Fréttablaðið - 13.10.2010, Síða 10
10 13. október 2010 MIÐVIKUDAGUR
Veldu þér Škoda
Notaðir bílar · Kletthálsi og Laugavegi 174 · Sími: 590-5040 · Opið virka daga 10–18 og laugardaga 12–16.
HAFÐU HANN Í ÁBYRGÐ MEÐ BÍLAÁBYRGÐ HEKLU
Komdu við hjá okkur á Kletthálsi og skoðaðu úrvalið
af nýlegum og sparneytnum Škoda bílum. Verðið er
sérlega hagstætt og með Bílaábyrgð HEKLU getur þú
haft bílinn í ábyrgð þar til hann nær fimm ára aldri.
Škoda Octavia 1.9 TDi dísil
Ásett 2.390.000 kr. – Ekinn 62.000 km.
Skráningardagur 14.05.07. Beinskiptur.
Ásett 2.190.000 kr. - Ekinn 78.000 km.
Skráningardagur 18.12.06. Sjálfskiptur.
Ásett 2.490.000 kr. – Ekinn 69.000 km.
Skráningardagur 29.05.07. Sjálfskiptur.
Ásett 2.250.000 kr. – Ekinn 76.000 km.
Skráningardagur 11.05.07. Beinskiptur.
Ásett 1.900.000 kr. – Ekinn 60.000 km.
Skráningardagur 21.11.07. Beinskiptur.
Ásett 1.950.000 kr. – Ekinn 21.000 km.
Skráningardagur 07.04.08. Beinskiptur.
Škoda Octavia 2.0 FSi bensín Škoda Octavia 1.9 TDi dísil
Škoda Octavia 1.9 TDi dísil Škoda Roomster 1.6 bensín Škoda Fabia Combi 1.2 bensín
MEÐ BÍLAÁBYRGÐ HEKLU
MEÐ BÍLAÁBYRGÐ HEKLU
MEÐ BÍLAÁBYRGÐ HEKLU
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
VIÐSKIPTI Jóhannes Jónsson, löng-
um kenndur við Bónus, hefur hætt
við kaup á tískuvöruverslununum
Zöru, Topshop og All Saints.
Hagar reka verslanirnar þrjár
og ætla að gera það áfram þrátt
fyrir persónuleg tengsl eigenda
viðkomandi umboða við Jóhann-
es og fjölskyldu hans. Þegar hefur
verið ákveðið að selja matvöru-
verslanir 10-11 út úr fyrirtækja-
samstæðunni. Hagar eru nú í
söluferli hjá Arion banka og verð-
ur tilhögun þess og framkvæmd
tilkynnt á næstu dögum.
Bankinn,
sem á meiri-
hluta í Högum,
s a md i v i ð
Jóhannes í kjöl-
far brotthvarfs
hans úr stjórn-
arformanns-
sæti Haga í
ágústlok um
að hann fengi
að kaupa helm-
ingshlut í mat-
vöruverslununum SMS í Færeyj-
um ásamt tískuvöruverslununum
þremur fyrir rúma 1,2 milljarða
króna. Samningar um kaupin á
SMS standa enn. Verðmæti helm-
ingshlutar Haga í SMS-verslun-
unum hljóðar upp á 450 milljón-
ir króna.
Jóhannes vildi ekki tjá sig
um ástæðu þess að hann hætti
við kaupin þegar eftir því var
leitað í gær. Hann hefur verið
í stífri krabbameinsmeðferð
á sjúkrahúsi í yfir tíu daga og
sagðist engu vilja bæta við
tilkynninguna.
- jab
Jóhannes í Bónus hættur við kaup á þremur tískuvöruverslunum í eigu Haga:
Kaupir helmingshlut í SMS
JÓHANNES
JÓNSSON
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á höfuð-
borgarsvæðinu leitaði enn síð-
degis í gær að manni sem réðst
á sextán ára stúlku í austurborg-
inni í fyrradag. Stúlkan er illa
slösuð eftir árásina. Hún er brotin
á hönd, með skurði á höfðinu og
mar víða, meðal annars á hálsi.
