Fréttablaðið


Fréttablaðið - 18.10.2010, Qupperneq 50

Fréttablaðið - 18.10.2010, Qupperneq 50
26 18. október 2010 MÁNUDAGUR Meira í leiðinniWWW.N1.IS / SÍMI 440 1000 REYNSLUBOLTAR MEÐ RÍKA ÞJÓNUSTULUND HJÓLBARÐAVERKSTÆÐI N1 KOMDU VIÐ Á NÆSTA HJÓLBARÐAVERKSTÆÐI N1. VIÐ TÖKUM VEL Á MÓTI ÞÉR. · Hjólbarðaþjónusta fyrir alla bíla, stóra, smáa, gamla og nýja · Fagleg og skjót vinnubrögð · Hagstætt verð · Landsins mesta úrval af dekkjum og felgum · Á dekkjahótelum N1 býðst þér að geyma sumardekkin gegn vægu gjaldi Kynntu þér nýja vefverslun með hjólbarða á www.n1.is N1 VEGAA ÐSTOÐ FYRIR REY KJAVÍK O G NÁGREN NI Hafðu sam band ef bí llinn bilar! Opið allan sólarhring inn, alla da ga. Sími 660 3 350 FÓTBOLTI Alfreð Finnbogason, Breiðabliki, og Dóra María Lár- usdóttir, Val, voru valin bestu leikmenn Pepsi-deilda karla og kvenna á lokahófi KSÍ sem haldið var á laugardagskvöldið. Bæði urðu Íslandsmeistarar með sínum liðum og þessi lið hirtu öll stærstu verðlaun kvölds- ins. Kristinn Steindórsson var valinn efnilegastur og Ólafur Kristjánsson þjálfari ársins hjá körlunum. Dagný Brynjarsdótt- ir var efnilegust hjá konunum og Freyr Alexandersson besti þjálfarinn. Gunnar Jarl Jónsson var valinn besti dómari karladeildarinn- ar og Guðrún Fema Ólafsdóttir í kvennadeildinni. Prúðmennsku- verðlaunin fengu markverðirn- ir Fjalar Þorgeirsson, Fylki og Sandra Sigurðardóttir, Stjörn- unni. Selfoss fékk stuðningsmanna- verðlaun í karlaflokki og Þór/KA í kvennaflokki. - esá Lokahóf KSÍ um helgina: Alfreð og Dóra María best BESTUR Alfreð Finnbogason var valinn efnilegastur í fyrra en bestur í ár. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON HANDBOLTI Aron Pálmarsson átti stórleik með Kiel og skoraði sjö mörk er liðið vann góðan útisig- ur á sterku liði Celje Lasko frá Slóveníu í Meistaradeild Evrópu í gær, 34-28. Sigurinn var einn- ig sætur fyrir Alfreð Gíslason þjálfara en Noka Serdarusic, sem þjálfaði Kiel í fimmtán ár, er núverandi þjálfari Celje Lasko. Í sama riðli gerði Rhein-Neck- ar Löwen jafntefli við pólska liðið Kielce á útivelli, 23-23. Þetta var fyrsta stigið sem liðið tapar undir stjórn Guðmundar Guð- mundssonar sem tók við því í síð- asta mánuði. Ólafur Stefánsson skoraði fjögur mörk fyrir Löwen. Kiel og Löwen eru efst og jöfn í riðlinum með sjö stig. Ingimundur Ingimundarson og félagar í danska liðinu Ála- borg unnu sinn fyrsta sigur í Meistaradeildinni er liðið mætti Dinamo Minsk frá Hvíta-Rúss- landi og vann, 33-29. Ingimundur komst ekki á blað að þessu sinni. Í þýsku úrvalsdeildinni tapaði Füchse Berlin sínum fyrstu stig- um á tímabilinu er liðið tapaði fyrir Hamburg á útivelli í gær, 31-27. Dagur Sigurðsson hefur gert frábæra hluti með liðið í haust en mátti sætta sig við tap í gær þrátt fyrir hetjulega baráttu. Alexander Petersson skoraði eitt mark fyrir Füchse Berlin. Fjögur lið eru efst og jöfn í deildinni með fjórtán stig. Það eru Kiel, Löwen, Hamburg og Füch- se Berlin. Þrjú af þessum liðum þjálfa íslenskir þjálfarar. - esá Evrópuhandboltinn: Aron með stór- leik í sigri Kiel SJÖ MÖRK Aron fór á kostum með Kiel í gær. NORDIC PHOTOS/BONGARTS FÓTBOLTI Liverpool losnaði á föstu- daginn loksins við þá George Gill- ett og Tom Hicks og fékk nýja eig- endur í þeirra stað. Þeir John W. Henry og félagar í bandaríska eignarhaldsfélaginu NESV, sem einnig á Boston Red Sox, voru mættir á völlinn í gær en máttu horfa upp á nýja liðið sitt tapa fyrir erkifjendum sínum og grann- liði, Everton, 2-0. Um botnslag var að ræða í deild- inni en liðin sátu fyrir helgi