Morgunn


Morgunn - 01.12.1976, Page 11

Morgunn - 01.12.1976, Page 11
DULSKYNJANIll 109 en það var þó ýmislegt fólk sem síðar gal sannað, að það hafði sagt. fyrir um hin hörmulegu endalok þessa mikla skips. Þannig voru tveir ófreskir menn, sem einn af farþegum hafði leitað til. — En farþeginn var viðkunnur og merkur blaðamað- ur og rithöfundur, William T. Stead — Munu ýmsir íslend- ingar kannast við hann sem höfundar bókarinnar: Bréf frá Júlíu, sem Stead skrifaði ósjálfrátt, því hann var sjálfur sál- rænn. Þessir tveir „sjáendur“ höfðu báðir varað hann við að ferðast á vatni áður en hann fór þessa feigðarför. Annar þess- ara ófresku manna hafði sagt við Stead hálfu öðru ári áður en ferðin hófst að hann myndi sigla til Ameríku innan eins eða tveggja ára frá þvi er Stead leitaði til hans. En hann sagði ennfremur við Stead: „Ég sé meir eu þúsund manns, sjálfan yður þar á ineðal. Þetta fólk berst af örvæntingu um í sjón- um. Það æpir á hjálp og berst fyrir lífi sinu. En allt er það unnið fyrir gýg — einnig hjá yður.“ Sjálfur hafði Stead feugið fyrirboða um hörmuleg örlög skipsins og sjálfs sin. Þegar hann var ritstjóri hjá Lundúnablaði allmörgum árum áður, þá hafði hann birt skáldaða frásögn af því hvernig stórt farþegaskip fórst og átti þetta að vera frásögn manns, sem komisl liefði af. Sem eftirmála við þessa skáldsögu hafði rit- stjórinn bætt þessum spámannlegu orðum: „Þetta er nákvæm- lega það sem gæti átt sér stað, ef skip eru send út á hafið án nægra björgunarbáta." Nokkrum árum síðar skrifaði Stead tímaritsgrein þar sem hann lýsti sjóslysi þar sem stórt far- þegaskip rakst á borgarísjaka. Þetta var auðvitað skáldskapur, en i þessari frásögn þá lét Stead aðeins einn farþega komast h'fs af. Og ])ótt ótrúlegt megi virðast, þá dreymdi Stead draum ])ar sem hann sá sjálfan sig standa á þilfarinu á hinu sökkv- andi skipi Titanic. í draumnum var hann án björgunarbeltis og horfði á síðasta björgunarbátinn hverfa út i nóttina. Hann skorli því ekki viðvarnir. En eins og fyrr greinir skellti Stead skollaeyrum við öl 1 - um fjTÍrboðum og spám um hið ókomna og fórst með Titanic. Þessu var öðru vísi háttað um samlanda hans einn, J. Connon

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.