Fréttablaðið - 26.10.2010, Qupperneq 20
26. október 2010 ÞRIÐJUDAGUR4
Vefurinn Shape.is fór í loftið
fyrir rúmri viku en þar er hægt
að panta matarpakka með öllum
máltíðum dagsins sem innihalda
einungis 1.500 kaloríur. Einka-
þjálfarinn Gunnar Már Sigfússon
stendur að baki þjónustunni ásamt
matreiðslumönnunum Snorra
Birgi Snorrasyni og Einari Helga
Jónssyni. Hann fullyrðir að fólk
sem borðar eingöngu það sem er
í matarpökkunum komi til með að
léttast. „Grunnorkuþörf kvenna er
rúmlega tvö þúsund kaloríur á dag
svo það segir sig sjálft.“
Gunnar Már segir viðtökurnar
hafa farið fram úr björtustu
vonum. „Við fórum af stað með
ákveðnar væntingar en eftir-
spurnin var mun meiri en við
bjuggumst við. Við höfum verið að
leggja grunninn að þessu síðasta
hálfa árið og er augljóst að þetta
er nýjung sem fólk kann að meta,“
segir Gunnar.
Matarpakkarnir innihalda
morgunmat, hádegismat, kvöld-
mat og tvær millimáltíðir. „Ég
reikna út kaloríurnar og legg upp
með hvaða kolvetni, prótín og
fitu er gott að borða á hvaða tíma
dags. Snorri og Einar sjá síðan
um að útbúa matinn. Við leggj-
um upp með nokkuð hefðbundinn
mat og erum enn sem komið er
ekki að leggja áherslu á glútein-
og lactosa-frítt fæði. Við skerum
hins vegar einföld kolvetni veru-
lega niður en leggjum þess í stað
mikla áherslu á prótín í einhverju
formi og eru þau í þremur til fjór-
um máltíðum dagsins. Maturinn
er fullur af næringu, hollri fitu
og góðum prótínum og skammta-
stærðirnar eru hugsaðar þannig
að líkaminn nýti næringarefnin
sem best,“ upplýsir Gunnar.
Hann hefur langa reynslu af því
að vinna með fólki sem vill létt-
ast og lifa heilbrigðu lífi en hann
hefur starfað sem einkaþjálfari í
átján ár og heldur regluleg nám-
skeið á Nordica Spa. „Það fara um
það bil hundrað manns í gegnum
námskeið hjá mér á mánuði og
eftir að hafa talað við allan þenn-
an fjölda er ég viss um að fólk
veit vel hvað þarf til að léttast og
lifa heilbrigðara lífi. Það er hins
vegar fyrst og fremst tímaskortur
og skipulagsleysi sem kemur í veg
fyrir að af því verði. Fólk hefur
ekki tíma til að elda rétt samsett-
an mat á hverjum degi. Það tekur
lotur og borðar hollt en þá vill
mataræðið oft verða einhæft.“
Gunnar vill einfalda fólki lífið
og hefur það að leiðarljósi að velja
mat sem hann vildi óska að hann
hefði sjálfur aðgang að á hverjum
degi. „Það er veitingahúsabrag-
ur á hverri máltíð. Við leggjum
ríka áherslu á fjölbreytni og ætti
engum að leiðast að lifa á þessum
mat. Þá erum við með mikið af
ferskpressuðum grænmetissöfum
og skyrdrykkjum í millimál.“
Gunnar hefur gert samning við
fjórar N1 stöðvar á höfuðborgar-
svæðinu en þangað sækja við-
skiptavinir matinn. Hann er sóttur
í hádeginu og getur viðkomandi þá
strax tekið til við að borða hádeg-
ismatinn. Hann borðar svo milli-
máltíðina og kvöldmatinn en á svo
morgunmat og annað millimál til
að borða daginn eftir. Enn sem
komið er er einungis boðið upp á
einn matarpakka en strax í næsta
mánuði verður örðum bætt við.
Hann mun innihalda 1.800 kalorí-
ur og er hugsaður fyrir karla enda
orkuþörf þeirra meiri. „Þá stefn-
um við líka að því að bjóða upp á
fimm daga safakúr með ítarlegum
leiðbeiningum.“ En hvað kosta her-
legheitin? „Pakkinn kostar 3.490
krónur á dag og er hægt að panta
allt frá einum degi og upp í nokk-
urra vikna áskrift.“ Nánari upplýs-
ingar er að finna á www.shape.is.
vera@frettabladid.is
Bjóða hollan og rétt samsettan mat
Á Shape.is er hægt að panta matarpakka með öllum máltíðum dagsins. Þeir innihalda einungis 1.500 kaloríur og eru sérstaklega hugsaðir
fyrir fólk sem vill léttast. Þjónustunni hefur verið vel tekið að sögn Gunnars Más Sigfússonar, eins þeirra sem standa að baki þjónustunni.
Gunnar Már ásamt matreiðslumönnunum Snorra Birgi Snorrasyni og Einari Helga
Jónssyni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Lífið frá nýjum
sjónarhóli
BORÐA, BIÐJA, ELSKA MEÐ EDDU
BJÖRGVINSDÓTTUR OG BJARG-
EYJU AÐALSTEINSDÓTTUR Í MANNI
LIFANDI Í DAG.
Edda Björgvinsdóttir og Bjargey
Aðalsteindóttir standa fyrir nám-
skeiðinu Borða, biðja, elska í
Manni lifandi í Borgartúni 24 í dag
klukkan 18.
Á námskeiðinu munu Edda og
Bjargey fjalla um betra mataræði,
minni streitu og mátt hugleiðslu
svo fátt eitt sé nefnt. Þá verða í
boði léttar veitingar í anda bókar-
innar Borða, biðja, elska eftir Eliza-
beth Gilbert.
Þátttökugjald er 2.900 krónur
og er hægt að skrá sig á nám-
skeiðið með því að senda póst á
gg@madurlifandi.is.
Edda Björgvinsdóttir stendur að baki
námskeiðinu.
Rekstrarleyfisnámskeið
leigubílstjóra
Með vísun til laga nr. 134/2001 um leigubifreiðar,
gengst Vegagerðin fyrir Rekstrarleyfisnámkeiði
leigubílstjóra í Ökuskólanum í Mjódd
dagana 1. til 5. nóvember n.k.
Þátttaka tilkynnist til fyrir 29. október
til Ökuskólans í Mjódd í síma 567-0300
FimmtudagaJóna María Hafsteinsdóttir
jmh@365.is - sími 512 5473
Henný Árnadóttir
henny@365.is - sími 512 5427
Þórdís Hermannsdóttir
thordish@365.is - sími 512 5447