Fréttablaðið - 18.10.2010, Side 4
4 18. október 2010 MÁNUDAGUR
EFNAHAGSMÁL Heildarkostnaður
þeirra sem komu að málum vegna
eldgosanna í Eyjafjallajökli og á
Fimmvörðuhálsi árið 2010 er met-
inn á rúmlega 800 milljónir króna.
Stærstu einstöku liðirnir þar eru
190 milljónir til Bjargráðasjóðs,
117 milljónir til Vegagerðarinnar
og 116 milljónir til Landgræðslu
ríkisins. Af öðrum stórum liðum
má nefna Veðurstofu Íslands með
78 milljónir og Ríkislögreglu-
stjóra með 54 milljónir.
Tillögur til að mæta þessum
kostnaði koma fram í frumvarpi
til fjáraukalaga fyrir árið 2010.
Tillögurnar að fjárveitingunum
eru byggðar á niðurstöðu sam-
ráðshóps ráðuneytisstjóra fimm
ráðuneyta sem settur var á lagg-
irnar til að leggja mat á kostnað
þeirra aðila sem komu að aðstoð
meðan á eldsumbrotunum stóð
og þeirra sem komið hafa að upp-
byggingu í kjölfar hamfaranna.
Í skýringum við frumvarpið
kemur fram að tuttugu aðilar bera
umtalsverðan kostnað vegna ham-
faranna. Eins og gefur að skilja
ber Bjargráðasjóður hitann og
þungann af þessum kostnaði ásamt
Vegagerðinni og Landgræðslunni.
Hlutverk Bjargráðasjóðs er að
veita einstaklingum, félögum og
sveitarfélögum fjárhagsaðstoð
til að bæta bein tiltekin tjón af
völdum náttúruhamfara. Kemur
þar inn í myndina tjón á fasteign-
um, landi, tækjum og bústofni eða
afurðum.
Vegagerðin þurfti að leggja í
verulegan kostnað þegar rjúfa
þurfti þjóðveg 1 vegna flóða niður
Markarfljót. Kostnaðurinn við að
koma hringveginum í samt horf,
ásamt öðru smálegu, er metinn á
117 milljónir. Þá fær Landgræðsl-
an 70 milljónir króna vegna upp-
byggingar varnargarða vegna
flóðanna.
Til viðbótar við þær 800 millj-
ónir sem mælt er með að renni til
ýmissa stofnana og viðbragðsaðila
má nefna 350 milljónir vegna
markaðsátaks í íslenskri ferða-
þjónustu til að vega á móti nei-
kvæðum áhrifum eldgosanna.
Frá því að Landeyjahöfn var
tekin í notkun í júlí á þessu ári
hefur verið erfiðleikum bundið
að halda henni opinni vegna sand-
burðar. Ein ástæða þessa er að
mikið magn gosefna frá gosinu í
Eyjafjallajökli berst inn í höfnina
og 180 milljónir þarf til að mæta
kostnaði vegna þessa.
svavar@frettabladid.is
Eldgosin koma við pyngjuna
Tuttugu stofnanir og viðbragðsaðilar báru ófyrirséðan kostnað vegna eldgosanna í Eyjafjallajökli og á
Fimmvörðuhálsi. Hann er metinn á rúmlega 800 milljónir. Vegir og varnargarðar kostuðu 200 milljónir.
Jarðvísindastofnun HÍ ...............32,4
Bjargráðasjóður ....................... 190,0
Matvælastofnun ........................... 1,0
Slysavarnafélagið Landsbjörg 47,9
Rauði kross Íslands ..................... 7,0
Ríkislögreglustjóri...................... 54,4
Lögreglustjórinn á
höfuðborgarsvæðinu .................. 1,0
Landhelgisgæslan ......................20,2
Lögreglan á Hvolsvelli............... 15,1
Lögreglan á Selfossi ....................0,6
Landlæknir .....................................9,0
Viðbúnaður gegn farsóttum ... 27,7
Ýmis verkefni hjá
fjármálaráðuneytinu ..................44,7
Vegagerðin ................................. 117,2
Landeyjahöfn ..............................10,0
Flugstoðir ......................................16,8
Umhverfisstofnun .......................11,7
Landgræðslan ............................ 46,0
Landgræðslan .............................70,0
Veðurstofan .................................78,0
Samtals ...................................800,7
Framlög vegna eldgosa
í milljónum króna
16. APRÍL 2010 Rjúfa þurfti þjóðveginn til að hlífa brúnni yfir Markarfljót vegna hlaups í ánni þegar gaus í Eyjafjallajökli.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
LÖGREGLUMÁL Brot 154 ökumanna
voru mynduð á Hafnarfjarðar-
vegi fyrir helgi. Fylgst var með
ökutækjum sem var ekið Hafnar-
fjarðarveg í suðurátt, gegnt
Akrahverfi í Garðabæ.
