Morgunn - 01.06.1927, Blaðsíða 43
MORGUNN
37
mikill og sá ófullkomleiki er, þá strandar alt fyrst og fremst
á trúleysinu á möguleika mannsins til endurbóta, já, til full-
komnunar. í einu bezta ritinu, sem skrifað hefir verið síð-
asta mannsaldurinn, Man and Superman, eftir Bernhard
Shaw, er deila milli djöfulsins og mannsins, sem ]>ráir full-
komnunina. Yopn djöfulsins í deilunni er vantrúin á mann-
inn. Maðurinn beitir aldrei verulegri orku, nema þegar hann
er að eyðileggja og fremja ilt, segir hann. Ilann smíöar ógur-
leg herskip, sem ekkert stenzt fyrir; hann smíðar fallbvssur,
sem skjóta í tuga mílna fjarlægð; hann getur oröið hræðilega
máttugur í ófriöi, en hann hefir ekki ennþá lært að yrlcja
jört'ina; hann hefir notað fram til þessarar stundar ómerki-
leg verkfæri til akuryrkju; hann lætur mann farast á einum
stað vegna matarskorts, þótt nóg sé af lionum á næstu grösum.
Allar friðsamar íþróttir og störf eru sem barnaleikur, í sam-
anburði við íþrótt hans til eyðileggingar og skelfingar. —
Maðurinn getur aldrei bjargað sér, segir djöfullinn, því að
liann er í eðli sínu ræfill og eigingjarn. Honum er svaraö
með því einu, sem hægt er að svara með, og það er, að mað-
urinn yfirvinnur þá fyrst sinn eigin veikleika, þegar tekist
hefir að koma inn í höfuð hans hugsjón, sem kemur lionum
ekki við, heldur alheiminum. Ef hægt er að láta hann koma
auga á eina volduga, almenna hugsjón, hugsjón, sem liann
hefir ekkert gagn af sjálfur, þótt hún komist í framkvæmd, þá
getur hann lagt alt í sölurnar. Menn berjast fyrir frelsi ókom-
inna kynslóða, fyrir sjálfstæði lands síns um ókomnar aldir,
fyrir bræðrafélaginu eftir 100 ár. En djöfullinn hefir rétt;
fyrir sér í því, aö maðurinn er veikur, hann er lmglaus, liann
er svikull við alt fagurt og gott í sínum eigin, persónulegu
málum, en ef það tekst að láta hann skilja, að guö hafi ætlað
lionum eitthvert sérstakt verk, með öðrum orðum, aö liann
eignast einhverja hugsjón, þá verður hann gersamlega kæru-
laus um persónulegar afleiðingar. Þess vegna eiga öll mál
sína píslarvotta, og þess vegna hefir enginn píslarvottur séð
eftir að verða það.
Þetta eðli hofir birst á alveg. sérstakan hátt í barninu,