Fréttablaðið - 18.10.2010, Side 47
MÁNUDAGUR 18. október 2010 23
Everything Everything ★
Hafnarhúsið
Þvílík leiðindi
Everything Everything byrjaði og end-
aði á leiðinlegum lögum. Í millitíðinni
spilaði hljómsveitin leiðinleg lög. Ég
verð samt að hrósa hljómsveitinni
fyrir að ná áhorfendum á sitt band
með jafn slæmum lagalista, en það
hlýtur að skrifast á „Hey þeir eru frá
útlöndum!“. Allavega er vandfundinn
týpískari sveit með týpískari lög, rænd
þokka og grípandi lykkjum.
Hljómsveitin er líka vel spilandi
sem gerir leiðinleg lögin ennþá meiri
vonbrigði. Tónleikarnir voru eins og
að mæta að nægtarborði lystisemda
á frábærum veitingastað og fá ristað
brauð með smjöri og osti. - afb
Hurts ★★★
Hafnarhúsið
Sleipir sem álar
Hurts á eitt og eitt frábært lag. Önnur
voru ekki eins góð. Melódramatísk
lögin hljómuðu nokkuð vel í risa-
vöxnu hljóðkerfi Hafnarhússins og
lýsing og myndbönd spiluðu með.
Þetta var allt eins og vel spilandi
fótboltalið.
Hljómsveitin hlýtur að fá verðlaun
fyrir klæðaburð og hárgreiðslur, en
strákarnir voru sleipir sem álar. Veit
ekki hvort það útskýrir eitthvað, en
þegar ég kynnti söngvarann fyrir
vinkonu minni á Kaffibarnum seinna
kvöldið hafði hann meiri áhuga á því
að vita hvað ég héti. - afb
Bárujárn ★★★
Amsterdam
Gleðin réð ríkjum
Klukkan var að ganga tvö aðfaranótt
laugardagsins þegar Bárujárn taldi
í fyrsta lagið. Bárujárn spilar hressi-
lega blöndu af brimrokki, rokkabillý
og sýrutónlist. Þau stóðu sig vel, en
sérstakt hrós fær Hekla fyrir snilldar-
takta á þeramínið. Það var mikil
gleðistemning á Amsterdam þegar
Bárujárn spilaði, margir orðnir ölkeikir
og ekki voru gó-gó stelpurnar sem
komu fram með sveitinni til þess að
minnka stuðið. Gaman. - tj
Rolo Tomassi ★★★★
Sódóma
Frábær keyrsla
Rokkið réð ríkjum á Sódómu á föstu-
dagskvöldið. Eina erlenda nafnið var
breska sveitin Rolo Tomassi og hún
stóð svo sannarlega undir vænting-
um. Kraftmikil sveit skipuð fimm
ungum Sheffield-búum. Tónlistin
var hart, hrátt og kraftmikið „stærð-
fræði-rokk“ með allskonar pæling-
um, kaflaskiptingum og óvæntum
litbrigðum. Söngkonan Eva Spence
öskrar með rödd sem manni finnst
varla hæfa nettum kroppnum og
strákarnir eru hver öðrum flottari.
Ótrúlegur gítarleikari, hugmyndaríkur
hljómborðsleikari og þétt ryþmapar.
Frábær keyrsla sem var samt stöðvuð
snarlega þegar tveir áhorfendur
gerðu sig líklega til slagsmála. „Það er
ekki slegist á tónleikum hjá okkur!“
og sveitin hóf ekki leik aftur fyrr en
menn voru búnir að ná sér niður.
Flott lið … - tj
Tónleikar Ghostigital í Tjarnarbíói
drógu að sér nokkuð af þekktu fólki.
Óttarr Proppé og S. Björn Blöndal
voru mættir ásamt fleirum úr Besta
flokknum og sjálf Björk Guðmunds-
dóttir sást í salnum. Þarna voru
líka Anna Hildur Hildibrandsdóttir
hjá Útón og Ragnar Kjartansson
listamaður. Björk Guðmunds-
dóttir var líka í Tjarnarbíói á
fimmtudagskvöldið þegar
hún fylgdist með Angel Der-
adoorian úr Dirty Projectors.
Þeir sem komust út úr
lengstu biðröð Íslands-
sögunnar fyrir framan Hafnarhúsið á
laugardagskvöld voru flestir ánægðir
með Robyn og aðra tónleika þar.
Einn þeirra var Jón Gunnar Geirdal
markaðsstjóri sem var hæstánægð-
ur. Strákarnir í Bombay Bycycle
Club skemmtu sér á Sódómu eftir
tónleika sína en þar höfðu
jaxlarnir Arnar Gunnlaugsson
og Gunnar Nelson verið
fyrr um kvöldið. Þá sást til
íþróttafréttamannsins Hjartar
Hjartarsonar á vafri
fyrir utan staðinn.
Lovísa Elísabet
Sigrúnardóttir fylgdist með Snorra
Helgasyni á Risinu og Jónatan Garð-
arsson og Eldar Ástþórsson voru á
sama stað á föstudagskvöldið.
Drengirnir í hljómsveitinni Hurts
plöntuðu sér á Kaffibarinn eftir
tónleika sína á föstudagskvöld. Þeir
skemmtu sér svo vel að þeir
ætluðu að vera á barnum
þar til þeir áttu að mæta
í flug um morguninn.
Nóg var af fólki á
tónleikum færeysku
sveitarinnar 200 á
Amsterdam eftir
miðnætti á laugardagskvöldið. Þar
voru rokkamman Andrea Jónsdótt-
ir, Ólafur Páll Gunnarsson og Ásgeir
Eyþórsson af Rás 2, myndlistarparið
Erling Klingenberg og Sirra auk þeirra
Heiðu og Elvars úr Hellvari. Strák-
arnir í 200 báðust afsökunar fyrir
hönd færeysku þjóðarinnar vegna
framkomu ákveðinna færeyskra
stjórnmálamanna þegar
Jóhanna Sigurðardóttir kom í
heimsókn og sögðust vera til
í að snæða með Jóhönnu og
eiginkonu hennar hvenær
sem er. - hdm
FÓLK Á AIRWAVES
LEIÐINLEGT Everything Everything heill-
aði ekki gagnrýnanda Fréttablaðsins.
Föstudagurinn 15. október