningarhúsinu í gærkvöldi markar spor í þá átt að stjórn- málaflokkarnir nái saman um að taka á skuldavanda heim- ila og fyrir tækja, segir Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra. „Það hefur komið fram að þær aðgerðir sem gripið hefur verið til eru ekki fullnægjandi, og það sem meiru skiptir er að þær hafa ekki verið nýttar af þeim sem eru í miklum greiðsluvanda,“ segir Jóhanna. Fundinn sátu þingmenn úr fjórum þingnefndum, auk fimm ráðherra. „Menn voru sammála um að skerpa þurfi á þeim úrræðum sem í boði eru þannig að þau verði virk- ari, bæði hjá lánastofnun- um og umboðsmanni skuldara. Á fund- inum komu fram margar athyglis- verðar hugmynd- ir um hvernig hægt sé að vinna að þess- um málum,“ segir Jóhanna. „Þarna var mikill samstarfsvilji og ég vona að hann skili sér í aðgerð- um fyrir fólkið, það er það sem mestu skiptir,“ segir Jóhanna. Hún reiknar með að einhverj- ar aðgerðir verði samþykktar strax í þessari viku, til dæmis að stöðva innheimtuaðgerð- ir strax hjá þeim sem leiti til umboðs- manns skuldara. Hún segir undirbúning fyrir aðrar aðgerðir taka lengri tíma. Jóhanna segir þenn- an fund leggja lín- urnar fyrir fund sem verður með fulltrúum fjár- málastofnana og hagsmuna- aðilum heim- ilanna í dag. Sá fundur muni gefa skýrar vís- bendingar um hvort þess- ir aðilar séu til- búnir til að vinna að því með stjórn- völdum að finna lausnir. Meðal þess sem ræða á betur í dag eru hugmynd- ir um niðurfærslu á skuldum. Jóhanna segir skiptar skoðan- ir um málið í öllum flokkum og í þjóðfélaginu. Niðurfærsla á skuld- um hafi áhrif á banka, Íbúðalána- sjóð og lífeyrissjóðina. Samfélags- lega sátt þurfi um málið, og erfitt að segja hversu langt sé í að niður- staða náist. Jóhanna segir þennan fund að mörgu leyti einstakan. „Ég held það sé ekki hægt að finna marga fundi í sögunni þar sem helmingur þingmanna, úr stjórn og stjórnar- andstöðu, hefur setið saman í ein- lægum og málefnalegum umræð- um um hvernig hægt er að leysa vandann.“ brjann@frettabladid.is Skref í átt að lausn á skuldavandanum Um helmingur þingmanna úr öllum flokkum sat fund um skuldavanda heim- ila og fyrirtækja í gær. Afar vel heppnaður fundur þar sem margar hugmyndir komu fram segir forsætisráðherra. Taka höndum saman um að leysa vandann. Eygló Harðardóttir, þingmaður Fram- sóknarflokksins, segist ánægð með að fundurinn hafi verið haldinn og að ráð- herrar hafi þar sýnt að þeir séu tilbúnir til að hlusta á það sem allir hafi haft fram að færa. Allir aðilar þurfi þó að koma að borðinu eigi að fara í almennar aðgerðir. „Það þarf að búa til nánast þjóðarsátt um það að taka á þessum skulda- vanda.“ - þj Þjóðarsátt þarf Pétur Blöndal, þingmaður Sjálfstæðis- flokksins, segir fundinn hafa verið málefna- legan. Hann segir ríkisstjórna á villigöt- um í mörgum málum, „en vandi heimilanna er svo brýnt mál að við verðum að taka hönd- um saman til að leysa hann. Ef það kemur svo einhver niðurstaða úr þessum fundum þá er það þess virði“. - þj Vinna saman Margrét Tryggvadóttir sat fundinn fyrir hödnd Hreyfingarinnar og sagði hann hafa verið góðan. „Það var gott vinnuandrúmsloft og það segir manni kannski að þetta er ekki alveg vonlaust. En ég varð þó fyrir smá vonbrigðum með að ekkert róttækt kom fram á fundinum, en það er það sem við þurfum.“ - þj Ekkert róttækt JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR CHILE, AP Björgunaraðgerðir hófust í Chile í gærkvöldi þar sem ferja átti námuverkamennina 33 sem hafa verið innilokaðir neðanjarðar í 69 daga, upp á yfirborðið. Heims- byggðin hefur fylgst náið með framvindunni og voru til dæmis um tvö þúsund fjölmiðlamenn á vettvangi í gær. Björgunaraðgerðir stóðu enn yfir þegar Fréttablaðið fór í prent- un en hífa átti upp mennina hvern fyrir sig í þar til gerðu hylki. Ráðgert var að ferðin upp á yfir- borð jarðar tæki um 20 mínútur, um 620 metra leið. Florencio Áva- los átti að verða sá fyrsti til að líta dagsins ljós, en verkstjórinn Lois Urzua mun reka lestina. Mikil spenna hefur ríkt meðal aðstandenda námumannanna und- anfarna daga þar sem þeir bíða björgunarinnar fyrir ofan nám- una. Andrúmsloftið hefur ein- kennst af harkalegum deilum um allt frá peningum, sem fást fyrir viðtöl við fjölmiðla, til ágrein- ings um það hver sé nógu náskyld- ur námumanni til að eiga heima í hópnum. - gb, þj Námumennirnir að losna úr prísundinni eftir tveggja mánaða einangrun: Björgunaraðgerðir hafnar í Chile ALLT AÐ VERÐA KLÁRT Björgunarmaður prófaði hylkið sem notað er til að bjarga námumönnunum. NORDICPHOTOS/AFP LÖGREGLUMÁL „Það stökk hérna inn maður og ógnaði starfsstúlku með hnífi og vildi peninga,” segir Guðmundur Arnfjörð, eigandi Pizzunnar í Núpalind í Kópavogi. Vopnað rán var framið á staðn- um um tíu leytið í gær. Þjófur- inn hafði um 20 þúsund krónur úr krafsinu. Að sögn Guðmund- ar var starfsmanninum að vonum brugðið en hann fékk áfallahjálp. Myndavélakerfi er á staðnum og vonast Guðmundur til að myndir úr því nýtist lögreglunni til að leysa málið. - kh Vopnað rán á Pizzunni: Ógnaði stúlku með hnífi KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.