Árásin var gerð á milli klukkan
15 og 15.30 í fyrradag á göngu-
stíg norðan Suðurlandsbrautar,
fyrir neðan Vegmúla. Árásarmað-
urinn er talinn vera 170 til 175
sentimetrar á hæð, skolhærður og
klæddur í svarta yfirhöfn og hvíta
skó en rauður litur kann einnig að
vera á skónum. Líklegt þykir að
árásarmaðurinn sé rétt um tví-
tugt og íslenskur. Þeir sem geta
varpað ljósi á málið eru vinsam-
legast beðnir um að hafa samband
við lögregluna á höfuðborgar-
svæðinu í síma 444-1000. - jss
16 ára fórnarlamb illa slasað:
Árásarmanns-
ins enn leitað
BRUNI Tugmilljónatjón varð í elds-
voða á dekkjaverkstæði Pitt-stop
við Rauðhellu í Hafnarfirði aðfara-
nótt þriðjudagsnótt. Eldsupptök eru
ókunn.
Eldsins varð vart laust fyrir
klukkan hálfeitt aðfaranótt þriðju-
dags og var allt tiltækt slökkvilið
á höfuðborgarsvæðinu sent á vett-
vang. Þá var bakvakt einnig kölluð
út. Alls voru hátt í 40 slökkviliðs-
menn sendir á staðinn.
Húsið var alelda þegar að var
komið og lagði slökkvilið áherslu
á að verja nálæg hús og þá hluta
verkstæðisins sem stúkaðir voru af
með eldvarnarveggjum. Eftir rúma
klukkustund náðust tök á eldinum.
Undir morgun voru slökkviliðs-
menn farnir að slökkva í glæðum.
Dekkjaskiptivélar eru ónýtar
eins og dekkjalagerinn. Þá er húsið
gjörónýtt. - sh
Dekkjaverkstæði í Hafnarfirði stóð í ljósum logum í fyrrinótt:
Tugmilljónatjón í eldsvoða
ALLT ÓNÝTT Verkstæðið gereyðilagðist í brunanum og hleypur tjónið á tugmilljónum.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
KÍNA, AP Liu Xia segist vonast til
þess að komast til Svíþjóðar að
taka við friðarverðlaunum Nób-
els hinn 10. desember fyrir hönd
eiginmanns síns, Liu Xiaobo, sem
situr í fangelsi í Kína.
Sjálf er hún í stofufangelsi á
heimili sínu í Peking, en náðst
hefur samband við hana í síma.
„Sem stendur get ég ekki einu
sinni komist út fyrir dyr hússins
míns, hvað þá út úr landinu,“ sagði
hún í gær. Hún hitti eiginmann
sinn í fangelsinu á sunnudag. - gb
Eiginkona verðlaunahafa:
Vonast til að
taka við Nóbel
Vegopnunarhátíð haldin
Íbúar á Þórshöfn og nágrenni halda
vegopnunarhátíðina Núna fer ég
norður! í tilefni af opnun Hófskarðs-
leiðar þann 5. til 7. nóvember.
ÞÓRSHÖFN
GLÍMUKAPPI Til að styrkja háls og
herðar ganga pakistanskir glímukapp-
ar, svonefndir Pahalwan, um gólf með
hringlaga steinferlíki um hálsinn á
undan æfingum. NORDICPHOTOS/AFP
DÓMSMÁL Héraðsdómur Suð-
urlands dæmdi karlmann í
tíu mánaða fangelsi fyrir að
hafa ræktað 206 kannabis-
plöntur í Hveragerði og haft í
fórum sínum rúmlega þrjú kíló
af kannabisefnum. Þá fannst
hjá honum rúmt kíló af muld-
um laufblöðum og stönglum af
kannabisplöntum og um sautján
grömm af hassolíu.
Maðurinn játaði sök fyrir
dómi, en sagði efnin ætluð til
eigin neyslu. Því trúði dómarinn
ekki. - jss
Með ræktun og fíkniefni:
Tíu mánuðir
fyrir kannabis