í 17. og 18. sæti með sex stig hvort. Evert- on hoppaði upp í ellefta sætið með sigrinum en Liverpool datt niður um eitt og er nú með sex stig, rétt eins og Wolves (18. sæti) og botnlið West Ham. Eini deildarsigur Liverpool á tímabilinu til þessa kom gegn West Brom í lok ágúst. Síðan þá hefur Liverpool fengið tvö stig af fimmt- án möguleikum. Til samanburðar má nefna að West Brom hefur ekki tapað síðan í áðurnefndum leik og náði síðast góðu 2-2 jafntefli gegn Manchester United á útivelli um helgina. Liverpool hefur ekki byrjað verr í deildinni síðan haustið 1953. Það tímabil féll liðið úr efstu deild og komst ekki aftur upp fyrr en átta árum síðar, þá undir stjórn Bills Shankly sem gerði liðið að stór- veldi. Hvort nýjum eigendum tekst að rífa liðið upp eins og Shankly forð- um verður að koma í ljós. Byrjun- in lofaði þó ekki góðu á Goodison Park í gær. Tim Cahill og Mikel Arteta skor- uðu fyrir Everton í leiknum og það var ekki fyrr en undir lok hans að þeir rauðklæddu fóru að sækja að einhverju ráði, en án árangurs þó. Nýju eigendurnir lýstu yfir stuðningi við Roy Hodgson, stjóra Liverpool, fyrir leikinn og hann var ánægður með framlag leik- manna sinna í gær. Hann sagðist ekki vera farinn að örvænta enn. „Ég tel ekki að við séum í krísu,“ sagði Hodgson. „Við spiluðum ekki eins og lið sem er í fallsæti. Á hinn bóginn verður að viðurkenna að sex stig eftir átta leiki er heldur dræm uppskera. Við þurfum að byrja að vinna leiki og klifra upp stigastöfluna. Þangað til munu orð eins og „krísa“ fylgja okkur.“ Everton virðist komið á beinu brautina en liðið hefur nú unnið tvo leiki í röð. „Mér finnst reyndar að við höfum spilað betur í flestum leikja okkar í haust en við gerðum í dag. En þetta var grannaslagur og slíkir leikir eru ávallt frábrugðnir öðrum. Við náðum að forða okkur frá botninum en ég tel að við séum með nægilega gott lið til að berjast við toppinn.“ Manchester City kom sér upp í annað sæti deildarinnar með sínum fjórða sigri í röð, í þetta sinn gegn nýliðum Blackpool í gær. Leiknum lauk með 3-2 sigri en City getur þakkað fyrirliðanum Carlos Tevez fyrir stigin þrjú að þessu sinni. Hann kom City yfir gegn gangi leiksins og skoraði svo öðru sinni aðeins mínútu eftir að Blackpool hafði tekist að jafna metin. „Stundum er mikilvægt að vinna eins og við gerðum í dag,“ sagði Roberto Mancini, stjóri City, eftir leikinn. „Við spiluðum ekki vel. Það var mikilvægt að við skoruð- um þó þrjú mörk og sjaldgæft að það gerist á útivelli.“ Það var einnig nóg um að vera í deildinni á laugardaginn. Manchester United gerði sitt þriðja jafntefli í röð og datt niður í fjórða sæti deildarinnar. Topplið Chelsea hefði þar með getað aukið forystu sína á toppi deildarinnar en mátti sætta sig við markalaust jafntefli við Aston Villa á útivelli. Arsenal rak af sér slyðruorðið eftir tvo tapleiki í röð með 2-1 sigri á Birmingham og er með fjórtán stig í 3.-5. sæti, ásamt United og Tottenham. eirikur@frettabladid.is Nýir eigendur en sömu vandamálin Liverpool er í næstneðsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir 2-0 tap fyrir Everton í grannaslag liðanna í ensku úrvalsdeildinni í gær. Manchester City er komið upp í annað sæti deildarinnar eftir fjóra sigra í röð. SVEKKTIR Þeir Jamie Carragher, Fernando Torres og Lucas Leiva voru niðurlútir eftir tapið í gær. NORDIC PHOTOS/GETTY Mér finnst reyndar að við höfum spilað betur í flestum leikja okkar í haust en við gerðum í dag. DAVID MOYES KNATTSPYRNUSTJÓRI EVERTON

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.