Á einni klukkustund, eftir
hádegi, fóru 1.125 ökutæki þessa
akstursleið og því óku allmargir
ökumenn, eða fjórtán prósent,
yfir löglegum hraða.
Hinir brotlegu voru á 93 kíló-
metra meðalhraða en á þessum
vegarkafla er áttatíu kílómetra
hámarkshraði. Tuttugu óku á 100
kílómetra hraða eða meira, en sá
sem hraðast ók mældist á 112.
Hraðakstur í Garðabæ:
14% ökumanna
fóru of hratt
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
20°
15°
10°
10°
11°
5°
9°
9°
24°
14°
19°
15°
28°
10°
13°
18°
8°Á MORGUN
Fremur hægur vindur
víðast hvar.
MIÐVIKUDAGUR
Strekkingur allra
austast, annars hægari.
6
-2
-1
3
4
4 1
2
14
4
3
1
3
2
3
2
5
5
6
-2
10
7
8
7
6
6
6
5
12
8
156
KÓLNAR Í BILI
Það verður heldur
kuldalegra en verið
hefur á landinu
næstu daga og þá
sérstaklega norð-
an- og austanlands
þar sem hitinn
verður í kringum
frostmark og bú-
ast má við éljum.
Sunnan- og vestan-
lands verður heldur
mildara veður og
sólríkara.
Ingibjörg
Karlsdóttir
veður-
fréttamaður
FRÆÐI Náttúrufræðistofnun
Íslands stendur þessa dagana
í flutningum í nýtt húsnæði í
Urriðaholti í Garðabæ. Húsið
er 3.500 fermetrar að stærð og
stendur við svokallað Jónasar-
torg, vestast á Urriðaholti.
Flutningur í nýtt húsnæði þýðir
byltingu í aðstöðu til rannsókna,
fræðslu og varðveislu gripa. Þar
með lýkur hálfrar aldrar bið
stofnunarinnar eftir varanlegum
heimkynnum, en hún hefur verið
í bráðabirgðahúsnæði við Hlemm
í rúma fimm áratugi. - shá
Bylting í náttúruvísindum:
Náttúrufræði-
stofnun flytur
NÝTT FRÆÐAHÚS Húsið er 3.500 fer-
metrar að stærð. MYND/NÍ
EFNAHAGSMÁL Óskað er eftir tæp-
lega 835 milljóna króna fjárveit-
ingu í frumvarpi til fjáraukalaga
til kaupa á sendiherrabústaði í
London. Utanríkisráðuneytið seldi
eldra húsnæði nýlega fyrir 1,7
milljarða króna.
Viðskiptin eru þáttur í ráðstöf-
unum til að bæta afkomu ríkissjóðs
á árinu. Ávinningur ríkis sjóðs af
eignabreytingunum er metinn
nærri 900 milljónum króna. Nýtt
húsnæði hefur verið keypt og er til
afhendingar í haust. Unnið er að
lagfæringum og endurbótum. - shá
Frumvarp til fjáraukalaga:
Sparað með
nýjum bústað
BRETLAND, AP Biskup og prestur
innan ensku þjóðkirkjunnar til-
kynntu nýverið að þeir ætli að ger-
ast meðlimir rómversk-kaþólsku
kirkjunnar. Ástæðuna segja þeir
vera óánægju með þau áform
þjóðkirkjunnar að leyfa kvenkyns
prestum að gegna stöðu biskups.
John Broadhurst, biskup í Ful-
ham í London, er mótfallinn því
að konur geti gegnt stöðu bisk-
ups og því hafi hann ákveðið að
ganga í rómversk-kaþólsku kirkj-
una. Benedikt páfi XVI. inn-
leiddi nýverið nýja reglu sem
heimilar kvæntum prestum innan
ensku þjóðkirkjunnar að starfa
undir nafni rómversk-kaþólsku
kirkjunnar.
„Ég hyggst hætta störfum áður
en árinu lýkur. Ég er ekki að fara
á eftirlaun, ég er að segja upp
störfum,“ sagði Broadhurst.
Kosið verður um nýja reglugerð
sem heimilar konum að gegna
embætti biskups á næsta ári. -sm
PÁFINN Í HEIMSÓKN Benedikt
páfi heimsótti Bretland um miðj-
an síðasta mánuð.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Biskup og prestur segja sig úr ensku þjóðkirkjunni þar sem leyfa á kvenbiskupa:
Skipta um trú í mótmælaskyni
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Sigmundur Halldórsson sigmundur@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is
GENGIÐ 15.10.2010
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
206,6864
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
110,34 110,86
177,19 178,05
155,27 156,13
20,821 20,943
19,183 19,295
16,808 16,906
1,3573 1,3653
174,3 175,34
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR